Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1964, Page 29

Samvinnan - 01.04.1964, Page 29
töluveröir málmar í jörðu, svo sem kopar, járn, sink, mangan og gull. Skógarhögg er þar mikið stundað og timbrið selt til Indlands. Þá er og landbúnaður mikið stundaður, bæði korn- og kvikfjárrækt. Afurðir þeirra atvinnuvega eru einnig seld- ar til Indlands, þær er eru umfram innanlandsneyzl- una. — Stofnanir Samein- uðu þjóðanna hafa undan- farið gert mikið til að hleypa nýju og vaxandi lífi í at- vinnuvegi landsins og sent þangað fjölda sérfræðinga. Stjórna þeir meðal annars byggingum vatnsvirkjana, leita málma og leiðbeina landsmönnum við skógrækt og mjólkuriðnað. Síðustu árin hafa Nepalar lagt allt kapp á að viðhalda góðri sambúð við nágranna- ríkin tvö, enda óvænlegt fyrir eitt kotríki að fjand- skapast við þvílíka risa. Þeir hafa mikil verzlunarviðskipti við Indland og Gúrkar þeir, sem áður gengu á mála hjá Bretum, þjóna nú margir í indverska hernum. Voru þeir meðal annars kjarni her- sveita þeirra, er Indland sendi til Kongó á dögunum. Við Kína voru landamæra- deilur um hríð eftir hernám Tíbets, en þær tókst að jafna vandræðalítið, og 1957 kom Sjú-En-læ í vináttuheim- sókn til Nepal. En á kín- verskum landabréfum kvað þó landið enn vera talið meðal þeirra, sem með réttu eigi að tilheyra Kínaveldi. dþ. SNÚUM VIÐ .... Framhald af bls. 11. sinni, um leið og hann sneri hnannnum enn á nv, ov horfnir voru gest- irnir alhr. Óskir hins ný- kvonvaða manns voru samt ekki nærri brotnar. Hann sneri hnappnum um leiö og hann óskaði þess, að bærinn og búið, sem þau hafði dreymt um að eignast, væri nú komið upp og í sæmilegt lag. Bærinn stóð þar sam- stundis í breiðu, egg- sléttu túni, nýr og vandaður með bústofni og munum, til þess bú- inn að hlúa að fjöl- skyldu. „Nú vantar barn í bæ- inn“, sagði hann, mað- urinn, sem ekki kunni að bíða, og enn var hnappnum góða snúið með líkum árangri og áður. Lönguninni var fullnægt, lítill drengur sat á hné hans, snáði, sem þurfti að eignast systkini, og ungi maður- inn, sem ekki var ungur lengur, sneri og sneri töfrahnappnum. Lífið hentist hjá á flugspretti. Auður spratt upp, börn- in urðu fullorðin eins hratt og hnappi varð snúið, hurfu burt og stofnuðu heimili. Mað- urinn, sem rétt áður hafði beðið brúðar sinn- ar, var orðinn boginn öldungur og kominn í kör. Nú var ekkert eftir- sóknarvert lengur til að óska sér og gúkna yfir. Ævin var liðin að lokum á agnarstund. Gamla manninum, sem sloppið hafði við alla erfiðleika af óskum sínum og brám, skildist það loks- ins, að hér hefði verið heldur fljótt yfir sögu farið. Mikið langaði hann nú til að geta grip- ið til einhvers þess, er hann hafði hlaupið yfir„ og fálmandi öldungs fingrum fór hann að reyna að snúa hnappn- um. á hinn veginn, ef það kynni einhverju að breyta. Hann hrökk við. Hann beið þá enn ungur og hraustur við vegamótin, þar sem hann hafði mælt sér mót við unn- ustu sína á leið til hjóna- vígslunnar. En nú hafði hann lært að bíða. Hann leit í kringum sig, sá blómin, regnbogaliti þornandi daggardropa, sem glitr- uðu í sólskininu, tók eft- ir fuglasöngnum og fann yl og angan. Og hann sá brúði sína koma til móts við sig feimna og fagn- andi. Endursagt úr dönsku. Staðfært. Siguröur Jónsson frá Brún. ☆ SNJÓKARLINN Framhald af bls. 11. Hann langaði til að lifa lenei, en hvernig væri það hægt. Hann horfði í kringum sig og sá, að hann stóð hjá tjörn, sem náttúrlega var frosin. Honum kom ráð í hug. Hann tók sópinn sinn og sónaði svellið vandlega svo bað varð silfurgljá- andi og hált. Svo hróp- aði hann hátt: „Hver vill renna sér á nýsónuðu svelli fyrir eina krónu?“ Börnin í nágrenninu heyrðu hrópin og þau vildu öll renna sér á ný- sópuðu svelli. Snjókarl- inn hafði nóg að gera að taka á móti krónupen- ingunum. Hann varð að setja upp skilti, því hann hafði engan tíma til að hrópa. Meðan börnin fóru heim að borða og sofa notaði karlinn tím- ann til að sópa svellið og á hverju kvöldi fór hann með aurana sína í bank- ann. Stöðugt hækkaði upphæðin í bókinni og snjókarlinn var orðinn ríkur. „Hvað ætlar hann að gera við alla þessa pen- inga — og bráðum kom- ið vor?“ sögðu banka- mennirnir og hlógu. Þeir vissu ekki hvað snjó- karlinn hafði í hyggju. Einn daginn kom snjó- karlinn og sótti alla pen- ingana sína. Hann gekk rakleitt út úr bankanum með seðlabunkann und- ir hendinni. Allir fóru út í glugga til að sjá hvað hann ætlaðist fyrir. En snjókarlinn gekk beint í verzlun og keypti sér stóran ísskáp, svo stóran að snjókarl gat hæglega komist inn í hann. „Þetta er ráðsnjall snjókarl", sögðu allir og tóku ofan fyrir honum. „Hann veit hvað hann á að gera við peningana sína.“ Nú svaf snjókarlinn í ísskápnum allt sumarið. Þegar veturinn kom, stökk hann út úr ís- skápnum og flýtti sér SAMVINNAN 29

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.