Samvinnan - 01.03.1966, Qupperneq 11
JÓNAS JÓNSSON FRÁ
HRIFLU
ævi hans og störf.
Jónas Kristjánsson annaðist
útgáfuna.
Útgefandi: Sýslunefnd
Suður-Þingey j arsýslu.
Hinn 1. maí 1965 varð Jón-
as Jónsson frá Hriflu áttræður.
í tilefni þess ákvað sýslunefnd
Suður-Þingeyjarsýslu að votta
Jónasi virðingu sína og þökk
fyrir margsháttar störf hans
fyrir héraðið með því að gefa
út bók um ævi hans og störf.
Ottviti sýslunefndar, Jóhann
Skaftason, sýslumaður, fékk^
Jónas Kristjánsson magister til
þess að annast útgáfu bókar-
innar og gaf honum mjög
frjálsar hendur í þeim efnum.
Þó var frá hendi sýslumanns
áskilið, að í bókinni skyldi
vera æviágrip Jónasar frá
Hriflu, sýnishorn greina, sem
um hann hefðu verið skrifað-
ar og skrá yfir frumsamdar
bækur og bæklinga og blaða-
cg tímaritagreinar, svo tæm-
andi, sem kostur væri.
Samkvæmt þessu var svo
bókin unnin. Hún skiptist í
fjóra meginkafla auk formáls-
orða Jónasar Kristjánssonar.
Hefst hún á Æviágripi, eftir
Jónas Kristjánsson. Þar er
gerð grein fyrir ætt Jónasar
Jónssonar, æskustöðvum og
uppvexti. Því næst menntun
hans innanlands en lengstur
er kaflinn um námsferil hans
og skólavist erlendis. Kennir
bar margra grasa og mikils
fróðleiks, sem heita má algjör
nýung fyrir lesendur og .hefur
þeim þætti í ævi Jónasar aldrei
verið gerð nein skil fyrr en
þarna. Þá er gerð grein fyrir
kvonfangi Jónasar, heimili og
fjölskyldu og að lokum kenn-
arastörfum, samningu kennslu-
bóka og ritstjórn og skóla-
stjórn á vegum Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga.
Allt er Æviágripið drjúgt til
skilnings á þeim grundvelli,
sem ævistörf og afköst Jónasar
Jónssonar hvíldu á.
Annar kafli bókarinnar er
Stjórnmálaþættir, eftir Aðal-
geir Kristjánsson skjalavörð.
Stjórnmálasaga Jónasar
Jónssonar er svo mikil að vöxt-
um, að henni verða engin tæm-
andi skil gerð í stuttum bók-
arkafla, enda ekki til þess
stofnað. Aðalgeir tekur þann
viturlega kost, að gera grein
fyrir nýrri flokkaskipun á öðr-
um tug aldarinnar og afskipt-
um Jónasar af henni og stikla
síðan á stóru um þingmennsku,
ráðherradóm og baráttu fyrir
málum innan alþingis og utan.
í þessu yfirliti dregur hann
einkum fram þau mál, sem
varpa skýrustu Ijósi á megin-
stefnu Jónasar í landsmálum.
í lokaorðum stjórnmálaþátt-
anna dregur Aðalgeir Kristj-
ánsson saman í skýrum og
skarplegum dráttum ályktun
og niðurstöður, sem veruleg-
ur ávinningur er að til fróð-
leiks og skilnings.
Að loknum stjórnmálaþátt-
um kemur hið eina beina fram-
lag Jónasar Jónssonar til bók-
arinnar, en þar svarar hann í
örstuttu máli nokkrum spurn-
ingum varðandi stefnu hans í
þjóðmálum.
Þriðji meginkafli bókarinn-
ar heitir Kveðjur. Eru það
greinar og ræður, sem flest-
ar hafa birzt áður eftir 10
nafngreinda höfunda. Meðal
þeirra eru Sigurður Nordal,
Halldór Kiljan Laxness, Sverr-
ir Krlstjánsson og Steindór
Steindórsson.
Fjórði og síðasti meginkafli
bókarinnar er svo Ritskrá Jón-
asar Jónssonar. Ritverkunum
er raðað í fimm undirflokka:
1. Bækur og ritlinga, 2. Útgáf-
ur, sem jafnan fylgja formálar
eftir J.J., 3. Formálar og grein-
ar í öðrum bókum, 4. Greinar
í tímaritum, 5. Blaðagreinar.
Ekki er Ritskrá þessi að fullu
tæmandi. í hana vantar grein-
ar, sem Jónas hefur skrifað í
erlend blöð, sömuleiðis þing-
skjöl og þingræður, nema þær
hafi verið prentaðar í blöðum
og þrátt fyrir mikla og ná-
kvæma leit í blöðum og tíma-
ritum er alveg víst að eitthvað
er þar ótalið, en mikið er það
ekki. Er Ritskráin harla mikil
að vöxtum og skipta ritgerð-
irnar nokkrum þúsundum.
Bók þessi er falleg og vönd-
uð að öllum frágangi og prýdd
mörgum myndum. Hún er
prentuð í Prentsmiðjunni
Eddu og gefin út í 900 tölusett-
um eintökum. Flest þeirra fóru
til fastra áskrifenda, en nokk
ur fást þó í bókabúðum með-
an upplag endist.
Bókin er fram úr skarandi
vel rituð, og til mikils sóma
útgefanda og höfundum. Er
vandséð hvort sýslunefnd Suð-
ur-Þingeyjarsýslu gat á verð-
ugri hátt heiðrað hinn aldna
þjóðmálaskörung og rithöf-
und á áttræðis afmæli hans.
Norman Vincent Peale:
VÖRÐUÐ LEIÐ TIL
LÍFSHAMINGJU.
Baldvin Þ. Kristjánsson
íslenzkaði.
Bókaútgáfan Lindin s.f. 1965.
Þetta er allstór bók, 286 bls.
og skiptist í 17 kafla. Höfund-
urinn er víðfrægur prestur og
kennimaður. Eins og allir mjög
góðir kennarar, kennir hann í
dæmisögum og tekur þær
Framh. á bls. 25.
GUFUKATLAR
m í7==í
Útvegum gufukatla erlendis
frá með stuttum fyrirvara.
Veitum verkfræðilega aðstoð.
JÖTUNN h.f.
Hringbraut 119 — Reykjavík — Sími 20500
SAMVINNAN 11