Samvinnan - 01.10.1982, Side 13
og smásöluverslun með almennar
neysluvörur svo og sölu á bensíni og
olíum og er það eina bensínsalan í
þorpinu. Verslunin er rekin í sam-
keppni við nokkrar smáar einkaverslan-
ir, sem þó versla nokkuð við heildsölu
kaupfélagsins. A síðasla fjárhagsári, sem
lauk 30. júní sl., var sala verslunarinnar
rétt tæp 1.5 milljón shillinga og bensín-
sölunnar um 3.5 milljón shillinga. Starfs-
menn á skrifstofu eru kaupfélagsstjóri
og bókari, (jórir vinna í versluninni,
tveir við bensínsöluna og svo er einn
varðmaður. Afkoma félagsins hefur ver-
ið ágæt hin síðari ár. en verulegra fram-
kvæmda er þörf vegna viðhalds og
endurbóta á verslunarhúsinu sem og
endurbyggingu starfsmannabústaða.
Rekstrarhagnaður hefur verið notaður
til að bæta fjárhagsstöðu félagsins og
auka umsvif þess.
• Æskileg samskipti
Stjórn, starfsfólk og félagsmenn voru
viðstaddir afliendingu gjafarinnar frá
Islandi sem stjórnarformaður félagsins
veitti viðtöku. Lýst var aðdraganda
málsins og farið nokkrum orðum um
KRON og samvinnuhreyfinguna á Is-
landi, m.a. að það væri skemmtileg til-
viljun, að bróðurhugur og samhjálp
samvinnumanna sem gjöfin bæri vott
um, bæri upp á sama tíma og íslensk
samvinnuhreyfing ætti aldarafmæli.
Bein samskipti samvinnufélaga í þróun-
ar- og þróuðu löndunum væru mjög
æskileg en því miður alltof fátíð. Ég
taldi fullvíst að vegna umfjöllunar
fjölmiðla um málið, þá væri kaupfélagið
í Chemelil þekktasta afríska samvinnufé-
lagið á Islandi og kvað það von gefenda
að búðarkassarnir mundu bæta rekstur
félagsins og þjónustu verslunarinnar.
Við þetta tækifæri var einnig upplýst,
að Norræna samvinnuverkefnið í Kenya
hefði gefið félaginu fjármuni til að
framkvæma nauðsynlegar endurbætur á
versunarhúsinu og innréttingum þar.
Framkvæmdir við þetta mundu hefjast í
næsta mánuði.
• Góð stemning
George Okello, stjórnarformaður fé-
lagsins, þakkaði KRON og Skipadeild
Sambandsins sérstaklega fyrir þann
ntikla stuðning sem í gjöf þeirra fælist.
Einnig þakkaði hann undirrituðum fyrir
aðstoð hans við félagið og kvaðst vonast
til að samstarf við eftirmann minn í
Vestur-Kenya yrði gott. George rakti
helstu þætti í sögu félagsins og þær
framkvæmdir, sem nú stæði til að ráðast
í og þakkaði Norræna samvinnuverk-
efninu í Kenya fyrir aðstoð við þær.
Hann hvatti kaupfélagsstjórann, John
Atiang, og starfsfólk verslunarinnar til
að nota gjöfina vel og uppfylla þannig
vonir hinna íslensku samvinnumanna.
Kaupfélagsstjórinn og fulltrúi sam-
vinnumálaráðuneydsins tóku einnig til
máls við afhendingarathöfnina.
Nokkur fjöldi félags- og viðskipta-
manna félagsins var viðstaddur þarna
og var augljóst, að sú eflirvænting og
ánægja sem ríkti meðal starfsmanna og
sljórnar félagsins smitaði út frá sér.
Þeim sem ekki skildu ensku var sagt
hvað um væri að vera, og þótt orðin
KRON og Iceland hafi e.t.v. ekki skilist
fullkomlega, þá dró það ekkert úr
stemningunni. Að lokinni ferðabæn,
sem flutt var af einum stjórnarmanna.
skildu gestirnir því við kátan hóp og
óku hver til síns heima. ♦
Stjórn og starfslið kaupfélagsins í Chemelil í
nú um 300 félagsmenn.
íslenska gjöfin og sending
hennar til Kenya var því
sannarlega samstarf margra
aðila í þeirri stóríjölskyldu
sem nefnist samvinnumenn.
Kenya. Félagið var stofnað árið 1970 og hefur
13