Samvinnan - 01.10.1982, Síða 5
76. árgangur, 5. hefti 1982
Samvinnumenn hafa unniS að
því undanfarin ár að auka hiut-
deild sína í verslun á þéttbýlis-
svæðinu hér við Faxaflóa. Liður
í þeirri viðleitni var stofnun
stórmarkaðs Kaupfélags Hafn-
firðinga í Miðvangi. Það segir
frá honum og ýmsu öðru
varðandi Kaupfélag Hafn-
firðinga í viðtali við Örn Ingólfs-
son kaupféiagsstjóra á bls. 8—
11.
„Og þegar þetta haust var kom-
ið, gat eigi lengur dulist, að
almenningur var þungaður
þessu fóstri og að fylling tím-
ans var komin.“ Þetta eru orð
Jakobs Hálfdanarsonar, sem
nefndur hefur verið faðir sam-
vinnuhreyfingarinnar. Samvinn-
an kynnir nýútkomna sjálfsævi-
sögu hans á bls 14—17.
Smásaga þessa heftis er eftir
Hrafn Harðarson og Ijóð eru að
þessu sinni eftir Sigfús Krist-
jánsson og Önnu Maríu Þóris-
dóttur.
„Er kominn tími til að huga að
nýrri verkaskiptingu í þjóðfé-
laginu og taka meira tillit til
þeirra mismunandi hlutverka
sem menn gegna á æviskeið-
inu?“ Þessari spurningu varpar
Sigríður Haraldsdóttir fram í at-
hyglisverðri grein, sem hún
skrifar á bls 40—43 og nefnist
„Vanmetum við heimilisstörfin1'.
í ÞESSU HEFTI
7 Forystugrein.
8 Þokast jafnt og þétt í rétta átt; Samvinnan
heimsækir Kaupfélag Hafnfirðinga og
ræðir við Örn Ingólfsson kaupfélags-
stjóra.
12 Ber er hver að baki; pistill frá Sigurði
Jónssyni í Kenya.
14 Almenningur var þungaður þessu fóstri;
Samvinnan kynnir sjálfsævisögu Jakobs
Hálfdanarsonar.
17 Ljóð eftir Önnu Maríu Þórisdóttur.
18 Blessuð rjúpan hvíta; frásaga eftir Jóhann
Hjaltason.
22 Sigling í Grænlandsís; grein og myndir
eftir Kristin Snæland.
24 Flogið yfir Reykjavík fyrir 30 árum; úr
Ljósmyndasafni Samvinnunnar.
26 Einn því skrefar auðnuieið, annar refil-
stigu... Sigurður Gunnarsson segir frá al-
þýðuskáldinu Guðmundi Guðmundssyni
yngra, Nýjabæ, Kelduhverfi.
28 Aðsókn; gamankvæði eftir Sigfús Krist-
jánsson.
29 Hann var jötunefldur afkastamaður og
engum líkur; mat Tryggva Gunnarssonar
á Gránufélagi og öðrum verslunarsam-
tökum bænda 1885—86, eftir Bergstein
Jónsson sagnfræðing.
31 Hjalti Pálsson framkvæmdastjóri sex-
tugur.
33 Fræðslunefndir í öll kaupfélög; sagt frá
fundi félagsmálafulltrúa og fræðslu-
nefnda kaupfélaganna.
35 Sambandið styður íþróttahreyfinguna.
36 Gæludýr; smásaga eftir Hrafn Harðarson
með litmynd eftir Arna Elfar.
39 Verðlaunakrossgáta.
40 Vanmetum við heimilisstörfin; Sigríður
Haraldsdóttir skrifar um neytendamál.
Forsíða.
Aðsetur Kaupfélags Hafnfirðinga við
Strandgötu. (Ljósmyndari: Kristján Pétur
Guðnason).
1____
5