Stéttabaráttan - 11.07.1975, Page 1
ÖREIGAR ALLRA LANDA SAMEIMST/
Kjaraskerðingin og
orsök hennar
Vísitala framíærslukostnaðar hefur
haskkað úr 297 stigum í ágúst "74. í
342 stig í nóvember sama ár. I
febrúar 1975 var hún 372 stig. Hún
hefur því hækkað um 75 stig á sex
mánuðum. I febrúar var verðbólgan
. 53, 8% samkvæmt skýrslu OECD og
er Island því mesta verðbólguland
Handaband samherja fyrir auknum groða auðvaldsins.
Jón H. Bergs, VSl.
Björn Jónsson, ASl-
í Evrópu.
A þessum sama tíma hækkuðu laun
þó nær ekkert, þrátt fyrir að fram-
færslukostnaðurinn hafi hækkað um
43,4% frá því í ágúst 1974 til l.maí
síðastliðinn. Til þess að vinna gegn
þeirri miklu kjaraskerðingu sem
verðbólgan leiddi af sér fóru verka-
lýðsfélögin ftam á nokkrar kjara-
bætur og auk þess kauptryggingu.
Launakröfurnar sem verkalýðs-
forystan fór fram á voru lágar miðað
við kjaraskerðinguna. Til þess að
sanna þetta skulum við taka nokkur
dæmi.
Verkamaður sem hafði 43000 kr. á
. mánuði í maí síðastliðinn hefði orðið
að haskka um 17000 kr. á mánuði eða
um 39,6%.
Kjaraskerðingin hafði þó orðið enn
meiri hjá þeim sem höfðu hærri
laun. Sá sem hafði 54000 kr. á
mánuði f dagvinnu hefði þurft að
hækka um 46,7% eða um 25000 kr, á
mánuði til að ná upp kjaraskerðing-
unni. Sá sem hafði 69000 kr. í maí
síðastliðinn hefði átt að haskka um
hvorki meira né minna en 73,7%,
en það gerir um 51000 kr. hækkun
Framh. bls. 3
Rikisstjórn Indiru Gandhi
kastar burt lýðræðisgrímunni
Þann 26, júní sl. sendi ríkisstjórn Indlands út mikinn fjölda hermanna og
lögreglú til að handtaka leiðtoga samtaka og flokka sem voru andstæðir
stjórninni. Um leið var komið á ritskoðun og lýst yfir neyðarástandi í
landinu, sem gaf Indiru Gandhi alræðisvald og "réttlæti" hersveitir og lög-
reglu á götunum til að tryggja að öll andspyrna yrði samstundis barin niður
Ep hver er sú ógn sem steðjar að landinu og Indira Gandhi höfðaði til er
hún lýsti yfir neyðarástandi. Hvernig er öryggi landsins svo í hættu að það
"rettlæti" þessar aðgerðir:
Svaranna við þessum spurningum er
auðvelt að leita. Síðan hæstiréttur
Indlands fann Indiru Gandhi seka um
stórfellt kosningasvindl og aðra
spillingu og svipti hana rétti til þing-
setu, hafa raddir sem krefjast þess,
að hún segði af sér, orðið æ hávær-
ari. Stjórnarandstaðan hefur kraf-
ist tafarlausrar afsagnar hennar og
alþýðan hefur farið út á göturnar I
mótmælagöngur og fundi til að berj-
ast gegn hinni gjörspilltu stjðrn og
ólýðræðislegum stjórnaraðferðum
hennar. Þegar Indira Gandhi stóð
frammi fyrir háværum röddum þjóð-
arinnar um afsögn hikaði hún ekki
við að kasta burt síðasta fíkjublaði
lýðræðisins og taka sér alræðis-
vald.
Undanfarin 10 ár, síðan Indira Gan-
dhi tók við völdum í Indlandi, hefur
hún gert sitt besta til að verja hags-
muni stór-jarðeigandastéttarinnar
og fjármálaauðvaldsins, og hún hef-
ur haft gífurlega afturhaldssama
stefnu í innan- og utanríkismálum.
Innanlands hefur Indira Gandhi
stjórnað sem einræðisherra og kúg-
að og ofsótt byltingarhreyfingarnar I
landinu, ráðist með her og lögreglu
gegn verkalýðnum, sem krafðist
meira frelsis og betri lffsskilyrða.
"Indira er Indland og Indaland er
Indira" er innihald stefnu hennar,
og þeir sem lúta henni græða á því,
en þeir sem berjast gegn henni
hverfa. Það er sama lögmálið og
ríkti í Þýskalandi á tímum Hitlers.
Þó var Indira svo ósvífin að segja í
ræðunni, sem hún hélt, er lýst var
yfir neyðarástandi, að þetta væri
m. a. gert til að vernda lýðræðið:.'
Hvað sögðu herforingjarnir í Chile
er þeir tóku völdin þar ?
1 sömu ræðu taldi Indira stjórn sinni
til hróss, að "hún hefði gert margar
framsýnar aðgerðir til hagsbóta al-
þýðu Indlands". Þetta er ekkert
annað en lýðskrum af sama tagi og
Göbbels iðkaði. Það er hverjum
manni á Indlandi ljóst, að afleiðing-
ar stjórnarstefnu Indiru eru þær, að
efnahagur landsins er í rústum.
Framleiðsluaukningin er lítil sem
engin, verð á neysluvörum langt
fyrir ofan kaupgetu almennings, mat-
vælaskortur gífurlegur, og plágur og
sjúkdómar herja á alþýðu landsins,
Menningarstig þjóðarinnar er lágt,
ólæsi útbreitt og atvinnuleysi mikið
og landlægt. Manrii er spurn: Eru
þetta hagsbætur þær sem stjórnin
hefur fært alþýðunni.
A alþjóðasviðinu hefur Indira lagst
hundflöt fyrir fótum Kremlherranna
og efnahagur 'landsins er mergsoginn
af Sovétríkjunum. Indira Gandhi hef-
ur farið með árásarstríð á hendur
friðsömum nágrönnum sínum og
reynt að leika hlutverk stórveldis í
Suður-Asfu. Afturhaldsstjórn henn-
ar hefur vakið upp.gffurlega öldu
mótmæla bæði innanlands og í ná-
grannaríkjunum, og þær fasfsku að-
gerðir sem Indira stendur fyrir nú,
eru ekki annað en máttvana tilraunir
til að lægja öldur hinnar dýpkandi
pólitísku- og efnahagslegu kreppu,
sem landið siglir nú hraðbyri ofanf.
Sovétríkin eru dyggur bandamaður
Indiru Gandhi f þessum aðgerðum
hennar og Tass og Novosty hafa
dyggilega reynt að breiða út að frá-
sagnir um kosningasvindl Indiru og
kúgunaraðgerðir hennar séu ekki
annað en uppspuni, sem stjórnarand-
staðan og öfgamenn séu að breiða út.
f þeim tilgangi að grafa undan lýðræð-
inu í Indlandi. Skrýtið, en þetta
sama má lesa í Mogganum.
Staðreyndin er sú, að Indira Gandhi
er fulltrúi hins svartasta afturhalds í
Indlandi og hún stendur á móti hags-
munum yfirgnæfandi meirihluta Ind-
verja. Indland tilheyrir indverskri
alþýðu, og að þvf mun koma að hún
mun sýna það í verki. Kúgun marg-
faldar mótstöðuna.
-/ÖI, byggt á Héinhua fréttabréfi,
þ. 3. júlí.
Kvennaráðstefna SÞ:
Sigur fyrir baráttu fram-
sækina kvenna í heiminum!
Nú er nýlokið alþjóðlegri kvennaráðstefnu á vegum Sameinuðu Þjóðanna í
Mexíkóborg. Alyktun ráðstefnunnar, sem samþykkt var með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða, er merkur áfangi í frelsisbaráttu kvenna um allan heim.
f ályktuninni er lögð áhersla á að barátta kvenna verður ekki slitin úr
tengslum við baráttu gegn heimsvaldastefnu, baráttu gegn Zíonisma og bar-
áttu gegn kynþáttastefnu. Niðurstaða ráðstefnunnar vísar veginn fram á við
í baráttu kvenna og gefur kvennahreyfingunni á Islandi og í öðrum vest-
rænum ríkjum tilefni til að hefja uppgjör við hinn borgaralega femínisma.
höfuðvfgi borgaralegs femfnisma á
fslandi. Vilborg er æf vegna þess að
"alþjóðapólitíkin ríður húsum" á ráð-
stefnunni, því vitanlega finnst frú
Vilborgu óhugsandi að barátta fyrir
frelsi kvenna snerti nokkurs staðar
alþjóðapólitísk mál.1 Henni þykir
"gæta tilhneigingar til þess að skella
allri skuldinni á kerfið, kapítalism-
ann og stórveldapólitíkina. Það er
náttúrlega alveg rétt," heldur Vilborg
áfram, " að heimsfriður og afnám -
heimsvaldastefnu og kapítalisma eru
forsendur fyrir því að algert jafnrétti
náist. En þessi ráðstefna er vett-
vangur fyrir baráttuna f dag, og ef
talið er þýðingarlaust að berjast fyr-
ir réttindum kvenna einum sér, er
alveg eins hægt að halda áfram þjark-
inu um ólík efnahagskerfi og afnám
heimsvaldastefnu á sameinuðu þjóða
þinginu f New York. "
-Já Vilborg, þarna hittirðu óvart nagl-.
ann á höfuðið; það er nefnilega ein-
mitt "þýðingarlaust að berjast fyrir
auknum réttindum kvenna einum sér.''
Vilborg: "Alþjóðapólitíkin rfður hús-
um."
Islenska hægri stjórnin sendi þrjár
frúr á ráðstefnuna, íhaldsfrúna Auði
Auðuns, Framsóknarfrúna Sigrfði
Thorlacius og Alþýðubandalagsfrúna
Vilborgu Harðardóttur, blaðamanna
við "málgagn sósfalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis", þ. e.
Þjóðviljann.
Þjóðviljinn birti þann 28. júní s. 1.
viðtal við frú Vilborgu, þar sem hún
lætur m. a. hafa eftir sér:
"Eg hélt f einfeldni minni að unnið
yrði af einlægni að þvf að finna sam-
nefnara fyrir kröfur kvenna og bar-
áttu þeirra hvarvetna f heiminum.
Þess f stað hefur alþjóðapólitíkin
úr sölum Sameinuð'u þjóðanna ríðið
húsum hér. Umræður einkennast ■
mjög af pólitísku þrasi milli araba
og ísraela, sovétmanna og kínverja"
I þessum orðum Vilborgar endur-
speglast pólitík Alþýðubandalagsins í
baráttumálum kvenna; "flokkur
verkalýðsins" er nefnilega orðinn
Framh. bls. 5
CIA-rannsóknin í USA'-
skopleikur settur á
svið af stjórnvöldum!
Það er öllum ljóst, að það liggur meira að baki þeim uppljóstrunum, sem
"Nefnd forsetans til að rannsaka starfsemi CIA", hefur komið með, heldur
en komist hefur fyrir augu almennings. Markmið nefndarimiar er greinilega
að koma í veg fyrir djúptæka rannsókn á atferli CIA, og um leið að endur-
skipuleggja leyniþjónustuna svo hún Jjjóni betur markmiðum bandarísku
heimsvaldastefnunnar í dag. Rannsoknin þjónar þeirri stefnu sem Ford og
Kissinger fylgja.
Það getur verið ansi fróðlegt að at-
huga hverjir skipa rannsóknar-
nefndina, auk Rockefellers.
.1. C. Douglas Dillon. Hann er fjár-
málamaður, forstjóri Dillon, Read
& CO, og ráðuneytisstjóri í Ffár-
málaráðuneytinu í stjórnum Kennedy
og Johnsons. Hann er auk þess for-
maður Rockefeller sjóðsins og með-
limur f klúbbi áhrifamanna úr stjórn-
artíð Kennedys og Johnsons (eins-
konar skuggaráðuneyti).
En athyglisverðast er að Dillon var
einn forgöngumanna fyrir fundi sem..
haldinn var með Utanríkisráðu-
neytinu og Richard Bissel, einum
æðstu manna CIA. Markmið fundar-
ins var að ræða ýmsa neðanjarðar-
starfssemi CIA og íhlutun CIA í innri
málefni annara rflcja í gegnum inn-
lendar stofnanir. Bissel þessi var
settur af eftir hina misheppnuðu
Svínaflóainnrás. Dillon er valda-
mikill einokunarkapítalisti með
mikla starfsreynslu f að skipuleggja
Framh. á baksfðu
ROCKEFELLER NEFNDIN AÐ STÖRFUM
"Eg læt drengina mína fjalla um þitt mál.þú hefur ekkert að óttast."