Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1983, Page 73

Andvari - 01.01.1983, Page 73
ANDVARI Ahrif kulda A þróun og viðhald menningar 71 Jafnframt því sem kuldar jukust á norðurslóðum, mun samkeppni manna þar hafa vaxið. I hörðu árferði reyndi á fyrirhyggju, og þeir einir lifðu af vet- urinn, er höfðu hæfileika og forsjálni til að búa sig undir og standast hvers konar illviðri. Það mun því hafa verið þrautreynt lið, er um síðir komst til hlýrri landa, sennilega miklu færara en það fólk, sem þar bjó fyrir. Aðkomu- menn höfðu forgöngu um vatnsáveitur og ræktun, og jarðyrkja kom nú í stað veiðimennsku og þess háttar fæðuöflunar. Sú menning, sem fram kom á þessum tíma í suðlægum löndum, virðist eiga rætur að rekja til manna, sem komizt höfðu lifandi úr ísaldarhörkunum. Skynsamir menn gátu reiknað út veðrabreyingar og árstíðaskipti, og þannig var unnt að gera áætlun um undirbúning jarðvegs til sáningar og uppskeru. Þeir reistu hallir, skipulögðu borgir og gerðu vegi. Nýting málma og annarra byggingarefna jókst, og ritlist hófst. Þannig tókst norðanmönnum að hasla sér völl og sækja á í flestum greinum. Senni- lega er það ekki tilviljun ein, að menning reis á svipuðum tíma á mismunandi stöðum heims. Nú vaknar auðvitað sú spurning, hvort auknir hæfileikar þjóða af norður- slóðum verði raktir til sannanlegra erfðabreytinga. Yfirleitt er talið, að allir núlifandi menn séu að mestu leyti af sama bergi brotnir í erfðalegu tilliti, þótt smábreytinga hafi gætt, t. d. í augnalit eða líkamsstærð sem aðlögun að stað- bundnum aðstæðum. Ekkert bendir til, að erfðaefni sumra manna hafi stöðugt farið batnandi og þannig leitt til greinilegra kynbóta. Menn á norðurslóðum voru hörundsbjartari, svo að þeim nýttist sólargeislarnir betur til myndunar D-vitamíns. Þegar sumir þeirra síðar fluttust til Indlands, urðu þeir dökkir á hörund og stóðust þannig betur skaðleg áhrif sólarljóssins. Á hinn bóginn héld- ust auknir andlegir hæfileikar ekki til frambúðar, heldur fór svo að lokum, að framfarahugur þvarr og hnignun tók við. Afkomendur menningarþjóðanna stóðu þá ekki lengur öðrum jarðarbúum framar, og þeir gátu ekki lengur lesið hin fornu rit. Slíkur afturkippur virðist jafnan verða eftir runnið blómaskeið. Þegar homo erectus þróaðist í homo sapiens, urðu þar stórfelldar erfðabreyt- ingar, og þær héldust til frambúðar. Sennilegt er, að hin bætta afkoma homo sapiens verði einnig rakin til erfðaeiginleika, sem þó reyndust ekki alltaf varan- legir. Ekki hefur tekizt að skýra, hvaða reglum þessar síðari breytingar lúta. Vonir hafa þó aukizt nýlega á því, að skýringar fáist á lífrænum undir- stöðum sveiflna í erfðabúningi nútímamannsins. Er framfara í þeim efnum m. a. að vænta frá íslandi. Sérstakar aðstæður og ættfræðiáhugi auðveldar rannsóknir á íslenzku þjóðinni, sem erfitt er að koma við í öðrum löndum. Ein kenningin er sú, að auknir hæfileikar verði oft raktir til erfðablendinga, að þeir, sem bera á réttum stöðum eitt virkt gen og annað óvirkt, standi sig betur í samkeppninni en hinir, sem fæðast með tvö virk gen af þeirri tegund. Til dæmis benda íslenzkar rannsóknir til, að stundum séu auknir hæfileikar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.