Fréttablaðið - 21.08.2009, Síða 38

Fréttablaðið - 21.08.2009, Síða 38
26 21. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR folk@frettabladid.is > VILL GÁFAÐAN KÆRASTA Renée Zellweger er með ákveðnar kröf- ur um hvernig kærasta hún vill. Leikkonan, sem er 40 ára, segist leita eftir því sama í karlmanni og hún leitar eftir í góðum vinum og vill að kærasti hennar sé góðhjartaður, með góðan húmor, hreinskilinn og sé annt um mannorð sitt. Zellweger hefur upp á síðkastið verið orðuð við leikarann Bradley Cooper, en bæði hafa þau þvertekið fyrir meint ástarsamband. „Við vorum með tónleika hérna í fyrra með Sign og Nögl og fleirum og það var alveg stappað af fólki og rosalega gaman. Þannig að við ákváðum að gera þetta bara stærra og betra núna,“ segir Linda Mjöll Þorsteinsdóttir hjá Reykjavík Ink við Frakkastíg um dagskrá menn- ingarnætur hjá þeim. „Við ætlum að loka neðri hlutan- um á Frakkastígnum og vera með tónleika. Við erum sem sagt að smíða svið uppi á þakinu hjá okkur og þar verðum við með sex hljóm- sveitir. Það eru Þrusk, Langi Seli og Skuggarnir, Bróðir Svartúlfs; svo er hljómsveit sem heitir 59‘ers, hún er að koma fram í fyrsta sinn. Þetta er rockabilly hljóm- sveit með hinum goðsagnakennda Smutty Smith. Einnig koma fram Cliff Clavin og Noise,“ Þá verður Harley Davidson-klúbburinn með mótorhjólasýningu. „Það verða sérstök custom made mótorhjól, þessi sérsmíðuðu flottu, og þeim verður raðað hérna upp Frakka- stíginn.“ Stofan verður að sjálfsögðu opin. „Við ætlum líka að vera með fjölda- flúr hérna; við munum fá einhverja úr Harley Davidson-klúbbnum hérna yfir daginn. Þau ætla að fá sér H og D í tilefni dagsins. Ég veit ekki alveg hversu margir, kannski 20 til 50.“ Er fjöldaflúr algengt? „Nei, þetta er í fyrsta sinn.“ Dagskráin stendur yfir á milli tvö og sjö, en tónleikarnir hefjast á þakinu klukkan þrjú. Þyrsti menn í frekari skemmtun um kvöldið eiga þau Linda og maður hennar, Össur Hafþórsson, einnig Sódómu Reykjavík og Bar 11, en á Sódómu spila Entombed, Sororicide, In Memoriam og Gone Postal. Shog- un og gestir skemmta á Ellefunni. „Það er nóg að gera.“ Hópflúrun og þaktónleikar Berjadagar á Ólafsfirði hefjast í kvöld. Örn Magnússon skipuleggjandi hlær þegar blaðamaður spyr hann hvort hátíðin sé í keppni við Menningarnótt. „Ég sagði nú einhvern tíman að það yrði nú að vera eitthvað fyrir norðan líka svo landið sporðreistist ekki, en nei, það er nú eitthvað sem við keppum ekki við. En við eigum okkar sess hérna og fólk hefur komið hérna alls staðar af á land- inu til að vera á Berjadögum.“ Hátíðin byrjar á tónleikum við kertaljós. „Það verður fluttur flautu- kvartett eftir Haydn sem Melkorka Ólafsdóttir blæs og Bragi Berg- þórsson syngur ljóð eftir Mend- elssohn. Á laugardaginn er opinn markaður milli eitt og fimm, líklega í Guðmundarhúsi við Strandgötu. Þar verður boðið upp á berjaafurðir, sult- ur, saftir og smökkun. Á sama tíma er opið hús hjá myndlistarmönnum bæjar- ins, þeim Guðrúnu Þórisdóttur, Kristj- önu Sveinsdóttur og Hólmfríði Arn- grímsdóttur. Á þessum stöðum verða Spilmenn Ríkínís að leika á fornhljóð- færi sín, þeir fara á milli og uppákom- ur verða. Um kvöldið verða tónleikar í kirkjunni þar sem Jón Þorsteinsson syngur sálma sem hann lærði ungur af afa sínum á lofti kirkjunnar. Svo eru tónleikar á sunnudaginn í kirkjunni undir yfirskriftinni Allabaddarí, með franskri tónlist. Hátíðin endar á léttu nótunum á sunnudagskvöldið.“ Berjadagar eru haldnir í ellefta sinn. „Það hefur alltaf verið að aukast aðsóknin. Það var nú ekki mikil aðsókn til að byrja með en síðan hefur þetta verið að vinna sér sess og var allt fullt í fyrra á öllum viðburðum þannig að ég er bjartsýnn núna. Berjaspretta er víst með því betri sem gerist í ár.“ - kbs Berjasprettan gerist vart betri Á FULLRI SIGLINGU Örn, lengst til vinstri, ásamt fríðum hópi listamanna á Berjadögum. MYND/INGIBJÖRG NÓG AÐ GERA Linda og Össur hjá Reykjavík Ink skipuleggja öðruvísi menningarveislu á menningarnótt. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Það virðist vera ýmislegt sem hægt er að selja erlend- um ferðamönnum hér á landi, þess á meðal er dós full af íslensku fjallalofti. „Þetta selst alveg, og hefur til dæmis verið að seljast mjög vel uppi við Geysi. Fólkið sem kaupir þetta er á öllum aldri og ég held að það kaupi þetta fyrst og fremst af því að því finnst húmor í þessu. Flest- ir koma flissandi að búðar- borðinu þegar þeir ætla að borga,“ segir Telma Geirs- dóttir, starfsmaður í minjagripaversluninni Lundanum á Skóla- vörðustíg. Aðspurð segir hún loftið vera fjallaloft og kostar dósin 1.060 krónur. „Samkvæmt upplýsingunum á dósinni er loftið frá Heklu, en ég veit ekki hvort það sé satt og rétt,“ segir Telma. - sm Selja ferðamönnum fjallaloft í dósum SKEMMTILEG MINNING Að sögn Telmu og Ásdísar þykir ferðamönnum fjallaloftið vera skemmtilegur minjagripur. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /A N TO N Kæru viðskiptavinir hef fl utt mig um set á Hár Expo að Laugavegi 42b. Býð ykkur hjartanlega velkomin, tímapantanir í s: 5527170 Katrín Ósk Guðlaugsdóttir www.harexpo.is 10. HVER VINNUR ! SENDU SMS ESL WMV Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! VINNINGAR ERU WATCHMAN Á DVD, TÖLVULEIKIR, AÐRAR DVD MYNDIR, PEPSI OG MARGT FLEIRA. 20. ÁG ÚST Í ELKO Á DVD OG BL U-RAY ! Vinningar verða afhendir hjá ELKO Lindum – Skógarlind 2. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 149 kr/skeytið. Carrie Roy, fyrrverandi Ungfrú Norður-Dakóta og sjónvarpsstjarna í Boston, var nýverið í heimsókn hér á landi hjá vinum sínum sem hún kynntist er hún stundaði nám í íslenskum þjóðsögum við Háskóla Íslands. Carrie leggur núna stund á dokt- orsnám í þjóðsagnfræði við Háskól- ann í Wisconsin í Bandaríkjunum og ákvað að líta við á Íslandi áður en hún færi á ráðstefnu í Svíþjóð. Hún hefur rannsakað Íslendinga- sögurnar og íslensku þjóðsögurn- ar og heillast mjög af þeim. „Það eru ekki mörg tímabil í miðaldar- sögunni sem eru jafn vel skrá- sett og Íslendingasögurnar,“ segir Carrie, sem hefur lifað viðburða- ríku lífi. „Ég ólst upp á búgarði í Norður-Dakóta og hafði alltaf mjög gaman af íþróttum. Ég var góð í kringlukasti og kúluvarpi og mér voru boðnir skólastyrkir í mörg- um skólum. Ég valdi Harvard og þar lagði ég stund á höggmynda- list og ljósmyndun. Síðan gerði ég verkefni um norræna menningu í miðvesturhluta Bandaríkjanna því mér fannst hún mjög áhugaverð,“ segir Carrie. „Í Norður-Dakóta ólst ég upp við norræn menningar- áhrif, bæði norsk og sænsk en líka þýsk. Í bænum sem ég ólst upp í bjó líka fólk af íslenskum uppruna.“ Þegar Carrie var í Harvard og bjó í Boston sótti hún um starf í sjónvarpsþættinum Knock First, sem fjallaði um breytta hönnun á herbergjum unglinga. Kenndi hún unglingum að nota rafmagns- verkfæri, sem var nokkuð undar- leg reynsla að hennar mati. „Við tókum upp um 65 þætti og unnum í tólf til átján klukkustundir á dag. Þetta var mikil pressa en líka mjög gaman. Eftir það ákvað ég að fara aftur í skóla og læra.“ Fleira hefur drifið á daga hennar því hún tók þátt í keppninni Ung- frú Norður-Dakóta um aldamótin í von um að eiga betri möguleika á skólastyrk. „Ég var kringlukastari og kúluvarpari og hafði ekki mik- inn áhuga á fegurðarsamkeppnum. Ég var frekar undrandi þegar ég vann keppnina,“ segir hún. Næst var komið að keppninni Ungfrú Ameríka. „Ég komst ekki á topp tíu en ég var kjörin svalasta stúlkan af einu dagblaði. Þeim fannst svo áhugavert að ég stundaði ólymp- ískar lyftingar og að uppáhalds- bíómyndin mín væri Gladiator en ekki Gone with the Wind,“ segir hún og hlær. Að námi loknu hefur Carrie sett stefnuna á að verða prófessor í þjóðsagnfræði og norrænni mið- aldasögu. Ljóst er að þarna er held- ur betur fjölhæf stúlka á ferðinni sem mun eiga nóg af sögum í poka- horninu til að segja barnabörnum sínum í framtíðinni. freyr@frettabladid.is Bandarísk fegurðardís heilluð af Íslendingasögum CARRIE ROY Fegurðardrottningin og háskólaneminn Carrie Roy stundaði nám í íslenskum þjóðsögum við Háskóla Íslands. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /A R N ÞÓ R

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.