Fréttablaðið - 21.08.2009, Side 48
36 21. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Landsliðsframherjinn
Eiður Smári Guðjohnsen er í við-
tali á heimasíðu UEFA
í tilefni að þátttöku
kvennalandsliðs
Íslands á loka-
keppni EM í
Finnlandi sem
hefst i n na n
skamms.
Eiður Smári fer eðli-
lega fögrum orðum um
íslenska liðið en segist
þó hafa haft ástæðu til
þess að skamma þær
upp á síðkastið.
„Ég óska þeim auð-
vitað velfarnaðar í
lokakeppninni en hef
þó þurft að skamma
þær nokkrum sinn-
um upp á síðkastið.
Þær láta okkur strák-
ana líta svo illa út
þar sem við eigum
enn langt í land
með að ná sömu
h æðu m og
þær. Kvenna-
liðið er alveg
frábært
lið og þær
eru góðir
fulltrúar
Íslands,“
segir
Eiður
Smári.
Eiður
Smári
hrósar markadrottningunni Mar-
gréti Láru Viðarsdóttur sérstak-
lega en hún skoraði mest allra
leikmanna sem tóku þátt í undan-
keppninni eða tólf mörk.
„Mér finnst hún vera mjög
hæfileikarík. Hún er með frábæra
tækni og vonandi verður hún bara
enn betri á komandi árum,“ segir
Eiður Smári.
Eiður Smári segir vitanlega
mikla eftirvæntingu ríkja á
Íslandi fyrir þátttöku kvenna-
liðsins á EM.
„Að sjálfsögðu er mikil eftir-
vænting fyrir lokakeppnina á
Íslandi.
Ég get reyndar ímyndað mér
að það sé eins hjá öllum keppnis-
þjóðunum þegar í lokakeppni
er komið,“ segir Eiður Smári að
lokum. - óþ
Eiður Smári er í viðtali um kvennalandslið Íslands á heimasíðu UEFA:
Láta okkur strákana líta illa út
EIÐUR SMÁRI Óskar íslenska
kvennalandsliðinu góðs gengis í
lokakeppninni í Finnlandi í viðtali á
heimasíðu UEFA. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Lokaspretturinn í 1. deild karla hefst í kvöld þegar þrír leikir fara
fram í 18. umferð og því aðeins fimm umferðir eftir og baráttan
á toppi og botni deildarinnar í algleymi. Selfyssingar hafa verið
í bílstjórasætinu stóran part af sumrinu og markahrókurinn
Sævar Þór Gíslason, sem hefur skorað fimmtán mörk í sextán
leikjum í sumar, segir liðið tilbúið fyrir lokaátökin.
„Það er bara einn pakki í toppbaráttunni og það virðist
vera sem allir geti unnið alla í þessari deild. Við þurfum
bara að halda áfram að spila okkar leik og klára þetta af
krafti. Mér hefur gengið vel að skora en það er einfald-
lega liðinu að þakka. Ég væri ekki kominn með þetta
mörg mörk ef liðið væri ekki að spila sem ein heild,“
segir Sævar Þór.
Selfyssingar voru í baráttunni um að komast upp
í efstu deild síðasta sumar á sínu fyrsta ári í 1. deild-
inni og því kemur staða þess ekkert á óvart núna.
Sævar Þór segir gengi liðsins þó hafa farið fram úr sínum
björtustu vonum.
„Markmið okkar fyrir tímabilið var að ná stöðugleika í
okkar leik í deildinni þar sem það er alltaf talað um að annað árið
í deild sé erfiðast. En þetta hefur bara gengið framar vonum og
um mitt sumar settum við okkur nýtt markmið og við einbeitum
okkur bara að ná því núna,“ segir Sævar Þór.
Sævar Þór var gagnrýndur á sínum tíma fyrir að fara aftur
á heimaslóðir á Selfossi þegar liðið var enn að spila í
2. deildinni en nú eru fínar líkur á því að hann spili í
úrvalsdeildinni næsta sumar. „Þegar ég kom til Selfoss
árið 2007 vildu margir meina að ég væri útbrunninn
og það væri jafnframt stórt skref niður á við að fara
til félagsins. Ég ákvað hins vegar að slá til og sé alls
ekki eftir því núna. Það væri draumur ef Selfoss færi
upp í efstu deild og við erum nú fimm leikjum frá því
takmarki. Ef það tekst þá tek ég bara stöðuna á því
hvernig skrokkurinn verður eftir sumarið áður en ég
ákveð hvort ég held áfram,“ segir Sævar Þór.
Selfoss er á toppnum með eins stigs forskot á Hauka og
þriggja stiga forskot á HK og mætir Leikni á Selfossi í kvöld
en Leiknismenn unnu 4-0 í fyrri leik liðanna í Breiðholti.
SÆVAR ÞÓR GÍSLASON: ER VONGÓÐUR FYRIR HÖND SELFOSS FYRIR LOKASPRETTINN Í 1. DEILDINNI
Það væri draumur ef Selfoss færi upp í efstu deild
FÓTBOLTI Txiki Begiristain, yfir-
maður knattspyrnumála hjá Bar-
celona, hefur staðfest að félagið
ætli að verðlauna stjörnuleik-
mennina Andrés Iniesta og Lionel
Messi með nýjum og betri samn-
ingum á næstunni.
„Messi er besti leikmaður í
heimi og því viljum við gera
allt til þess að halda honum sem
lengst á Nývangi. Iniesta fær líka
nýjan samning í samræmi við
mikilvægi hans fyrir félagið. Við
viljum halda sömu mönnum og
gerðu það gott á síðustu leiktíð,“
segir Begiristain.
Iniesta og Messi fylgja því
væntanlega eftir þeim Víctor
Valdés, Yaya Toure og Xavi sem
skrifuðu nýlega undir nýja samn-
inga við Spánar- og Evrópumeist-
arana. - óþ
Lionel Messi og Iniesta:
Fá nýja og betri
samninga
LIONEL MESSI Hefur verið ótrúlegur með
Barcelona. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Fulham náði í gær sam-
komulagi við WBA um að fá
Jonathan Greening að láni út
leiktíðina.
Fulham hefur reynt að fá
hann í allt sumar og það bar loks
árangur hjá Roy Hodgson. - hbg
Jonatan Greening:
Fenginn að láni
til Fulham
FÓTBOLTI Liverpool keypti í gær
gríska landsliðsmanninn Sotir-
ios Kyrgiakos frá AEK í Aþenu.
Kaupverðið er talið vera 2 millj-
ónir punda.
Þessi 30 ára varnarmaður
mun væntanlega gangast undir
læknisskoðun í dag og ætti að
vera klár í leikinn gegn Aston
Villa á mánudag.
„Þetta er leikmaður með mikla
reynslu sem getur hjálpað okkur
í vörninni,“ sagði Rafa Benitez,
stjóri Liverpool.
„Hann hefur þess utan reynslu
af breskum bolta síðan hann lék
með Glasgow Rangers. Hann er
sterkur í loftinu, hefur mikinn
líkamlegan styrk og er grimmur.
Við vorum að leita að leikmanni
með reynslu.“
Grikkinn kemur til Liverpool
á góðum tíma enda eru Daniel
Agger og Martin Skrtel báðir
meiddir og Liverpool vantar því
sárlega miðvörð til að leysa þá
félaga af.
Kyrgiakos, sem hefur leikið 50
landsleiki fyrir Grikkland, til-
kynnti um félagaskiptin á heima-
síðu sinni síðasta þriðjudag.
„Þetta er stærsta verkefni lífs
míns. Ég hef tekið tilboði Liver-
pool,“ sagði Grikkinn á síðu sinni
áður en búið var að staðfesta
félagaskiptin en honum lá aug-
ljóslega mikið á að deila fréttun-
um með heiminum - hbg
Vörn Liverpool styrkist:
Kyrgiakos fer til
Liverpool
KYRGIAKOS Fer líklega í læknisskoðun í
dag. NORDIC PHOTOS/AFP
Vígsla gervigrasvallar Víkings
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
Borgarstjóri Reykjavíkur vígir völlinn
ásamt ungum iðkendum Víkings.
Að vígslu lokinni kl. 18:30
fer fram á aðalleikvangi
leikur Víkings og
Aftureldingar
í 1. deild karla.
Fjölmennum!
föstudaginn 21. ágúst kl. 17.
> Biðstaða í málum Eiðs Smára
Arnór Guðjohnsen, faðir og umboðsmaður Eiðs Smára
Guðjohnsen, segir að ekkert hafi enn komið úr viðræðum
þeirra við enska úrvalsdeildarfélagið West Ham. „Það er
afskaplega lítið að frétta af hans málum,“
sagði Arnór í samtali við Fréttablaðið.
Hann sagði þá þó hafa átt í viðræðum
við fleiri félög en West Ham. Eiður
Smári á enn eitt ár eftir af samningi
sínum við Barcelona. Félagaskipta-
glugginn lokast um næstu mánaða-
mót og því tíminn að renna út fyrir
Eið Smára. „Það er ómögulegt að
segja hvað gerist. Það vill oft vera
þannig að þessir hlutir ganga hratt
fyrir sig á lokakaflanum,” sagði Arnór.
FRJÁLSAR Fljótasti maður allra tíma,
Jamaíkamaðurinn Usain Bolt, er
enn að bæta sig og menn spyrja sig
eftir 100 og 200 metra hlaupin á
HM í Berlín hvað hann geti bætt
metin mikið en hann er aðeins 22
ára gamall.
Bolt stakk andstæðinga sína af í
gær og kom í mark á 19,19 sekúnd-
um. Það var mikil spenna í upp-
hafi hlaupsins og Frakkinn David
Alerte þjófstartaði. Kapparnir
komust af stað í kjölfarið og Bolt
skildi alla eftir í beygjunni.
Þegar Bolt kom í mark á ógnar-
hraða benti hann á skiltið við hlið-
ina, fullviss um að hann hefði bætt
eigið heimsmet. Það reyndist rétt.
Alonso Edward varð annar á 19,81
sekúndu og Wallace Spearmon
varð þriðji.
Bolt átti ekki von á því að geta
bætt þetta heimsmet þar sem hann
missti mánuð úr æfingum fyrr á
árinu eftir að hann lenti í bílslysi.
„Ég get fullvissað fólk um að ég
átti ekki von á þessu því að ég var
líka svolítið þreyttur. Ég ákvað
samt að reyna því að fólk var
mjög spennt fyrir hlaupinu. Ég
sagði að það sakaði ekki að reyna.
Þannig að ég gaf allt sem ég átti
og nú er ég mjög þreyttur,“ sagði
Bolt þreyttur en himinlifandi eftir
hlaupið.
„Næst ætti ég kannski að hlaupa
100 eða 200 metra hlaupið einn.
Forminu var farið að hraka og ég
hljóp ekki rétt. Þetta var ekki gott
hlaup en vissulega var það hratt.“
Bolt varð með heimsmeistara-
titli sínum í gær fyrsti maðurinn
í sögunni sem heldur heims- og
ólympíutitlum í bæði 100 og 200
metra hlaupi.
Ofurmennið frá Jamaíka
Usain Bolt setti í gær ótrúlegt heimsmet í 200 metra hlaupi á HM í Berlín. Bolt
hljóp metrana 200 á 19,19 sekúndum og bætti eigið heimsmet frá því á ÓL í Pek-
ing er hann kom í mark á 19,30 sekúndum. Þetta var annað heimsmet hans.
TVÖ HEIMSMET Usain Bolt sagðist hafa verið þreyttur í gær en það hindraði hann ekki í því að setja glæsilegt heimsmet.
NORDIC PHOTOS/AFP