Andvari - 01.01.1983, Blaðsíða 34
32
BJARNI VILHJÁLMSSON
ANDVARI
cinnig getað gert stórt verk í Jalangurs/Mammen stíl. Þar með er ekki
sagt, að hann hefði getað gert mikið listaverk. Það veit enginn. En hann
heíur verið heima í stílnum, hann hefur haft 'hann í blóðinu. Þess vegna
ber litla dýrið úr Papey okkur milliliðalaus boð úr hugarheimi 10. aldar.“
Aður en þessari ritgerð lýkur, skal nú vikið að fjölskyldu og heimilis-
högum Kristjáns.
Ánægjulegt og friðsælt heimili er hverjum manni, hvaða störfum sem
hann gegnir í þjóðfélaginu, ómetanlegur styrkur. í þeim efnurn átti Kristján
sannri hamingju að fagna. Gagnkvæm virðing þeirra hjóna var einnig for-
senda þess, hve mikillar virðingar þau nutu með þjóðinni.
Þau Kristján og Halldóra Eldjárn gengu í hjónaband á Isafirði hinn
6. febrúar 1947. Frú Halldóra er ættuð af Vesturlandi, dóttir hjónanna
Ingólfs Árnasonar, framkvæmdastjóra á Isafirði, og Olafar Jónasdóttur.
Þeirn Kristjáni op Halldóru varð fjöpurra barna auðið, op eru hau nú
m fulltíða fól'k:
1. Olöf Eldjárn, cand. mag., gift Stefáni Erni Stefánssyni arkite'kt.
2. Þórarinn Eldjárn, bókmenntafræðingur og skáld, 'kvæntur Unni
Ölafsdóttur veðurfræðingi.
3. Sigrún Eldjárn, myndlistarmaður, gift Hjörleifi Stefánssyni arkitekt.
4. Ingólfur Árni Eldjárn, við nám í tannlækningum.
Eftir því hefur verið tekið, að miklir starfsmenn kvarta oft síður undan
tímaskorti en hinir, sem minna verður úr verki. Það á sannarlega við um
Kristján. Eins og nærri má geta var hann víðlesinn í íslenzkum bókmennt-
um að fornu og nýju, þar með töldum verkum hinna yngstu höfunda, hvort
sem þeir eru almennt taldir efnilegir eða að flestra dórni lítt ráðnir. Sama
máli gegnir um ýmsar aðrar listgreinar. Hann gerði sér far um að skoða
listir jaifnt sem mannlífið af hleypidómaleysi. Til 'hans leituðu einnig
ýmsir í margvíslegum vanda, einmitt af því að þeir vissu, að hann var góð-
gjarn og ráðhollur. Það var einnig undravert, hvað hann gat gefið sér tíma
til að heimsækja vini sína og kunningja, ef sjúkdóma eða harma bar að
höndum. Það var því ekki aðeins embættismaðurinn, vísindamaðurinn eða
hinn mi'kli orðsins maður, sem menn hrifust af, heldur einnig maðurinn
Kristján Eldjárn eins og hann birtist og kom mönnum fyrir sjónir í dagsins
önn og erli.