Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1964, Page 5

Samvinnan - 01.04.1964, Page 5
SAMYRKJU- OG SAMVINNUBÚIÍSRAEL eins og kibbuts. Munurinn er eiginlega aðeins sá, að kvutsa er lítill kibbuts og stærð hans takmörkuð. Hann má ekki telja innan vébanda sinna meira en í hæsta lagi 500 manns. Sjón- armiðið, sem liggur til grund- vallar, er það, að allir skuli þekkjast persónulega — sam- félagið mynda eina stóra fjöl- skyldu. Hinsvegar eru engin fyrirmæli, sem takmarka það, hvað kibbuts má vera stór. Þessi eiginlegu sameignar- og samvinnubú telja mörg hver yfir 2000 manns. Hinsvegar þykir ekki allskostar hagkvæmt að íbúatala fari að ráði yfir 3000, meðal annars vegna þess að nytjalönd kibbutsins fara þá sum hver að liggja æði langt frá byggðinni. Mjög algengt er það að hin stærri sameignar- og sam- vinnubú komi upp hjá sér ein- hverskonar iðnaði. Mörg hafa stofnað stórverksmiðjur til niðurlagningar á ávöxtum, grænmeti og fiski, önnur tré- smiðjur, málmiðjuver eða vefj- arstofur. Mjög mikilsvert er að gera sér vandlega grein fyrir skipu- lagseinkennum kibbutsins. Hann er algert sameignarfyrir- tæki. Keren Kajemet, Þjóðsjóð- urinn, á jörðina. Öll önnur verðmæti eru eign samfélags- ins, hús, vélar, áhöld, lifandi peningur, aldingarðar, allt, sem er arðgæft eða að einhverju nýtandi. Einkaeign er óþekkt fyrirbrigði, enda ekki heimil- uð. Öll vinna er vandlega og nákvæmlega skipuJögð. Megin- reglan er sú, að vinna komi sem jafnast niður, en flokkað í störf eftir hæfni, þekkingu og áhugamálum eftir því sem unnt er. Fyllsta tillit er tekið til ald- urs, heilsufars og annarra per- Framhald á bls. 26. SAMVINNAN 5

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.