Fréttablaðið - 21.08.2009, Page 6

Fréttablaðið - 21.08.2009, Page 6
6 21. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR Mánudagstilboð GLÆNÝ STÓRLÚÐA SMJÖRKRYDDMARINERUÐ LÚÐUSTEIK LÚÐUSTEIK Í LEMMON & KÓRÍANDER GLÆNÝ LAXAFLÖK 1.790 UTANRÍKISMÁL Mikilvægt er fyrir bæði Atlantshafsbandalagið (NATO) og íslensk stjórnvöld að halda uppi ratsjáreftirliti með rat- sjám bandalagsins, sagði Anders Fogh Rasmussen, framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins, eftir fund með Össuri Skarphéð- inssyni utanríkisráðherra í utan- ríkisráðuneytinu í gær. „Eftirlit og eftirlitskerfi eru algerlega nauðsynleg hverju full- valda ríki,“ sagði Rasmussen. Spurður um mikilvægi kerfisins fyrir bandalagið sagði hann að bandalag sem snerist um varn- ar- og öryggismál þyrfti að eiga kerfi sem fylgdist með því sem gerðist á yfirráðasvæði banda- lagsríkja. Rasmussen sagðist vonast til þess að loftrýmisgæsla banda- lagsríkja hér við land héldi áfram næstu árin. „Kjarni bandalags- ins er samstaða. Sú samstaða er ástæða þess að bandalagsþjóð- ir hafa tekið þátt í eftirlitsflugi við Ísland. Það er órjúfanlegur hluti þess að vera í bandalagi að aðstoða aðrar bandalagsþjóðir í málum sem þessum. Ég vona að þetta fyrirkomulag geti haldið áfram á komandi árum, í sam- starfi við íslensk stjórnvöld.“ Rasmussen vildi ekki tjá sig um mögulegar afleiðingar þess verði Varnarmálastofnun lögð niður. Hann sagði Össur hafa fullviss- að sig um að Ísland hygðist upp- fylla skyldur sínar við NATO. Það væri íslenskra stjórnvalda að ákveða hvernig verkefnum tengd- um bandalaginu væri fyrir komið í stjórnsýslunni. Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra gerði Rasmussen grein fyrir pólitískum og fjár- hagslegum afleiðingum beiting- ar breskra stjórnvalda á hryðju- verkalögum gegn íslenskum hagsmunum. Hún lagði áherslu á hversu slæmt fordæmi þetta væri í samskiptum bandalagsríkja. Rasmussen var fyrr um dag- inn spurður um beitingu hryðju- verkalaganna. Hann sagði það ekki hlutverk NATO að hafa afskipti af tvíhliða samningum milli bandalagsríkja. „Ég hef að sjálfsögðu miklar áhyggjur af mögulegri pólitískri spennu milli bandalagsríkja, en mun sem framkvæmdastjóri NATO ekki grípa til neinna aðgerða,“ sagði Rasmussen. Á fundi Rasmussens og utan- ríkisráðherra lagði Össur áherslu á mikilvægi norðurslóða. „Við vorum sammála um að mikilvægi þeirra muni aukast á næstu árum og áratugum þegar nýjar skila- leiðir opnast og norðursvæðin verða mikilvægari vegna vinnslu olíu og gass,“ segir Össur. Mikil- vægt sé að NATO fylgist vel með á norðurslóðum, án þess þó að nokkuð kalli á hernaðaruppbygg- ingu á svæðinu. brjann@frettabladid.is NATO vill loftrýmis- gæslu hér á landi Framkvæmdastjóri NATO segir eftirlit með ratsjárkerfi bandalagsins hér á landi nauðsynlegt. Það sé ekki hlutverk NATO að hafa afskipti af beitingu breskra stjórnvalda á ákvæði í hryðjuverkalögum gegn íslenskum hagsmunum. FUNDIR Anders Fogh Rasmussen fundaði Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í hádeginu í gær. Hann flaug af landi brott seinnipart dags í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Skólastjórastaða ómönnuð Enginn skólastjóri er að störfum við Grunnskólann á Þingeyri. Staðan hefur verið auglýst laus til umsóknar og rennur fresturinn til að sækja um út 27. ágúst. Búið var að ráða í stöð- una í vor, en skólastjórinn fyrrverandi lét fljótlega af störfum af persónuleg- um ástæðum. VESTFIRÐIR Borað á Rifi Hundrað metra djúp hola verður boruð á Rifi um helgina, til að kanna hvort líkur séu á að finna þar jarðhita. Snæfellsbær stendur fyrir verkefninu. Að boruninni lokinni verður ákveðið hvort frekar verður borað á svæðinu. SNÆFELLSNES DÓMSMÁL Guðríður Haraldsdótt- ir, ritstjóri Vikunnar, hefur hafn- að samtals tíu milljóna króna miskabótakröfum fjölskyldu úr Sandgerði vegna umfjöllunar um málefni hennar í nýlegu tölublaði Vikunnar. Telur fjölskyldan að umfjöllunin, sem ekki var merkt höfundi, hafi verið full af grófum ærumeiðingum og að hún hafi brot- ið gegn friðhelgi einkalífs hennar. Fjölskyldan hyggst fara með málið fyrir dómstóla. Í greininni er rætt við Valborgu Svanholt Níelsdóttur, sem ber þungar sakir á fyrrverandi eigin- mann látinnar dóttur sinnar. Hún segir segir hann hafa beitt dóttur- dóttur sína ofbeldi og hafi rænt henni, hann skoði barnaklám og segir frá kærum á hendur honum fyrir misnotkun sem síðar voru felldar niður. Tvö mál verða höfðuð á hendur Guðríði. Annað höfðar faðirinn, sem er bandarískur, og hitt höfð- ar hann ásamt núverandi konu sinni fyrir hönd þrettán ára dótt- ur þeirra, en konan hefur nú ætt- leitt hana. Í greininni er dóttirin nafngreind, fjallað um sjálfsvígs- hugleiðingar hennar og sálfræði- aðstoð, hún kölluð Öskubuska og birtar af henni myndir án hennar samþykkis. Málin verða þingfest í Héraðs- dómi Vesturlands í byrjun sept- ember. Vilhjálmur H. Vilhjálms- son, lögmaður fjölskyldunnar, segist meðal annars munu byggja á því að Birtíngur og blaðamenn útgáfunnar, þótt það eigi að sjálf- sögðu ekki við um alla, séu síbrota- menn á þessu sviði, enda hafi hann unnið fimm meiðyrðamál gegn félaginu og starfsmönnum þess undanfarið ár og tvö vegna ólög- mætra myndbirtinga. Nýlegum dómi yfir blaðamanni Vikunnar, sem dæmdur var fyrir meiðyrði vegna ummæla við- mælanda, hefur nú verið vísað til Mannréttindadómstóls Evrópu með fulltingi Blaðamannafélagins. - sh Fjölskylda krefur ritstjóra Vikunnar um milljónabætur fyrir ærumeiðingar: Stefnt vegna ummæla viðmælanda FORSÍÐUVIÐTALIÐ Valborg Svanholt sagði í viðtalinu að fyrrverandi tengda- sonur hennar færi illa með barnabarn hennar. EFNAHAGSMÁL Þeir sem voru með undir tvöhundruð þúsund krón- um í laun í maí í fyrra, eru nú að meðal- tali með „veru- lega minni tekj- ur en þá,“ segir í Vefriti fjár- málaráðuneytis- ins. Um leið hafa þeir tekjuhæstu misst um helming tekna sinna. Þeir sem voru með tekjur á bil- inu tvöhundruð þúsund til 250.000 krónur er eini hópurinn sem stend- ur í stað milli ára, en þeir, sem til- heyra hærri tekjuhópum, hafa allir lækkað og hlutfallslega meira eftir því sem tekjurnar eru hærri. Í heildina hafa ráðstöfunartekj- ur lækkað um tæp fimmtán pró- sent síðan í fyrra. Fimmhundruð manns voru með yfir tvær milljónir á mán- uði 2008. Þetta fólk er nú að jafn- aði með eina milljón í tekjur. Þeir 4.500 sem voru með yfir milljón á mánuði eru komnir niður í 750.000 krónur að meðaltali. Í vefritinu er einnig bent á að 37.000 manns hafi horfið af stað- greiðsluskrá skatta á tímabilinu. Um leið hafa fimmtán þúsund nýir bæst inn á hana. Samtals eru skatt- greiðslur 5,6 prósentum lægri. - kóþ Fjármálaráðuneytið segir ráðstöfunartekjur lækka um fimmtán prósent milli ára: Lægstu og hæstu tekjur lækka FJÁRMÁLARÁÐHERRA Ráðuneyti Steingríms J. Sigfússonar sendi frá sér vefrit í gær, þar sem farið er yfir lækkun tekna einstaklinga milli ára. Ráðherrann sjálfur segist fullviss að íslenskt samfélag hafi alla burði til að sigrast á erfiðleik- unum, þótt miklir séu. MENNTUN Menntaráð Reykjavíkur tekur umsókn Menntaskólans, um starfsemi nýs einkarekins grunn- skóla í Heilsuverndarstöðinni í Reykjavík, fyrir á fundi sínum á miðvikudag. Grunnskólar í Reykja- vík verða settir á mánudaginn. Kjartan Magnússon, formað- ur menntaráðs, segist engu geta svarað um hvort líklegt sé að skól- inn taki til starfa í haust. Ekki sé útséð með það enn. Edda Huld Sig- urðardóttir, einn aðstandenda skól- ans, segir að skólinn geti tekið til starfa um leið og leyfi fæst. Stað- an sé erfið fyrir foreldra sem vita ekki hvar bör þeirra hefji nám á næstunni. - kóp Grunnskólar settir eftir helgi: Enn óvissa um nýja skólann í Reykjavík HEILSUVERNDARSTÖÐIN Aðstandendur vonast til að nýr grunnskóli hefji störf í húsinu í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ákærður fyrir árás með glasi Rúmlega tvítugur maður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, en hann sló 26 ára konu með glerglasi í andlitið á kaffihúsi á Akureyri í maí. Konan hlaut fjölda sára á höfði og í andliti og krefst hálfrar milljóna króna í bætur. DÓMSTÓLAR Ætti frekar að setja fé í að minnka skuldir hinna verst stöddu en skuldir allra? Já 34% Nei 66% SPURNING DAGSINS Í DAG: Hefur þú farið í leikhús á árinu? Segðu skoðun þína á visir.is. 142 svínaflensutilfelli Alls hafa greinst 142 tilfelli með staðfesta svínaflensu (inflúensu A(H1N1) frá því í maí 2009 á Íslandi samkvæmt upplýsingum frá veiru- fræðideild Landspítalans. Þá hafa samtals borist 577 tilkynningar um inflúensuna frá heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum landsins frá 29.júní. HEILBRIGÐISMÁL KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.