Fréttablaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 23
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
„Ég gerði Pabellón, sem er
venesúleskur þjóðarréttur,“ segir
Valenttina Griffin, stjórnarmað-
ur í Venezuela félaginu á Íslandi.
„Hann er skemmtilegur vegna
þess að við notum nautakjöt, svart-
ar baunir, steikt plantain og hvít
hrísgrjón þannig að hann saman-
stendur af fjórum ólíkum þátt-
um.“
Valenttina hefur búið á Íslandi
í tæp fimm ár og segist oft gera
Pabellón hér á landi. „Í Venesúela
er þessi réttur eins og soðinn fisk-
ur með kartöflum á Íslandi. Þetta
er bara venjulegur réttur heima
hjá okkur,“ segir Valenttina. „Það
er hægt að finna öll hráefnin í
hann hér á landi. Við venesúleska
fólkið á Íslandi gerum réttinn oft
þegar við hittumst,“ upplýsir Val-
enttina og segir félagslífið í Venez-
uela félaginu gott.
Valenttina segir mikla matar-
hefð í Venesúela. „Fólkið þar er
alltaf að elda og finna upp á ein-
hverju nýju,“ útskýrir hún. „Mat-
urinn okkar er kryddaður og litrík-
ur. Við notum líka fullt af hlutum
í matargerðina sem ekki eru til á
Íslandi. Mér finnst samt maturinn
á Íslandi mjög góður. Ég elska til
dæmis flatbrauð og hangikjöt.“
martaf@frettabladid.is
Elskar íslenskt flatbrauð
Valenttina Griffin er frá Venesúela og finnst íslenskur matur mjög góður. Hún gerir oft venesúleskan
þjóðarrétt sem er að sögn hennar heimilismatur líkt og fiskur og kartöflur fyrir okkur Íslendinga.
1 kg nautasíða, Carne
Mechada
Einn stór laukur
Ein dós tómatar í
bitum, u.þ.b. 400 g
Ein stór rauð
paprika
50 g steinselja
4 hvítlauksgeirar
Salt og pipar eftir smekk
Skerið nautakjötið í
bita og sjóðið í tuttugu
mínútur með tveimur
stöppuðum hvítlauks-
geirum og smá salti.
Látið kjötið kólna
og rífið svo í tægjur.
Skerið laukinn og
paprikuna og steikið
með restinni af hvít-
lauknum í olíu í djúpri
pönnu. Bætið kjötinu
út í áður en laukurinn
verður brúnn. Bætið
tómötunum við eftir
að kjötið hefur steikst
í nokkrar mínútur og
látið allt malla við
lágan hita í tuttugu
mínútur.
Svartar baunir, Cara-
otas Negras
1 kg svartar baunir
1 stk. stór laukur
1 stk. stór rauð paprika
2 hvítlauksgeirar
50 g steinselja
4 msk. sykur
Látið svörtu baunirnar
liggja í köldu vatni í
klukkutíma og hreinsið
þær. Sjóðið baunirnar
þangað til þær verða
mjúkar í um það bil
eina klukkustund.
Saxið laukinn, papr-
ikuna og steinseljuna
niður. Bræðið sykurinn
á pönnu við
lágan hita
og bætið
lauknum,
paprikunni
og stein-
seljunni
út í þegar
hann er allur
bráðnaður.
Bætið svo hvítlaukn-
um út í og steikið í
stutta stund áður en
öllu er blandað saman
við baunirnar og látið
malla við lágan hita í
25 mínútur.
Steikt plantain
2 til 3 stórar plantain
Nóg af kornolíu til að
steikja upp úr.
Skerið plantain í
þunnar sneiðar og
steikið í olíu þar til
þær verða brúnar
báðum megin. Borið
fram með soðnum
hrísgrjónum.
PABELLÓN
FYRIR 6
Valenttina segir
mat í Venesúela
litríkan og fullan af
kryddi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
GLEÐIORG verður við Óðinstorg á Menningarnótt frá 14
til 22. Fram koma landsþekktir skemmtikraftar á borð við
Ragnheiði Gröndal og Lay Low. Hátíðin er haldin til styrktar
söfnunarátakinu Á rás fyrir Grensás. Brauðbær og Súkkulaði
og rósir verða með veitingatjald á torginu.
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
H
rin
g
b
ro
t
frábært fl ugeldaútsýni til Reykjavíkurhafnar
og næg bílastæði
Perlan býður ykkur velkomin á menningarnótt. Hefjið
menningarröltið á belgískum vöfflum á 4. hæð Perlunnar
eða njótið flugeldanna frá höfninni yfir 4ra rétta kvöldverði á
veitingastaðnum á 5. hæð. Hjá Perlunni eru næg bílastæði!
Gjafabréf Pe
rlunnar
Góð tækifæ
risgjöf!
4ra rétta tilboð
· Reykt önd með fíkjum, valhnetum og rauðvínsgljáa ·
· Humarsúpa rjómalöguð með grilluðum humarhölum ·
· Lambahryggur með lambaskanka og rósmarínsósu ·
* E Ð A *
· Fiskur dagsins útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar ·
· Skyr „Tonka crème brûlée“ með karamelluís ·
6.890 kr.
Með sérvöldu víni með hverjum rétti: 10.990 kr.