Samvinnan - 01.10.1982, Síða 20

Samvinnan - 01.10.1982, Síða 20
Blessuð rjúpan hvíta um sumrum og jafnvel vor og haust, er fór æðandi og eyðandi um holt og iieiðar í leit að lóum og spóum til að skjóla. Meira að segja eggjamæður og ófleyga rjúpuungana skutu þeir með köldu blóði. Og alltaf kvað Sultur garmurinn hafa verið fremstur í flokki, enda varð hann fyrir uppákomu í hinu lífinu eftir andlátið". „Hinu lífinu", mælti litli maðurinn skilningsvana. „Hélt hann áfram að lifa þó hann væri dauður?" „O, hvernig spyrðu, tetrið mitt“, sagði sú aldraða. „Það á nú að heita að þú sért farinn að stauta fermingarlærdóm- inn þinn. Þar ætla ég að standi fullum stöfum: Þótt líkaminn deyi og verði að moldu, deyr sáiin eigi, lieldur fer þang- að, sem henni er ællaður staður. Og eftir dauðann kemur dómurinn". „Já, en livernig fær maður að vita livað gerist í hinu lífinu?", spurði kota- sonur ákafur. „Þú færð kannski að kynnast því, skepnan mín, þó seinna verði“, mælti gamla hróið, dálítið stutt í spuna. „Það sem spekingum er hulið verður smæl- ingjum opinberað." Síðan þagði gamalmennið góða stund og virtist þungt hugsi. Lauk við úrtöku á litlum háleisti og lagði hann frá sér í rúmshornið, fitjaði óðar upp á nýju plaggi, sönglandi fornt og óskiljanlegt rímerindi eða andlegt vers, og sýndist í öðru hálfvegis vera venju fremur annars hugar. Þegar fitin var komin vel á stað, katt- arlúran og hnyklaskjóðan innan seil- ingar, stráksi iðandi á pallkistlinum og gamla konan hafði liugleitl söguefnið enn um stund, mælti hún að lokum: „Jæja, skinnið mitt, það var nú svo- leiðis að gamli Sultur dó drottni sínum í fyllingu lífdaganna og var grafinn, eins og lög gera t'áð fyrir, náttúrlega með pomp og prakt, því þetta var fínt slekti máttu vita. Sjálfur prófasturinn jarðsöng og talaði yfir honum dauðum. Minntist þess, að hann hefði verið afar hlýr sín- um minnstu bræðrum. Talaði með klökkva um óeigingirni hans og hjálp- semi við fátæka. Unt hinn sára söknuð, sem nú ríkti í hjörtum manna og mál- leysingja, við andlát þessa mikilsvirta og elskaða meðbróður. Svo grétu allir við- staddir og þurrkuðu sér um augun, eins og við á, þegar jarðsungið er. Þurr ætla ég þó að verið hafi kotungatárin, sem féllu á moldir hans. Nú svo var að sjálf- sögðu heilmikið „begravelsi", með brauðáti, sírópi og ómældu brennivíni. Og ekki fyrir það synjandi, að fáeinir smælingjar hafi fengið að fljóta með, og einhverju smávegis verið fleygt í svang- inn þeirra. Þó að líkami gamla Sults væri nú dauður og grafinn, var sál hans enn lif- andi, meira að segja bráðlifandi, enda fékk hún að reyna: „Að allir hljótum vér að birtast fyrir dómstóli Herrans, svo sérhver úr býtum beri það, sem hann hefur aðhafst í líkamans lífi, hvort sem gott hefur verið eður illt", eins og ég ætla að segi í Barnalærdómskverinu þínu, hróið mitt. Sál hins dauða fór því ekki að þessu sinni beina leið inn í hina himnesku Jerúsalem, eins og sálir margra sannkristinna manna. Nei, ónei, það var nú eitthvað allt annað, sem fyrir henni lá til að byrja með. Hún fann sig stadda á einhverju auðu svæði, þar sem hún var ein og yfirgefin af öllu kviku og svo rugluð, að hún vissi hreint ekki hvað hún átti af sér að gera eða til bragðs að taka. Þá varð hún hrædd, ofsa hrædd, og fór að hlaupa, hlaupa frá hræðslu sinni, flýja, flýja, fiýja eitthvað út í buskann. Gamli ktamarinn hafði nú lítið getað notað fæturna í seinni tíð fyrir bannsettri fótagigtinni og ólukkans ekki- sens bjúgbólgunni, en hér á árum áður meðan hann var og hét, hefði hann ugglaust getað boðið út í „mara- þonkeppni" hvaða hlaupagikk sem verða vildi í heilum landsfjórðungi, án þess að minnkast sín. En eftir að hann varð gantall og þungur, fór sú íþrótt forgörðum eins og fleira. Þá hættu líka gömlu gistivinirnir og fornir félagar að koma í sumarheimsókn til Islands með byssur og skothunda, í þeim tilgangi að skjóta lóur, lóma, álftir, endur og spóa. Aratugum saman hafði hann verið eggjandi liðsoddur þess óþokkalýðs, sem æpandi æddi um heiðageiminn óhelgri ránshendi, skiljandi eftir sig skelfingu og dauða meðal vængjaðra íbúa hinna kyrru og sumarfögru landa. Síðustu árin hans, þegar þetta gaman vat' vitanlega orðin liðin tíð, var dráps- fýsnin þó enn söm við sig. Þá er eitthvað svíaði elliþunginn og óþægindi efri ára, gat það kontið fyrir á heiðríkum hásum- ardögum, að hann hrifsaði gamla byssu- hólkinn sinn, rórillaði eitthvað útí sól- skinið og reyndi að stúta einum eða tveimur mófuglum. En nú gat hann hlaupið eins og ungur í annað sinn, eins og endurfæddur, það er að segja sálin gat það. Hún þaut áfram tneð þeim hraða, að vindurinn hvein henni í eyr- um, pollar í lækjarsytrum og dýjaveit- um gusuðust hátt í loft upp undan fót- um hennar, lynghríslur slógust um læri og leggi, en birkirunna bar fyrir á fieygiferð. Sálin var snör í snúningum og létt um andardrátt, rétt eins og í gamla daga. Raunar hefði nú þessi þeysisprettur verið bezta skemmtun, ef óttinn hefði ekki aukizt við fióttann, eins og jafnan á sér stað á hlaupum frá hinu ímyndaða og óþekkla. Hræðslan var orðin að mikilli skelf- ingu og allt að því fullvissu um, að hún væri elt af einhverju hræðilegu skrímsli, sem ekki yrði augum litið, og eina vonin um undankomu væri því hamslaus flótti. Og sálin hljóp og hljóp alveg endalaust. Að lokum tók hún að mæðast og fékk hlaupasting. Þá var hún komin að lágum skógarrunnum. Nú skaltu stökkva inn í skógarkjarrið og fela þig, varð hennar fyrsta hugsun. Síðan tróð hún sér langt inn á milli runnanna, að mestu leyti í gagnstæða át' við fyrri stefnu, náttúrlega í blekkingarskyni. A hlaupunum hafði angist hennar hrað- vaxið við hásan blástur og langdregin sog, er hún heyrði að baki sér. I fyrstu heyrðust þessi hljóð með hvíldum, sem urðu smám saman styttri og styttri unz þær hurfu nteð öllu, og óhljóðin sam- einuðust í hvíldarlausa síbylju. Þessi ógnvekjandi hásu óp, þvinguðu sálina lengra og lengra inn í hávaxið og þétt runnakjarrið. Þrátt fyrir andþrengsli og verk undir síðubarðinu, sem olli gífur- legum sársauka, tókst henni með veikum burðum og ítrustu áreynslu að skreiðast niður í dálítið jarðfall í rjóðri 20

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.