Samvinnan - 01.10.1982, Qupperneq 12

Samvinnan - 01.10.1982, Qupperneq 12
Ber er hver að baki — Pistill frá Sigurði Jónssyni í Kenya Kaupfélagsstjórinn (fyrir miðju) og starfs- menn fullir eftirvæntingar að prófa þessi nýju tæki. Bensínafgreiðslumanninum var hins vegar sagt, að hann yrði að halda áfram að skrifa kvittanir. Hugtakið stórfjölskylda er sann- arlega vel þekkt í Afríku og er ósjaldan nefnt þegar rætt er um málefni álfunnar. En hvað er þá stórfjölskylda? Það sem á ensku er nefnt „extended family" og ég hef kosið að nefna stórfjölskyldu á íslensku, þýðir einfaldlega ætt - eins og við notum það liugtak, en í stórfjölskyldu ber sérhverj- um einstaklingi skylda til að aðstoða aðra úr fjölskyldunni eftir því sent geta hans leyfir. Einstaklingar sem eru að- stoðar þurfi leita þannig ekki aðeins til nánustu fjölskylduaðila, heldur jafnvel til fjarskyldra ættntenna. Þetta er rifjað upp hér vegna þess, að laugardaginn 28. ágúst sl. voru búðar- kassarnir tveir, sem KRON sendi fyrr í sumar til Kenya aflientir nteð viðhöfn kaupfélaginu í Chemelil. Eins og kunn- Sigurður Jónsson afhendir stjórnarformann- inum, George Okello, búðarkassana tvo fyrir hönd KRON og Sambandsins. A myndinni er einnig fulltrúi Samvinnuráðuneytisins og ritari félagsins. ugt er af fréttum, var leitað til sam- vinnuhreyfingarinnar hér heima varðandi slíka aðstoð við þetta kaupfé- lag, og KRON brá skjótt við og gaf þessa tvo búðarkassa. Skipadeild Sant- bandsins sá síðan um að flytja kassana frítt til Montbasa í Kenya þar sent Nor- ræna samvinnuverkefnið í Kenya tók við og kom kössunum til Chemelil. Gjöfin og sending hennar til Kenya var því sannarlega samstarf margra aðila í þeirri stórfjölskyldu sem nefnist sam- vinnumenn. • Lífið er sykurreyr Þorpið Chemelil er í svokölluðu syk- urbelti, sent liggur í Vestur-Kenya um 50 km frá Viktoríuvatninu. Lífið þarna er sykurreyr, og flestir íbúar þorpsins starfa í samnefndri sykurverksmiðju eða rækta reyr. Landið er flatneskja þakin sykurreyr, sem teygir sig svo langt sent augað eygir á þrjá vegu. Nokkuð norðan \ið þorpið liggur fjallgarður frá vestri til austurs og eru það hinar fögru Nandihæðir sem vaxnar eru skógi og nytjajurtum upp á efstu brúnir. Þetta er raunverulega jaðar þeirrar hásléttu, sem áður nefndist „hvítu hálöndin". Kaupfélagið í Chemelil er ekki gam- alt, því að það var stofnað árið 1970 af starfsmönnum sykurverksmiðjunnar, og þrátt fyrir góðan stuðning frá verk- smiðjunni, sem m.a. fólst í því að afhenda félaginu hús til afnota fyrir starfsemina, þá voru erfiðleikarnir margir og nokkurn tíma tók að renna stoðum undir reksturinn. Félagið hefur nú um 300 félagsmenn og rekur heild- 12

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.