Samvinnan - 01.10.1982, Page 11
Eins og sjá má á skiltinu er
Miðvangur verslunarmiðstöð,
þar sem reynt er að uppfylla
sem flestar óskir viðskiptavin-
anna.
Guðbjartur Vilhelmsson, verslunarstjóri í hinum nýja stórmarkaði
Kaupfélags Hafnfirðinga í Miðvangi.
, verslunarmæ ^
snvb f[Siaú0
' kÖKUBANKINN ír^rEIÐSLUSTOFA
wSSuN* TINNA ’*™^4VEflSLUN
"‘"“Stuno SÓLUTURN
VtRSU/NlN FBISTUND sv
AfÓTEK 1
tvo aðalfundi, því að þeir eru ekki gildir
samkvæmt lögum félagsins nema % fé-
lagsmanna sitji þá.
En á síðasta aðalfundi var einmitt
samþykkt að vinna að deildaskiptingu
innan félagsins. Gert er ráð fyrir, að
Hafnarfirði verði skipl í tvær deildir,
norður- og suðurbæ, og Garðabær
ásamt Alftaneshreppi verði þriðja
deildin. Að þessu máli verður unnið nú
þegar á þessu ári.
Við munum leggja ríka áherslu á að
reyna að efla félagsstarfið sem mest
næstu misserin. I tilefni af afsláttarkort-
unum verður félagið kynnt og leitast við
að gera félagsmenn áhugasamari og
virkari en áður. Liður í þessari viðleitni
telst einnig, að I. nóvember síðasliðinn
var starf félagsmálafulltrúa gert að fullu
starfi, en hafði verið hlutastarf áður. Og
til þess að gegna starfinu hefur verið
ráðin Ann Mari Hansen, sem verið hef-
ur verslunarstjóri í Garðabæ um árabil.
• Gott starfsfólk
Hverju viltu þakka þann góða árang-
ur, sem náðsl hefur hjá ykkur á mjug
skömmum tíma?
Ég vil þakka hann starfsfólkinu fyrst
og fremst. Eg hef starfað við verslunar-
rekstur síðan 1959, og ég held að mér
sé óhætt að segja, að ég hafi ekki áður
kynnst jafn samstæðum og áhugasömum
hópi starfsmanna.
Að lokum: Erlu bjarlsýnn á fram-
líðiria?
Já, ég hef ekki ástæðu til að vera ann-
að, þótt ýmsir erfiðleikar steðji að í þjóð-
félaginu nú um sinn. Mér hefur fundist
gott að vinna fyrir Hafnfirðinga. Ég bý
reyndar sjálfur í Reykjavík, en er hér
mestan hluta sólarhringsins oft og tíð-
um. Eg hef orðið var við, að Hafnfirð-
ingar kunna að meta það setn vel er
gert í bænum þeirra. Þeir dæma menn
fyrst og fremst eftir verkum þeirra —
eins og gera ber.
G.Gr.
Svipmynd úr kjörbúð Kaupfélags Hafnfirð-
inga við Garðaflöt 16—18 í Garðabæ. Á
þremur vikum var verslunin endurnýjuð i
hólf og gólf og aldrei lokað nema einn laug-
ardag. (Myndir: Kristján Pétur Guðnason.)
11