Samvinnan - 01.10.1982, Page 32

Samvinnan - 01.10.1982, Page 32
Jötunefldur afkasta- maður og engum líkur Eitt öflugt versl- unarfélag er landsmönnum gagnlegra en fjögur smáfélög. landsmönnum, í hið minnsta á því svæði er fjelagið rekur verzlan sína. En eigi var þó þessu að heilsa hjá allmörgum. Margir hafa haldið eigum fjelagsins föstum í verzlunarskuldum, aðrir hafa myndað smá verzlunarfjelög og „pönt- unarfjelög", á sama svæði og Gránufjel. rekur verzlun sína, og nokkrir gerðu hvorttveggja, þótt þeir sjálfir ættu hlut í Gránufjelagi. Það er von að mönnum þyki hið síðast nefnda ótrúlegt, að sömu mennirnir sent eiga hlut í fjelaginu byiji annað fjelag við hliðina, til þess að veikja eða eyðileggja sitt eigið fjelag, eða að slíkt skuli ekki ganga sómatilfmningu þeirra of nærri, að halda fje fjelagsins til þess að geta verzlað og verið í öðru því andstæðu fjelagi; en þó er þetta satt. Svona eru nú á þessum „síðustu og verstu tímum“ skoðanir sumra rjettlátar og sæmilegar í verzlunarviðskiptunum.4) Sem betur fer, eru þó ekki allir með þessu markinu brenndir, því hjer skal með þakklæti viðurkennt, að margur góður drengur hefur með dáð og dyggð, stutt fjelagið frá byrjun þess til þessa dags, jafn kappsamlega í orði og verki, sem skuldaþrjótar og liðhlauparar fjelagsins hafa reynt að rífa það niður, sem hinir hafa byggt. • Eitt verzlunarfjelag gagnlegast Líklegt er að menn geli sjeð, þótt eigi hafi þeir mikla verzlunarþekking, að eitt öffugt verzlunarfjelag er landsmönnum gagnlegra en 4 smáfjelög, eða væri því skipt í 4 fjelög. Eitt öflugt tjelag hefur meira lánstraust en mörg smáfjelög sitt í hverju lagi, það getur rekið öflugri verzlun, verkað meira á almennt vöru- verð, og fremur komið á stofn kostnað- arsömum fyrirtækjum, sem smá fje- lögum er of vaxin. Sjeu þessi atriði rjett hermd, er þá rjett gert að dreifa kröpt- unum, og reyka frá einu til annars sem ráðviltur maður? Þegar unt stofnun nýrra verzlunarfje- laga er að ræða, þá verður það fyrir- komulag að silja í fyrirrúmi, sem útlit hefur til að verða traustast til frambúð- ar, og hafa mest áhrif á almennt vöru- verð, svo Qelagið geti orðið sem flestum að gagni. Þótt nokkrir efnamenn í svo- nefndum sntá „pöntunarfjelögum" geti greitt verð fyrirfram fyrir vörur handa sjer, þá hafa fátæklingarnir ekki gagn af því, og gerir enga breyting á hið al- menna vöruverð. Varanleg verða þau heldur ekki. Hvort [þ.e. hvert] það fje- lag sem eigi er stofnað með fastri inn- stæðu er haldlaust til frambúðar, eins og hvert það fyrirtæki sent með tómum höndum er byrjað. Þegar landbóndinn byrjar búskap, sjóntaðurinn sjávarútveg, eða handiðnamaðurinn iðn sína alveg fjelausir, þá farnast þeim sjaldan vel, alveg sama lögmáli er verzlanin háð. Skaði á vörum og margvíslegur ófyrir- sjáanlegur kostnaður getur á fallið, svo óhjásneiðanlegt verði að jafna því gjaldi niður á fjelagsmenn þegar enginn sjóð- ur er til, til að taka þvílík útgjöld af; eitt eða tvö fyrstu árin getur þetta ef til vill heppnast, en þegar framlíða stundir, þá má eigi búast við fullum skilum frá öll- um fjelagsmönnum, auk þess sem staða þeirra, sem stýra eiga slíkum fjelögum, verður ervið og í margvíslegri óvissu, bæði gagnvart fjelagsmönnum og lán- veitendum fjelagsins. • Skammlíf pöntunarfjelög Margir eru þeir samt, sem ekki hafa þessa skoðun; nokkur ár eru síðan að menn við Isafjörð og á Suðurlandi byrjuðu svo nefnd „pöntunarfjelög", sem nú eru gengin til grafar. I Þing- eyjarsýslu er enn þá eitt slíkt fjelag nokkurra ára gamaltr’) Ekki er ólíklegt að hinir efnabetri menn, sem hafa getað verið í því, hafi haft nokkurn hag við það, þar sent minni kostnaður fellur á vöruna, og ekki er að stríða við stórar verlunarskuldir, en að það hafi gagnað fátæklingum sem eigi voru í fjelaginu, eða að það hafi verkað á almennt vöru- verð, veit jeg ekki til. Fyrir 5 árum byrjaði pöntunarljelag við Eyjafjörð, og varð þá að eins missiris gamalt, á Suðurlandi spratt það upp aftur ári síðar rnjög stórvaxið og bráðþroska, en náði þó eigi að verða eldra en tveggja ára því það snerist þá upp í alveg útlenda verzlun, sem eins og fyrri náði ekki 2 ára aldrinum og varð að hætta með miklum skaða.b) I Skagafjarðar og Húnavatnssýslum hafa tvö undanfarin ár verið stór pönt- unarfjelög, en útlit er fyrir að þau í ár verði ekki jafn fyrirferðarmikil sem áður, og að skynsamari menn sjeu farn- ir að sjá talsverðan annmarka við þau, einkum aukning munaðarvörukaupa, og minni peningafiutning inn í landið. Á Austurlandi er pöntunarfjelag ný- byrjað, sem í ár hefur eflzt mjög. Góð loforð um skilvísi er höfuðstóllinn, pen- ingar engir, vörurnar eftir gömlum vanda teknar að láni. Að jeta fyrir sig fram og borga í hægðum sínum, það er hámóðins á þessum tímum í flestum við- skiptum manna hjer á landi. Sú er og önnur grein nýja móðsins, sem jafn- mikið er í hávegum höfð: að koma á framsóknarfrelsisframfarafundi, steypa þar sápubólur, greiða atkvæði um margt og niikið og gleynta svo framkvæmdun- um á flestu, þegar heim kemur í bú- skapar og skuldabaslið. Svo rnikið hafa ntenn hugsað um verzlun og fjelög á seinni árum, að skoðun alþýðu í því efni ælti að hafa tekið framförum, en því fer fjarri, að svo sje. Fyrir 15 árum álitu menn það vera sjálfsagt, að hafa sameiginlegan fje- lagssjóð til innkaupa og ýmsra útgjalda, en nú hlaupa menn saman í smáfjelög tómhentir; sje betur að gætt, þá gengur fjelagsskapur sumra þessara fjelaga út á það, að fá lána'öar vörur í fjelagsskap, og 32

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.