Samvinnan - 01.04.1964, Síða 12
Frétt að norðan
Dreypir sorg í dagsins bikar döprum veigum.
Svanir pagna einn af öðrum
undir bliki af Svörtum fjöðrum.
Ástum vígður, eldi skírður Eyjafjörður,
heyrir hvorki um fjöll né flœði
framar skáldsins dýru Kvœði.
Festar leysir friðlaust skip til ferðar búið.
Dánarklukkna köll frá sœnum
Kveðjur flytja gamla bœnum.
Hallfreðs ástir, Hrœreks stolt og Heiðmörk góða,
höfðingslund í húsgangs klœðum
hlusta eftir Nýjum kvœðum.
Morgunsól á Sólarfjalli sortnað hefur.
Húmar á jökulskildi skyggðum,
skugga slœr á líf í byggðum.
Fögur hlíð og fjarðarströnd og Fagriskógur,
sveipuð öll í sorgarklœði
syngja Að norðan harmakvœði.
Heyrast kveðin lög við Ljóð frá liðnu sumri.
Segið henni móður minni,
mér er hvíldin efst í sinni.
Segið henni móður minni mér til bóta:
Gott er að elska, gott að sakna,
gott í dögun nýrri að vakna.
Páll H. Jónsson
12 SAMVINNAN