Samvinnan - 01.10.1982, Blaðsíða 17

Samvinnan - 01.10.1982, Blaðsíða 17
Þegar hér var komið sögunni, ætti það að fara að verða skiljanlegt, að ég hafi hlotið að fá ýmsar áhyggjur samfara þessum umsvifum áhrærandi framtíðina. Af fjárkaupamönnum hin- um ensku fékk ég að vita, að þeir vildu gjarna koma næsta ár og eiga kaup við okkur, og var ekki um annan að gjöra hér þá, er þeir vildu snúa sér að, en mig. Þess má geta í sambandi við þessa setning, að faktor Þórður Guðjohnsen hafði ekki enn fengið reiðara sína til að samþykkja, að hann fengist nokkuð við kaup á lifandi fé. Á hina síðuna lá það ekki í láginni, að bændum þóttu kaupin góð og skilin á peningunum skemmti- leg, og mundi því alls ekki náðugt fyrir mig að kippa mér lausum frá öllum þessum afskiptum. • Óbærileg aðstaða Aðstaða mín hér á Húsavík var til- finningum mínum algjörl óbærileg; að geta ekkett framkvæmt, er til uppskip- unar eða afhendingar heyrði, nema með hjálp einmitt þess eða þeirra manna, sem ég var að vinna í óhag, og það var auðreiknað út, að þeir hinir sömu gætu hvorki né mættu þetta, nema á meðan að þeir væru öldungis öruggrar trúar um, að hér væri aðeins um hlægilega dægurflugu eða hverfandi vindbólu að ræða. Að þessu athuguðu fór ég að hugsa um hvernig til hagaði með lóð hér á Húsavíkurbakka. En svo stóð nú á í því efni, að Sigurjón stórbóndi á Laxamýri, hafði um nokkur ár haft leigða lóð hér norður við Xaustatún, sem hann hafði lénað enskum laxkaupmönnum, er byggðu hér ískjallara framan í bakkan- um og höfðu óvandaðan trékofa hér uppi. En þetta sumar, 1881, höfðu þeir yfirgefið þessar stöðvar sínar, rifið ís- kjallarann, en tilslegið Sigurjóni kofann órótaðan. Þessi lóðarblettur var nú ein- mitt á þeim stað, sem mér leist hægast uppskipun. og lét ég ekki lengi undan- dragast, eftir að ég hafði hugfest þetta, að fara á fund prestsins, sr. Kjartans Einarssonar, og biðja hann að selja mér eða leigja blettinn. Eigi mun þetta samt hafa gjörst fyrri en eftir markaðina um haustið. Þegar ég nú þannig rifja þetta allt upp, eftir því sem mér er ljóst í minni, kemur mér svo fyrir sem Kaupfélag Þingeyinga væri öndverðlega á þessu ári getið og þó í rauninni jafnvel fyrri, svona „í pukri eins og allir". Og þegar haust þetta var komið, gat eigi lengur dulist, að almenningur (margir menn réttara), var þungaður þessu fóstri, og að fylling tímans var komin. Eg réðst því í að boða til almenns frjáls fundar að Grenjaðarstað hinn 26. september þetta áminnsta haust 1881. Þangað sóttu nokkuð margir úr þessum næstu sveit- um. ♦ Vorí Osló 1982 Á Lilleaker sveigjast mjóu göturnar umhverfis garðana og gömlu og nýju timburhúsin. Ferðin út á sporvagnastöðina líkist göngu um Paradís. Konur ganga léttklæddar til innkaupa í stórmarkaðinum, glókollur ekur smáhjólbörum um garðinn, gamla konan í litla húsinu handan götunnar fer á morgungöngu með stóra hundinn að tína gleym-mér-ei. Alls staðar skarta tré og runnar blómaskrúði: eplatrén hvítu, kirsuberjatrén bleiku og sýrenurunnarnir ljós- ogdökkíjólubláu eins og norskar stúlkur í laglegum sumarkjólum. En víða má líka sjá há og tignarleg, dimmgræn tré, alsett fölrjómagulum blómklösum, sem rísa upp af greinunum einsogljóskeilur. Þetta eru kastaníutré og þau líkjast tignarlegum Parísardömum í hátískukjólum. Það snjóaði íjúní í Osló. Mjúk, hlý og ilmandi var snerting eplablómablaðanna, sem féllu af trjánum og fannhvít varð breiða þeirra á grænu grasinu. An na María Þ órisdóttir 17

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.