Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1964, Side 4

Samvinnan - 01.04.1964, Side 4
ísraelskur landbúnaðarverkamaður við gróðursetningu. Jörðin er grýtt, eins og víða í Palestínu, en engu að síður hefur ísraelsmönnum víða tekizt að breyta henni í aldin- garð. Hér birtist önnur grein séra Sigurðar í Holti um samyrkju- og samvinnubú ísraelsmanna. Er þar greint allnáið frá hinum ýmsu greinum skipulags, sem landnemar Gyðinga hafa tekið upp, landbúnaði sínum til eflingar. SIGURÐUR EINARSSON II. Kennslustund í landbún- aðarfræðum. Morgun einn eldsnemma kom Noah Pelled til þess að sækja okkur þar sem við' bjuggum á hótel Panorama á Karmel- fjalli. Hann var forstjóri skóg- ræktar- og landbótastarfs á vegum Þjóðsjóðsins og Bústofn- unarsjóðsins um sunnanverða Galíleu, einn færasti maður landsins í sinni grein, Noah Pelled var pólskur að uppruna, en hafði numið fræði sín í há- skólum bæði í Norðurálfu og Bandaríkjunum. Þó að hann væri háttsettur embættismað- ur í þjónustu hins opinbera, var hann félagi í samvinnu- búinu Ein Hashofet á Karmel- hálsum, en vann algerlega utan búsins. Laun hans runnu í sjóð búsins og hann bjó þar við sömu kjör og aðrir félagar, þó að laun hans væru nálega fjór- föld á við afraksturinn af vinnu beirra. Þessum manni var ætl- að að ferðast um með okkur o? veita okkur fyrstu skipulegu fræðslnna um landbúnaðarmál fsraels. Það gat ekki betra ver- bví að Noah Pelled var bæði alöe-gur maður og greindur og eerkunnugnr beim málum. sem hér var nm að ræða. í'g hafði í bók minni För um fo^nar helgislóðir lýst fyrsta rannveruleea, samyrkiu- og samvinnnbúinu í fsrael, Degan- fa, kynnt mér fyrirkomulag b?ss nokkuð á för minni í ísrael ) 957 og annarra sam- vinnubúa, sem störfuðu á sama skinulagsgrundvelli. Mér var einnig kunnugt um, að þetta var ekki hið unphaflega skipu- lagsform ísraelsks landbúnað- ar. Löngu áður, upp úr fyrstu innflytj endabylgjunni, höfðu risið upp landbúnaðarnýlendur Gyðinga á grundvelli hreins einkareksturs, sem sumar voru orðnar að blómlegum sveita- borgum, eins og Peta Pikva og Rison le Zion. En ég hafði ekki talað lengi við Noah Pelled, þegar mér varð það Ijóst, að þekking mín á þessum efnum var æði mjög í molum. í þátt- um þeim, sem hér fara á eftir, styðst ég mjög við þá fræðslu, sem hann veitti okkur, og því er ég sá síðar í för með öðrum mönnum. En fræðsla Noah Pelled dró mig drýgst. Ég lét í ljós, að mig langaði til að skoða einhverja kibh- utsim. Kibbutsim er fleirtala af orðinu kibbuts, sem þýðir sam- félag, en er nú í hebresku máli eingöngu notað um samfélag, sem til þess er stofnað að rækta land í fsrael. Gott, sagði Noah Pelled. En þér þurfið helzt að sjá fleira, t. d. kvutsa, mosja ovdim og mosjav sjitufi. Þegar hér var komið, varð ég að játa, að ég vissi ekki um hvað verið væri að tala. Þá er að byrja á byrjuninni, sagði Noah Pelled, og kennsl- an hófst. Landbúnaðarnýlendur okk- ar, eða landbúnaðarbyggðir. eins og nú væri réttast að nefna þær, eru skipulagðar með ýmsum og mismunandi hætti, sagði hann. Fyrstu landnem- arnir, sem komu hingað til bess að rækta jörðina, keyptu hver sína jarðarspildu eftir bví, sem tækifæri gáfust til. Þetta var udp úr 1880. Þeir byggðu sér hver sinn bæ og bæ- irnir mynduðu sveitaþorp, sem í megindráttum voru eins og sveitaþorp í Evrópu, enda fyr- irmyndirnar þaðan. Þetta voru siálfseignarbændur, sem ráku bú sín að verulegu leyti með að- keyptu vinnuafli, og seldu af- urðir sínar þeim, er bezt bauð, j HOLTI: Smámsaman urðu þeir þess megnugir að kaupa sér meira land og margir þeirra, eða af- komendur þeirra, sitja nú hingað og þangað um landið sem stórefnabændur. Þetta á ekki einungis við um fyrstu innflytjendurna. Alveg fram á síðustu ár hafa Gyðingar flutzt til landsins, sem hafa getað keypt sér jörð fyrir eig- ið fé og hafið búskap. Þessi sveitaþorp geta verið mjög mismunandi að stærð, frá 100 manns upp í bæi með 10—12,000 íbúa. Margir þeirra hafa kom- ið sér upp fjölbreytilegum iðn- aði, sem allur er einkarekstur. Slíkt sveitaþorp sjálfseignar- bænda heitir mosjava, í fleir- tölu mosjavat. Það er annað aðalskipulagsform landbúnað- arins í fsrael. Hitt aðalformið, sem grein- ist raunar skipulagslega í ýmsa flokka, einkennist af því, að bændurnir eiga ekki jörðina, heldur hafa fengið hana til notkunar hjá Þjóðsjóðnum, Keren Kajemet. Hópur land- nema fær tiltekið landsvæði á leigu. Þeir mynda samfélag sem ýmist getur verið algert sam- eignarfélag, einstaklingurinn á ekki neitt og getur aldrei eign- ast, eða samfélagið er skipu- lagt með svigrúm fyrir meiri eða minni einkaeign. En hvort heldur sem er, einkennast öll b^ssi samfélög af því, að þau starfa á samvinmigTundvelli. Þau eru öll undantekningar- laust meðlimir í verkamanna- sambandinu, Histadrut, og samvinnufyrirtæki þess annast öll kaup og allar afurðasölur fyrir þessi samfélög. Algeng- asta og útbreiddasta form þeirra er kibbutsim. Samfélagið, sem við nefnum kvutsa (flt. kvutsat), er í grundvallaratriðum skipulagt 4 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.