Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1966, Síða 13

Samvinnan - 01.03.1966, Síða 13
Fjöldamorð Spánverja í Harleem, er sú borg- hafði gefist upp fyrir þeim eftir harða vörn. Fremst er hrúga hauslausra búka, en fjær stendur böðull með brand reiddan og hjá honum klerkur með krossmark. í baksýn eru fullskipaðir gálgar. Niðurlenzka herskiplð Fin de la Guerre (Stríðsiok), sem borgar- búar í Antwerpen, sem þá var helzta verzlunarborg álfunnar, gerðu út. Það þótti einn skæðasti sjódreki sinnar tíðar, en var þó fljótlega unnið af Spánverjum. Báðar myndirnar á síðunni eru af samtíma koparstungum. á Niðurlöndum leiðingin varð blóðug styrjöld og fjölda- morð, sem kveiktu slíkt hatursbál milli tveggja hlutaðeigandi þjóða, að það er naum- ast að fullu kulnað enn. þeirra, er þeir ræddu við sendi- menn Frakkakonungs, sem spurði eftir höfðingja þeirra: „Við erum allir konungar!" Enda fór svo að Alva her- togi réð ekki við neitt. Upp- reisn var hafin undir stjórn Vilhjálms, sem gerði út fjölda víkingaskipa, er höfðu bæki- stöðvar í Englandi og herjuðu á skip Spánverja, svo og klaustur og kirkjur kaþólskra. Meirihluti fólks í norðurfylkj- um landsins hafði nú snúist til Kalvínstrúar, og voru styrk- ustu stuðningsmenn hennar þar — líkt og í Frakklandi — úr hópi lágaðalsmanna og borgara. Uppreisnarmenn voru kallaðir les Gueux, sem er franska og þýðir betlarar; var það í upphafi háðungarheiti gefið af hinum hrokafullu and- stæðingum, sem þóttust hafa ráð þeirra allt í hendi sér, en varð síðar heiðursnafn, eins og oftar hefur komið fyrir við álíka tækifæri. Vilhjálmur af Óraníu var með snjöllustu stjórnmála- mönnum sinnar aldar. Hann var samkvæmismaður mikill og skemmtinn, og virðist því kenningarnafn hans, „hinn þögli“, koma úr hörðustu átt, en það fékk hann sökum þess, hve vel hann kunni að leyna því, sem honum bjó í brjósti, ef þess þurfti við. Hann var greindur vel og ofstækislaus, sem meðal annars kom fram í viðhorfum hans til trúmála. Hann var fæddur í lútherskri fjölskyldu, gerðist kaþólskur er hann gekk í þjónustu Karls keisara, varð síðan aftur lút- herskur og loks kalvínskur, er sýnt var að landar hans höll- uðust helst að þeirri grein mót- mælendahreyfingarinnar. Trú- arhiti hans var með öðrum orðum í minnsta lagi eftir því sem á þeim tímum gerðist, og ekkert var honum fjær skapi en ofsóknir á hendur mönn- um vegna trúarskoðana. Sjóvíkingar hans höfðu sig æ meir í frammi og þar kom að þeir hertóku hafnarbæinn Briel við mynni fljótsins Maas. Þetta nægði til þess, að allt landið logaði í uppreisn; í hverri borginni af annarri gripu menn til vopna, drápu þá Spánverja er til náðist eða hrökktu þá á brott. Vilhjálm- ur sneri þá aftur með her manns, sem hann hafði dregið að sér í Þýzkalandi, og auk þess átti hann von á stuðningi frá Coligny aðmírál, leiðtoga Húgenottanna frönsku. En þær vonir urðu að engu á Bartólómeusarnóttinni frægu 1572, er Coligny var myrtur ásamt þúsundum stuðnings- manna sinna. Þetta varð til þess að Spán- verjar náðu yfirhöndinni á ný. Þeir tóku hvern bæinn á fætur öðrum og fóru hvarvetna fram með dýrslegri grimmd og sadisma, sem löngum hefur einkennt Spánverja í stríði, hvort heldur þeir hafa barist við sjálfa sig eða aðra. En þrátt fyrir aðskiljanlega hern- aðarsigra fór því fjarri, að uppreisnarandinn væri kæfð- ur. „Það er kannski ekki svo undarlegt,“ var Alva hertogi einu sinni svo fyndinn að segja, „ég hef í rauninni ekki lagt mig verulega fram um að vingast við fólkið." Hann var orðinn þreyttur á öllu blóðbaðinu og fékk kónginn til að leysa sig frá störfum. Skömmu síðar biðu Spán- verjar mikinn ósigur við Leid- en. Þeir höfðu lengi setið um þá borg með miklu liði, og voru verjendur hennar að þrotum komnir. Tók Vilhjálmur þá til bragðs að rjúfa skörð í flóð- garðana á ströndinni útifyrir, með þeim árangri að flóðbylgja mikil skall á herbúðum Spán- verja og drekkti þeim í hrönn- um. í þakkarskyni fyrir fræki- lega vörn borgarbúa, stofnaði Vilhjálmur háskóla í Leiden, og varð hann brátt eitt helzta lærdómssetur álfunnar. Nokkru síðar gerði Filippus Alexander Farnese, son Mar- grétar systur sinnar, að land- stjóra Spánverja á Niðurlönd- um. Hann var klókur náungi og brá á það ráð að rægja sundur kaþólska Niðurlendinga og hina, er mótmælendatrú játuðu, en Vilhjálmur var þá langt kominn með að safna þeim öllum undir sinn fána. Þetta tókst furðanlega og varð fyrsti vísirinn að klofningi Niðurlanda í Holland, þar sem mótmælendur höfðu forustuna, og hina harðkaþólsku Belgíu. Skömmu síðar var Vilhjálm- ur myrtur að tilhlutan Spán- verja, en Mórits sonur hans, sem þá gerðist forustumaður Hollendinga, reyndist snilldar hershöfðingi og sigursæll í orrustum við her Spánarkóngs. Tókst honum loks (1609) að leiða frelsisbaráttuna, ein- hverja þá frækilegustu í sög- unni, til lykta með sigri Hol- lendinga. Sá sigur skipti sköpum með þeim þjóðum, er hildarleikinn höfðu háð; Spánarveldis beið nú síaukin hnignun og vesöld, en hins litla Holiands glæsi- leg framtíð. Fullur fjand- skapur hélst lengi milli ríkj- anna tveggja og er varla að fullu kulnaður enn; þannig vakti það töluverða andúð í Hollandi, er konungsfjölskylda þeirra mægðist hinni spænsku nýverið, og rifjuðu þá ýmsir upp minningar frá dögum her- togans af Alva. í þeim átökum, sem áttu sér stað milli Hollend- inga og Spánverja að frelsis- stríðinu loknu, voru hinir fyrr- nefndu að jafnaði happasælli; unnu meðal annars nýlendur Portúgala — sem um skeið heyrðu undir Spánakonung — í Austur-Indíum og færðu síð- an veldi sitt yfir mestöll Mal- ajalönd. dþ. SAMVINNAN 13

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.