Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1983, Page 51

Andvari - 01.01.1983, Page 51
ANDVARl EFTIR NJÁLSBRENNU 49 fyrra vísuhelmingi, og af Gizuri nam þetta óþekkta skáld þá snilld að nota orð í skyldri merkingu (minni: minnigur) í síðara helmingi. Þótt setningarnar Skadi kennir mér minni og Eg er minnigur að mínu meini séu vitaskuld persónulegs eðlis í vísunum tveim, þá má sennilegt þykja, að þar liggi eitthvert spakmæli að baki. Eg þekki einungis einn orðskvið í fornbókmenntum vorum, sem hefði getað verið kveikjan að þessum tveim setningum, og er hann að finna í Ljósvetninga sögu: Muna þeir mein er þiggja. Um uppruna þessa máls- háttar getur lítill vafi leikið, því að hann mun vera þýðing á frægum orðum eftir rómverska höfundinn Cicero: QUI DOLUIT, MEMINIT. Orðrétt merkir þetta: ,,Sá man, er sársauka þolir,“ og skortir þá þýðingu hnitmiðað orðalag Rómverjans, enda verður ekki annað sagt en að erfitt sé að betrumbæta þýð- inguna í Ljósvetninga sögu.1 Mönnum hefur löngum verið Ijóst, að lýsingunum á Flugumýrarbrennu (í íslendingasögu Sturlu Pórðarsonar) og Njálsbrennu svipar mjög saman. Um hitt eru menn ekki á einu máli, hvernig skýra beri þenna skyldleika. I ritgerð- um sínum rekur Barði Guðmundsson ýmis atriði, sem eru náskyld í brennu- sögunum tveim, og ætlar hann, að þar sé um bein rittengsl að ræða.2 Með öðr- um orðum: höfundur Njálu hefur lesið Islendingasögu, áður en hann skrifaði harmsögu Njáls. Einar Ólafur Sveinsson, sem ritað hefur manna bezt um Njálu, er þó á öðru máli. Þótt hann telji upp ófá rit, sem söguhöfundur muni hafa þekkt, þá telur hann íslendingasögu Sturlu Þórðarsonar þar ekki með. Um Njáluhöfund farast Einari Ólafi orð á þessa lund: „Sjálfsagt hafa honum verið mjög hugstæðar brennur þær, sem urðu á 12. og 13. öld, en það er eins og hann hafi heldur litið aftur í tímann; fátt eitt er verulega líkt í Njálsbrennu og Flugumýrarbrennu eða Þorvaldsbrennu, sýnu meira líkt í Önundarbrennu og Hí tardalsbrunanum.“3 Enginn vafi getur leikið á því, að Barði Guðmundsson hefur rétt fyrir sér að því leyti, að höfundur Njálu hlýtur að hafa þekkt Islendingasögu Sturlu Þórðarsonar. Hins vegar skyggir það mjög á allar röksemdir hans, að hann mið- ar skyldleika þessara tveggja rita yfirleitt við þá kynlegu hugmynd, að Þor- varður Þórarinsson hafi verið höfundur Njálu. Auk þess hefur Barði ekki skeytt um að bera Njálu saman við ýmis önnur rit, sem höfundur hennar hefur víslega þekkt. Hins vegar hefði Einar Ólafur Sveinsson getað gefið íslendinga- sögu Sturlu Þórðarsonar meiri gaum en hann gerir í raun og veru. 1 Um sársauka og þjáningu í íslenzkum fornbókmenntum mætti rita Iheila bók, en hér leyfi ég mér einungis að minna á þrjá staði í ritum mínum: Siðfræði Hrafnkels sögu (bls. 77—86), Úr hugmyndaheimi Hrafnkels sögu og Grettlu (bls. 43-45) og Sagnagerð (bls. 27-32). - Ritgerðum Barða var safnað saman að honum látnum, og þær sem lutu að Njálu og öðrum bókmenntum þrettándu aldar voru gefnar út árið 1958 í bók, sem ber heitið Höfundur Njálu. Hugmynda hans um áhrif íslendingasögu á Njálu gætir á bls. 228 og víðar. 3 Vitnað er til formála Einars Ól. Sveinssonar að útgáfu á Brennu-Njálssögu (1954), cxiv-cxv. 4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.