Fréttablaðið - 21.08.2009, Side 22
22 21. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ var
settur í fyrsta skipti í gær að Brúar-
landi í Mosfellsbæ, en það var fyrsta
skólahús Mosfellinga. Um bráða-
birgðahúsnæði er að ræða en Guð-
björg Aðalbergsdóttir skólameistari
segir ánægjulegt að hefja starfsem-
ina á jafn virðulegum stað. „Húsið
hefur allt verið tekið í gegn að undan-
förnu en síðan stendur til að byggja
4.000 fermetra hús í hjarta bæjarins.
Fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir því að
það yrði tilbúið árið 2011 en nú ligg-
ur fyrir að byggingunni seinkar um að
minnsta kosti ár.“
Skólinn kennir sig við auðlindir og
umhverfi í víðum skilningi og er þar
jafnt átt við náttúruauðlindir og mann-
auð með áherslu á lýðheilsu og menn-
ingu. Þá er stefnt að því að gera um-
hverfi skólans að lifandi þætti í skóla-
starfinu enda skólinn umlukinn gróðri,
fellum og fjöllum. „Við munum leggja
áherslu á náttúrufræði, virðingu fyrir
umhverfinu og hvernig megi njóta þess
og nýta á skynsamlegan hátt.“
Hugmyndafræði og kennsluhætt-
ir skólans einkennast af því að nem-
endur eru virkir þátttakendur í eigin
námi. Notaðar verða verkefnamiðað-
ar kennsluaðferðir í stað fyrirlestra
en þær gera ráð fyrir því að nemand-
inn sé ávallt virkur í sínu námi og læri
með því að leysa verkefni. „Slíkar að-
ferðir og stór skrifleg lokapróf fara
illa saman og verður því notast við
leiðsagnarmat þar sem nemandinn
fær markvissar umsagnir frá kennar-
anum fyrir verkefnavinnu og áfanga-
próf og um leið tækifæri til að bæta
sig,“ segir Guðbjörg. Hún segir upplagt
að nota tækifærið og innleiða nýjar
aðferðir í nýjum skóla, en rannsókn-
ir benda til þess að aðferðir sem þess-
ar gefist vel.
Skólinn hentar að sögn Guðbjargar
hvaða nemendum sem er. Hún segir þá
koma til með að fá persónulega þjón-
ustu en 70 nemendur hófu nám í gær.
„Þegar nýja húsið verður komið í gagn-
ið og allir árgangar komnir inn ímynd-
um við okkur að þeir verði á bilinu
fjögur til fimm hundruð.“
vera@frettabladid.is
FRAMHALDSSKÓLINN Í MOSFELLSBÆ: SETTUR Í FYRSTA SINN
Nemendur virkir í eigin námi
SERGEY BRIN ER 36 ÁRA Í DAG
„Allir óska sér velgengni en
ég vil að mín verði minnst
fyrir að vera nýjungagjarn,
áreiðanlegur og með ríka
siðgæðisvitund auk þess
sem ég vil leggja mitt af
mörkum til heimsins.“
Sergey Brin, annar
stofnanda Google.
Fjórða úthlutun úr Hrafn-
kelssjóði fór fram nýlega.
Þá afhenti Hildur Björns-
dóttir, formaður sjóðsstjórn-
ar, Rósu Elínu Davíðsdótt-
ur 500 þúsund króna styrk
til doktorsnáms í orðabóka-
fræðum við Sorbonne-há-
skóla í París.
Rósa Elín útskrifaðist með
BA í frönsku frá Háskóla Ís-
lands árið 2005 og MA í al-
mennum málvísindum frá
Sorbonne-háskóla í París
2007. Hún hefur undanfar-
in ár meðal annars unnið að
undirbúningi og fjármögnun
íslensk-franskrar orðabók-
ar sem vakti áhuga henn-
ar á frekara námi í orða-
bókafræðum. Í framtíðinni
hyggst hún starfa í háskóla-
samfélaginu við kennslu og
rannsóknir á sviði frönsku
og málvísinda.
Hrafnkelssjóður var stofn-
aður í minningu Hrafnkels
Einarssonar sem var fædd-
ur 13. ágúst 1905. Hann lauk
námi í hagfræði og var að
undirbúa doktorsverkefni
sitt um fiskveiðar á Íslandi
og útflutning fiskafurða
þegar hann lést í nóvember
1927. Foreldrar hans stofn-
uðu minningarsjóðinn um
hann og fyrst var úthlutað
úr honum árið 2005.
Úr Hrafnkelssjóði
MERKISATBURÐIR
1011 Njáll Þorgeirsson og
heimilisfólk hans á Berg-
þórshvoli í Landeyjum er
brennt inni í hefndarskyni
af Flosa Þórðarsyni og
mönnum hans.
1439 Eiríkur af Pommern er
settur af konungsembætti
í Kalmarsambandinu.
1942 Vélbáturinn Skaftfellingur,
með sjö manna áhöfn,
bjargar 52 Þjóðverjum af
sökkvandi kafbáti undan
Bretlandsströndum.
1958 Friðrik Ólafsson skákmað-
ur verður stórmeistari, 24
ára gamall.
1988 Stuðlabergsdrangur var
reistur í Skagafirði til
minningar um Örlygs-
staðabardaga en þá voru
750 ár voru liðin frá at-
burðinum.
Þennan dag árið 1958 varð Friðrik Ólafsson fyrsti
íslenski stórmeistarinn í skák, þá 24 ára að aldri.
Hann fékk titilinn eftir að hafa komist á áskorenda-
mót. Það var átta manna mót þar sem barist var
um að fá að skora á heimsmeistarann. Mikhaíl Tal
vann mótið og varð síðan heimsmeistari.
Með afrekinu hóf Friðrik sig upp í hóp sterkustu
skákmanna heims. Hann hefur auk þess unnið all-
mörg alþjóðleg skákmót, orðið Norðurlandameist-
ari og Íslandsmeistari sex sinnum.
Friðrik var forseti Alþjóðaskáksambandsins á ár-
unum 1978-1982. Hann jók vinsældir skákarinnar
hér á landi og plægði akurinn fyrir komandi stór-
meistara.
Friðrik er eini íslenski skákmaðurinn sem lagði
Bobby Fischer að velli en það tókst honum að
gera tvívegis. Friðrik er líka eini Íslendingurinn sem
hefur unnið ríkjandi heimsmeistara. Það var gegn
Anatolí Karpov árið 1980.
ÞETTA GERÐIST 21. ÁGÚST ÁRIÐ 1958
Friðrik Ólafsson stórmeistari
FRIÐRIK ÓLAFSSON, STÓRMEISTARI Í SKÁK
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför
mannsins míns,
Þorgríms Þórðarsonar
Hlaðbæ 1, Reykjavík.
Jónína B. Thorarensen
og fjölskylda.
Elskulegur sonur minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, bróðir og mágur,
Erlar Jón Kristjánsson
Árnatúni 4, Stykkishólmi,
verður jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju mánu -
daginn 24. ágúst kl. 14.00.
Auður Júlíusdóttir
Auður Bergþóra Erlarsdóttir Albert Steingrímsson
Katrín Eva Erlarsdóttir Vignir Örn Oddgeirsson
Jónína K. Kristjánsdóttir Bernt H. Sigurðsson
Kristján J. Kristjánsson Svandís Einarsdóttir
Þóra M. Halldórsdóttir
og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Marsibil Guðmundu
Helgadóttur
Hlíf I, Ísafirði.
Sérstakar þakkir til allra á Hlíf fyrir góða umönnun og
góðan félagsskap. Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Helga Jensdóttir Valur Karl Pétursson
Friðbjört Elísabet Jensdóttir Þórir Kjartansson
Guðmundur Helgi Jensson
Freymóður Jensson Inga Jóna Björgvinsdóttir
Pálína Jóhanna Jensdóttir Þorbjörn Halldór
Jóhannesson
Margrét Bjarndís Jensdóttir Kristinn Guðni
Ebenesersson
Sigvarður Halldórsson Guðríður Elíasdóttir
Halldóra Guðbjörg Magnúsdóttir Guðmundur Magnús
Kristjánsson
Ingi Guðnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Þórey Erna Sigvaldadóttir
Reiðvaði 1,
andaðist að morgni fimmtudagsins 19. ágúst. Jarðarför
auglýst síðar.
Ægir Jónsson
Sigvaldi Ægisson Elísabet Reinhardsdóttir
Jón Ægisson Svanborg Þ. Einarsdóttir
Hrönn Ægisdóttir Guðmann Reynir Hilmarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
VERKEFNAMIÐAÐAR KENNSLUAÐFERÐIR Guðbjörg segir upplagt að innleiða nýjar kennsluaðferðir í nýjum skóla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
AFHENDING. Hildur Björnsdóttir afhenti Rósu Elínu styrkinn.