Samvinnan - 01.03.1965, Page 2
„Bú er landstólpi"
Síðari hluta árs 1962 fór Búnaðarfélag íslands þess á leit við Sam-
band íslenzkra samvinnufélaga og Olíufélagið h.f., að þessi fyrirtæki
veittu Búnaðarfélaginu aðstoð til þess að láta gera fræðslumynd um
íslenzkan landbúnað. Haföi Búnaðarfélagið undirbúið þetta mál í
samráði við upplýsingaþjónustu landbúnaðarfélaganna á Norður-
löndum.
Sambandið og Olíufélagið vikust vel undir málaleitun Búnaðarfélags-
ins. Var þeim Hallgrími Sigurðssyni, skrifstofustjóra Olíufélagsins og
Páli H. Jónssyni, forstöðumanni Fræðsludeildar Sambandsins, falið að
fylgjast með undirbúningi og framkvæmd myndatökunnar fyrir hönd
sinna fyrirtækja. Fyrir hönd Búnaðarfélags íslands starfar Gísli
Kristjánsson ráðunautur að málinu.
Áður en þetta samstarf hófst hafði Búnaðarfélagið tryggt sér aðstoð
og fyrirgreiðslu deildarstjóra upplýsingaþjónustu dönsku landbún-
Kvikmyndatökumennirnir og jeppi þeirra austur í Öræfum.
aðarfélaganna, Helmers Rasmussen, en hann hefur unnið að gerð
svipaora mynda um mörg ár í samvinnu við Teknisk Filmkompani í
Kaupmannahöfn, sem sér um hina tæknilegu hlið málsins. Hafði
veriö undirbúið samkomulag við þessa aðila um að þeir tækju að sér
að gera myndina, og eítir að samstarf hinna þriggja íslenzku félaga
hofst, var það samkomulag fastmælum bundið. Kvikmyndatökumað-
ur var ráðinn Paul Solbjerghöj, sem vinnur hjá Teknisk Filmkompani,
en Helmer Rasmussen var til ráðuneytis um gerð myndarinnar.
P. Solbjerghöj er sérfræðingur i sinni grein, hefur hlotið mjög full-
komna menntun og ekkert gert í mörg ár annað en taka fræðslu-
myndir fyrir fjölmörg fyrirtæki. Eru þær myndir teknar næstum að
segja um allan heim.
Þeir félagar komu þrjár ferðir til íslands vorið og sumarið 1963.
Leiðsögumaður þeirra og túlkur við kvikmyndatökuna var að mestu
leyti Páil H. Jónsson, en annars Gísli Kristjánsson, sem og hafði
með höndum mestan hluta af skipulagningu og undirbúningi öllum.
Fjölmargir aðilar, bæði einstaklingar og félagasamtök, veittu ómet-
anlega fyrirgreiðslu. Munaði þar mest um Flugfélag Islands, þegar
frá eru tekin Búnaðarfélagið, Olíufélagið og Sambandið.
Vorið og sumarið 1963 var á ýmsan hátt harla óhagstætt til kvik-
myndagerðar, vegna sólarleysis og mikilla kulda. Hinir erlendu kvik-
myndagerðarmenn höfðu mjög takmarkaðan tíma, og á þeim vikum
sem þeir voru hér, samtals n.l. 6, varð að afla alls efnis í myndina,
hvernig sem aðstæður voru. Enda spöruðu Danir hvorki efni né erfiði.
Voru nætur gjarna notaðar til ferðalaga, en dagar til þess að biða
eftir að drægi frá sól, stundum klukkutímum saman. Fengu þeir
Framh. á bls. 26.
2 SAMVINNAN
Paul Solbjerghöj að
störfum við töku
kvikmyndarinnar „Bú
er landstólpi." Konan,
sem er að gefa lamb-
inu, er frú Anna
Brynjólfsdóttir á Gils-
bakka. Myndina tók
Helmer Rasmussen.
Efni:
2. „Bú er landstólpi."
3. Skuggaleg mistök,
Páll H. Jónsson.
4. Reynsluskóli og framtíðarmál,
Páll H. Jónsson.
5. Barnflcstu konurnar áhugasamastar um þjóðfélags-
c g umbótamál,
rætt við Lis Groes.
6. Heimilisþáttur,
Bryndís Steinþórsdóttir.
8. Bókaskápurinn.
9. Krossgátan.
11. Aðgangseyrir,
smásaga eftir Alexander Woollcott, Heimir Pálsson
þýddi.
12. Frá Noregi,
fyrri hluti ferðasögu eftir Jón Sigurðsson, Yztafelli.
15. Föndursíðan.
16. Samvinnan og fegurð lífsins,
Stefán Jónsson, námsstjóri.
17. Undur veraldar: Hofið í Efesos.
18. Upp úr ólestri,
ljóð eftir Sigurð Jónsson frá Brún.
19. Minningarkirkja að Ljósavatni,
séra Sveinn Víkingur.
20. Sambandsskip með síldartunnur.
Samvinnan
MARZ 1965 — LIX. ÁRG. 3.
Útgefandi: Samband íslenzkra samvinnufélaga.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður;
Páll H. Jónsson.
Blaðamaður:
Dagur Þorleifsson.
Ritstjórn og afgreiðsla i Sambandshúsinu, Reykjavík.
Ritstjórnarsími: 17080.
Verð árg.: 200.00 kr., í lausasölu kr. 20.00.
Gerð myndamóta: Prentmót h.f.
Prentverk: Prentsmiðjan Edda h.f.