Samvinnan - 01.03.1965, Side 14
að heimavör bónda síns, var
komið óveður, og treystist hann
ekki með hana klettastíginn,
og varð hún að bíða brúð-
kaupsnóttina og næstu tvær í
bátnum, og brúðgumi að færa
henni vistir og fatnað. Ekki
eru þó þessar byggðir yfir-
gefnar, enda er þarna veður-
sæld. Hvar sem rót á festir
er skógur, greni og lauftré hið
neðra, en fura að klífa fjall-
ið. Við sáum vírstrengi niður
þverbratta skógarhlíð, ofan af
brún og niður til strandar.
Okkur var sagt, að sel væri
þarna á fjallinu, og mjólkinni
væri rennt niður eftir strengj-
unum.
Nú var vegur skorinn í kletta
niður að firði, haldið litla
stund innundir hömrum, unz
fyrir varð standberg frá fjöru
til brúnar. Þar var bergið
sprengt og hlaðin bryggja í sjó
fram. Fljótlega kom ferja, sem
tók okkar bíl og aðra og bar
um fjörðinn. Sól skein í heiði,
ekki bærðist bára. Þverbratt-
ar skógarhlíðarnar á móti
spegluðust í sjónum. Ekki voru
þar vegir, en einstigi með sjó.
Geitur og kýr sáust í skógin-
um en laxanet með rauðum
netakúlum við klettahleina. Við
lentum nokkru innar handan
fjarðar. Þar var lítið þorp á
svolítilli eyri. Vegur var í essa-
streng upp á fjallið og síðan
að hinum heimsfræga Geirang-
ursfirði. Á brún hans var út-
sýnissvið, þar sem bezt sá yf-
ir. Sex hundruð metra stand-
berg var þar til sjávar, en
brjóstvörn á brúninni. Þarna
heitir „Örnesvimmer.
Á Arnarsvima taka tug-
þúsundir ferðamanna upp
myndavélar og mynda, meðal
annars „Systurnar sjö“, hvíta
fossa frá brún til fjöru í fjall-
inu á móti. Haldið er niður
klettana, höggvinn krókaveg.
Víða er standberg yfir og undir,
en tré, blóm og berjarunnar á
hverri syllu. Á nokkrum stöð-
um sáust grasblettir og þey á
hesjum, þótt ekki væri nema
hálfur baggi í stað. Fjörðurinn
er raunar innsti botn Stóra-
fjarðar og meira en 100 km inni
í landi. Allur gróður ber vott
um veðurblíðu. Þorpið Geir-
angur er fyrir fjarðarbotnl.
Þar eru þrjú mikil gestaheimili,
sitt á hverju þrepi. Veizia beið
okkar í einu þeirra. Hin mikla
höll er byggð í þjóðlegum stíl.
Nýleg húsgögnin eru smíðuð
sem forn. Þar sést bæði 18, ald-
ar stíll og drekaskurður forn-
manna. Stúlkur í þjóðbúning-
um báru fram þjóðarrétti.
Svona er það og þessu líkt alls
staðar, þar sem þjónað er
ferðamönnum, sem koma
hundruð þúsundum saman til
Noregs. Norðmenn vita, að
þetta er mest lífsþreyttur lýð-
ur, sem er að leita úr borgar-
ös til náttúrunnar sjálfrar og
hins náttúrulega mannlífs.
Héðan var lagt upp á Dofra-
fjöll, áleiðis til Guðbrandsdals,
snarbratt upp úr fjarðarbotni.
Útsýnin er ógleymanleg. Hrika-
leiki fjallanna er vafinn ljúf-
leika gróðursins og hins sílygna
fjarðar. Undraverðast var að
líta á hlíðina, sem við komum
niður. Hún sýndist hið versta
Ógöngufjall, en þó höfðum við
farið þarna niður hlæjandi og
syngjandi í bussanum okkar
fyr'r skammri stundu.
Komið var að dimmgrænu
vatni í 1000 m hæð. Þarna
skiptast vegir, og var slá með
lás fyrir þeim, er stefndi upp á
Dalnibbu, 1500 m háan tind.
Vegurinn var lagður fyrir láns-
fé, og hver einstakur, sem um
hann fer, verður að borga
norska krónu. Þannig borgast
vextir og afborganir vega-
lánsins. Við urðum vör við
þetta víða um þá vegi, sem
eingöngu eru ætlaðir ferða-
fólki, sem er að skemmta sér.
Auðvitað fórum við upp á
„Nibbuna“, skáskárum kletta
sem fyrr, og fórum yfir mörg
gil með fossandi jökullækjum.
Dalnibban sjálf er snjólaus
granítkollur, snarbrött og stór-
grýtt. Ekið er bílum upp á tind-
inn. Hann er sléttaður og um
hann handrið. Tindarnir í
kring eru litlu hærri, og allir
með sn;'ó frá vetrinum. Á ein-
um þeirra sáust blágrænir
jökulhamrar niður í hlíð. Eng-
an gróður sá þarna efra. Einna
áhrifamest var að horfa nið-
ur farna leið, snarbrattan
krókastíg vegarins.
Niður var aftur haldið að
vegamótum. Þarna er gesta-
heimili, sem heitir Djúpvatns-
hytta, og er þar seidur þeini
ferðamönnum. Vegurinn það-
an Já með Djúpavatni, undir
brattri hlíð með öræfagróðri.
Vatnið frá Djúpavatni fer suð-
ur og austur til Guðbrandsdals
eftir samfelldum dal, og má
heita brekkujaus. I dalnum
öllum eru urðarþrep miUi
stöðuvatna. Áuðskilið er,
hvernig skriðjökull ísaldarinn-
ar hefur vikið hór í áföngum
og skilið eftir ýtuhlöss sín, sem
stifla. Gróður var fyrst líkur
og á Holtavörðuheiði, en svo
fór að koma birkikjarr. Með-
fram vötnunum minnti það á
Krosshlíð í Ljósavatnsskarði,
en þrepin á Aðaldalshraun, þó
granítstórgrýti komi í stað
hrauns. — Byggð er þarna á
hverju þijepi, þorp af smá
kofum úr timbri, „hyttum“,
eins og Norðmenn nefna þá.
Þarna sáum við líka kýr og
geitur, heldur magurleitan fén-
að, enda haginn lélegur. Þessir
kofar eru flestir sumarbústað-
ir efnafólks úr bæjunum suð-
ur í landi. Okkur var sagt, að
þar væri margt af Oslóbúum á
sumrin. Stöku bændur oyggja
hér smásel til að selja sumar-
gestum mjólk. Góð veiði er tal-
in þarna í vötnunum, og lokk-
ar hún sumargesti.
Einstöku veðurbarðar furur
fara að sjást innanum bjark-
irnar uppúr urðarholtunum.
Brátt verður furan einvöld frá
vatni að fjallsbrún og i;m
þrepin. Marga tugi km er ek-
ið um furuskóga, sem sífellt
verða hærri og beinvaxnari.
Furan er einvaldsdrottning
þarna. Víða sést ekki hájurt á
skógarbotni, aðeins berar
ldappir og grámosi. Byggðin
er lítil í furuskóginum, einstaka
smábýli og stöðvar skógar-
manna við veginn. Þegar
lengra kemur niður í dalinn,
þrýtur furuna, og við taka
greni og lauftré. Nú er komið
í samfellda byggð. í miðjum
dal er vatn, álíka breitt og
Lögurinn á Héraði. Undirlend-
isræma er með vatninu og bæ-
ir í brekkulöggum. Flestar
brekkur eru skógivaxnar frá
bæjaröð til brúna. Sums stað-
ar er þó hjalli í hlíðinni og
önnur bæjaröð þar. Þessi dal-
ur nefnist Ottadalur og er af-
dalur Guðbrandsdals, en dal-
búar nefna sig Guðbrandsdæli,
eins og t. d. Hörgdælir nefna
sig Eyfirðinga,
Um sólsetrið beygði þussinn
inn í trjágöng, Sverari og há-
vaxnari bjarkir, en við höfð-
um séð áður, sveigðu saman
greinar sínar hátt yfir höfði
manns,
Komið var áður en varði að
búnaðarskólanum á Klónesi.
Þar var heimili þessara 35 ís-
lendinga í sex nætur og fimm
daga. Þarng er heimavistar-
skóli fyrir §4 bpendaefnj og
jafnmörg húsfreyjuefni. Allir
nemendur ypru nú i sumar-
leyfi. Húsráðendur og skóla-
stjórar, Kristine Hoove og Otto
Runeger, tóku á móti okkur.
Kristine er gift kona og á upp-
komin börn, en Otto er ein-
hleypur maður á fertugsaldri.
Sól skein í heiði að morgni
7. ágúst. Ekki bærðist hár á
höfði, og hitinn var 25—30 stig.
Þannig var veðrið alla dagana
i Guðbrandsdal. „Þið komuð
með sólsldnið,“ sögðu heima-
menn. Áður hafði verið kald-
ara. Annars þykir þar þurr-
viörasamt. Við sáum víða um
byggðina tæki með löngum
gúmmíslöngum til að vökva tún
og akra, og varð gosbrunnur á
enda. Þetta sást úr mikilli fjar-
lægð.
Húsin í Klónesi eru mikil og
mörg, öll með sama svip, þó
sum séu 100 ára en önnur ný-
leg, öll hlaðin úr jafnsverum
trjám, tjörguð rauðbrún og
gluggar hvítir. Þetta kalla þeir
„stokkverk“ og er elzta bygg-
ingarlag Norðurlanda. Öll eru
húsin í sama skógarrjóðri, og
sér ekki út úr bæjarþorpinu
nema fram á vatnið frá aðal-
byggingunni, en þaðan sér vel
yfir byggðina. Milli húsanna
eru blómabeð og birkigöng.
Þessar bjarkir kvað skólastjór-
inn mestu prýði staðarins. Þær
eru allar teinréttar, tíu til tólf
metra háar og sverar sem
símastaurar, flestar með lút-
andi greinum. Niðandi og foss-
andi vatnsmikill lækur fellur
milli húsanna. Öllum kemur
saman um að hér sé hinn ynd-
islegasti dvalarstaður. Sam-
ræmi við umhverfið, fegurðar-
skyn og smekkur lýsir af öll-
um verkum mannanna. Hvergi
er tildur eða eftiröpun. Ljúf-
mennska og umhyggja fyrir
gestunum var óþrotleg og fæð-
ið veizlukostur. Við nutum þar
kunnáttu húsfreyjunnar, sem
er hússtjórnarkennari.
Klónes er ekki stórbýli á ís-
lenzka vísu, aðeins 15 ha rækt-
að land heimavið og 5 ha tún
uppi í seli, sem er ofanvið
skóga. Að auki er 300 ha skóg-
ur, greni og laufskógur að
jöfnu. Skógurinn er hér, sem
annars staðar, kúahaginn,
Skólinn er mjög vinsæli af
körlum og konum. Margur
bóndasonur tekur héðan heim
með sér húsfreyjuefni,
Þennan morgun fórum við
um þveran dai og yfir vatnið
á þrú í mjódd nokkurri. Hand-
an við þrúna er ajlbreitt lág-
Jendi og stórt sveitaþorp. Þarna
er kaupfélag, mjóíkurstöð,
samkomuhúe, veitingahús og
kirkja, þriðja elzta kirkja
14 SAMVINNAN