Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1966, Síða 29

Samvinnan - 01.03.1966, Síða 29
> X> * Lx::V:$c<J kfc-írtvfc*’ fcii-Xv.^x- ilMÍ pilsefni med íofnum teygjustreng margir litir SÖLUSTAÐIR: KAUPFÉLÖGIN UM LAND ALLT OG SÍS AUSTURSTRÆTI storknuðu blóði. Alí Baksj var vakandi. Stór dökk augu hans störðu á þá, döpur og vonlaus einsog augu dádýrs, sem geng- ið hefur í gildru. Kristniboðinn reyndi að tala, en honum fannst sem háls hans myndi sþringa. Hann gat ekki horfst í augu við Alí, en féll á kné við hlið þeirra. Leir- krukka með vatni stóð á kofa- gólfinu. Hann vætti vasaklút sinn í því og þvoði fætur Súleiku varlega. Þessa litlu brúnu fætur, sem höfðu hlaupið svo fallega! Bráðum — að liðnum fáeinum stuttum klukkustundum — yrð’. þessum litlu fótum troðið lif- andi niður í gröf. Hún yrði grafin uppað hálsi, svo að litla úfna höfuðið hennar stæði eitt uppúr sandinum. Barn, sem þótti vænt um dúkkur og dans- aði i sólskininu. Hún yrði grýtt einsog óður hundur, hver mað- ur myndi ganga í annars spor t’l að kasta sínum steini . . . Hönd snerti handlegg hans og hann heyrði skipandi hvísl Grants. Hann umlaði: „Verði þinn vilji,“ og gerði krossmark. Hann reikaði til dyranna og fann Alí stara á sig augum •hunds, sem er yfirgefinn. Aftur nóttin, dýrð stjarn- anna og svalt loftið eftir stybb- una í kofanum. Þvínæst var hann staddur í tjaldinu, þótt hann vissi ekki hvernig hann hafði komizt þangað. Grant hafði orðið eftir tilað ræða við Sjeik-el-Avalinn og aðra öld- unga þorpsins. Mr. Tomlinson var honum þakklátur fyrir fjarveruna. Hann skalf einsog af köldu þegar hann kraup við rekkju sína og reyndi að biðja. „Verði þinn vilji . . . Verði þinn vilji . . .“ Þessi orð virt- ust nú án allrar þýðingar og færðu enga fróun. Hræðilegar sýnir leituðu á huga hans. Hann reyndi að víkja þeim frá sér, en þær sóttu á. Höfuð þeirra myndu minna á kókoshnetur, þar sem þau stæðu uppúr sandinum... og þau myndu hrökkva til eins og kókoshnetur, þegar stein- arnir hittu þau . . . Bráðum rynni blóð og tennur brotn- uðu . . . En þau myndu brosa — brosa í augu hvors annars unz hvæsandi steinflísarnar hefðu lokað þessum fögru aug- um að eilífu . . . Hann gat ekki fest hugann við bænirnar og stóðst ekki lengur .hugsanir sínar. Grant hafði skilið viskíflöskuna sína eftir á borðinu. Hann hellti slatta í krús og drakk óbland- að. Þá sá hann á litbreyting- um birtunnar í tjaldinu að dögun var í nánd. Hann stóð og hlustaði. Já, borpið var vaknað og raddir heyrðust. Fólkið myndi vera farið að safnast saman á auða svæðinu. Hann vissi að Aúdh- alar grýttu sakborninga sína ætíð við sólarupprás. Hann svalg töluvert af viskíi í viðbót. Það virtist leysa eitt- hvað í huga hans úr viðjum og hann fann nú að hann gat beðið. „Ó, Guð, komdu í veg fyrir þennan skelfilega atburð. Bjargaðu þeim með krafta- verki . . . Drottinn, sýndu miskunnsemi . . . Góði Guð, verði þinn vilji . . .“ Tíminn virtist hafa staðnað. Hann hafði ekki hugmynd um hve lengi hann hafði beðið. Hann heyrði óp útifyrir og kom til sjálfs sín. Hann gekk að tjalddyrunum og starði í átt til auða svæðisins. Hann gat séð nokkurn hluta mannfjöld- ans, sem hafði safnazt þar saman. Þeir höfðu skipað sér í raðir líkt og áhorfendur á krikketkeppni. Yfir höfuð þeirra sá hann handlegg há- vaxins Araba sveiflast í kast- hreyfingu, og síðan kvað við villimannlegt öskur . . . Rétt- arhöld grjótsins voru byrjuð ... Bænir hans höfðu ekki verið heyrðar! Hann sneri aftur inn í tjaldið og kastaði sér á grúfu í rúmið. Hann gat ekki um annað hugsað en litlu brúnu fæturna hennar Súleiku. Þeir mundu vera aumkvunarlega örsmáir í kaldri dimmu graf- arinnar. Frá auða svæðinu bárust SAMVINNAN 29

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.