Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1966, Side 19

Samvinnan - 01.03.1966, Side 19
Föndurkrókurinn LUNDINN er sjófugl, einn af þeim, sem kallaðir eru svartfuglar. Þeir verpa í björgum við sjó, fugla- björgunum svo nefndu. Lundinn hefur þó þann hátt á sinni hreiðurgerð, að hann grefur holur inn í jarðveginn og verpir þar. — Nefið á honum er sér- kennilegt, hátt og þunnt. Hann er stundum nefndur „prófastur" í gamni, því að hann ervirðulegur fugl, þegar hann situr við hreið- ur sitt, svartur á bak og með svartan „presta- kraga“ um hálsinn. — Lundann sagið þið út á svipaðan hátt og fuglana, sem komið hafa hér á föndursíðunni undanfarið. — Efnið í hann er 5 mm birkikrossviður. — Auðvelt er að teikna á bakhlið hans, hún er alveg eins og þessi, sem þið sjáið hér. — Tapparnir x ganga nið- ur í pall, sem smíða þarf undir fuglinn. — Næst tökum viö fyrir íslenzku húsdýrin. G.H. VERALDARSAC Menntamálaráð hefur gef- ið út á snjöllu íslenzku máli tíunda hluta af mest um- ræddu og dáðu veraldar- sögu, sem rituð hefur verið í menningarlöndum í tíð nú- lifandi manna. Það er bók Will Durants, sem áður hef- ur verið getið í þessu tíma- riti. Menntamálaráð hefur vandað mjög tll þessarar út- gáfu og vill halda því verki áfram þangað til þau níu bindi, sem enn eru ekki þýdd á íslenzku verði gefin út í fastri röð, ef kaupendum líkar framhaldsútgáfan ekki miður en byrjunin. Á næstu tveimur árum kemur út saga Grikklands í tveimur bind- um jafnstórum Rómaveldi. Þá ætti að koma fyrsta bind- ið sömu stærð. Þar er rak- in saga hinna fornu menn- ingarþjóða Egypta, Indverja, Kínverja, Assyríumanna, Persa og Gyðinga. Um Róm- verja og Grikki er áður tal- að. Næst þeim kemur bindi um sigur Kristindómsins um gjörvalla Norðurálfu, eftir að veldi Grikkja og Róm- verja voru hrunin. Þá er komið fram um miðaldir. Röðin kemur þá að tveimur voldugum hreyfingum: siða- skiptunum og endurreisn lista og vísinda. Þeim fylg- ir bindi um hið nýja jafn- vægi. Þá rísa nú stórveldi: Frakkland, Spánn og Eng- land. Landafundir og hin nýja heimsmyndun, sem grundvallast á heimsskoðun Kópernikusar hafa djúptæk áhrif á menningu þjóðanna. Lítil lönd eins og Belgía og Holland eignast listamenn í þúsundatali, en upp yfir alla hina gnæfa Rubens og Rem- brandt. Síðustu þrjú bind- in kennir Durant við þrjá volduga menn: Lúðvík XIV. Voltaire og Rousseau. Ekki er hér að tala um ævisögur þessarra valdamanna í and- legum og veraldlegum efn- um, heldur yfirlit um fjöl- þætta þróun þjóða heimsins hin umræddu tímabil. Síð- asta bindi þessa mikla sögu- verks lýkur með hruni ein- veldisins í Frakklandi 1789. Þá er talið að hefjist hin nýja öld. Sú viðburðasaga verður rakin af nýjum höf- SAMVINNAN 19

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.