Samvinnan - 01.10.1982, Qupperneq 23

Samvinnan - 01.10.1982, Qupperneq 23
ganga betur. Við förum fram hjá eyjunni Þorsteini Islending, sem er skammt ulan við Arsukfjörð. Við mætum dönsku varðskipi á útleið frá Grönnedal, sem er herstöð um 5 km. innan við Ivigtut. Skömmu síðar látum við reka útifyrir „hafnarmann- virkjum" staðarins. • Missti gómsætan bita Þá er kallað í talstöðina; sænskt skip með hollenskri áhöfn, sem hafði verið skannnt á eftir okkur, hefur lenl á ísjaka og fengið gat á lestina, og óskar eftir aðstoð. Mælifellið setur á fulla ferð út fjörðinn til móts við hið nauðstadda skip, en þá kalla Hollendingarnir aftur og afþakka hjálp. Þeim hefur tekist að dæla út ballest, svo að gatið rís úr sjó. N'okkr- um tímum síðar kemur m/s Fenix inn til Ivigtut, siglandi á „rassinum" með stefnið hátt upp úr sjó. Við fögnum því að sjá þá heila á húfi, þótt siglingin sé ekki fögur. Gráðugur ísinn hefur misst góm- sætan bita, en bíður illvígur údfyrir eftir næsta skipi. Það verðum við. • Uak - fiskur af þorskætt Við lestum á rúmum þrem sólar- hringum. Höfundur pistils þessa á ný veiðarfæri frá Ellingsen og rennir í hvert skipti sem látið er reka og tæki- færi er til, sama hvort dýpið er 200 eða 2000 metrar, en verður aldrei var. Það mun ekki þeim að kenna hjá Ellingsen, því við „bryggju" í Ivigtut var Fiskur sem heitir Úak og er af þorskætt drepinn grimmt og hengd- ur upp í vélarrúmi til herslu. Grænlenskir munu lílt hrifnir af Fiski þessum, en herða hann fyrir hunda sína. Að lokinni herslu fór fram könnttn meðal neytenda og leiddi hún ótví- rætt í ljós, að eigi mun álitlegt fyrir Grænlendinga að reyna fyrir sér um kaupendur þessarar vöru á Islandi. Þegar lagt er aftur af stað frá Ivig- tut, höfum við þriggja daga gamlar ísfréttir og samkvæmt þeim er siglt norður með ströndinni. Einhvers- staðar þar -á að vera hægt að snúa í vestur og komast út úr ísnum. Eftir sex tíma siglingu er skipið fast. Enn er reynt tvisvar, en í síðara skiptið komumst við aðeins skips- lengd, uns allt er orðið aftur fasl. • Gönguferð á ísnum Við látum reka í ísnum og morg- uninn eflir, sunnudaginn 4. júlí, erum við enn fastir og það svo kyrFi- lega, að nokkrir ævintýramenn fá sér göngu á ísnum — í óþökk skipstjóra sem lætur sér annt um heill skips- hafnarinnar. Um kl. 16.30 var þó hægt að byrja að nudda að nýju, en með slíkri hægð, að múkki fór syndandi fram úr okkur! Með þessari hægð er þó vísasti vegurinn nokkuð áfram, en gæli annars orðið niður á við. Lítið er um tilbreytingu annað en það, að ísinn tekur fram öllum upp- ákomum í nútíma höggmyndalist - og stöku selur sést svamla í ísnum. Eftir furðu skamma stund greiðist úr ísnum. Við siglum spöl í vestur, síðan suður eða suðaustur, og loks erum við komnir fyrir Hvarf og tökum stórbaug þaðan til Shetlandseyja (það er víst stysta leiðin). Eftir um það bil viku verðum við í kóngsins, eða öllu frekara drottningarinnar, Kaup- mannahöfn - og þessum áfanga lok- ið undir traustri stjórn Sveinþórs skipsljóra og hans ágælu, samhenlu og skemmtilegu áhafnar. + Ein nóttin var sérlega ónæðis- söm. Þá rak okkur undan vindi, en ísinn barst með straumi á móti okkur. Af þessu urðu högg mikil og skruðningar. 23

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.