Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1983, Page 78

Andvari - 01.01.1983, Page 78
76 JÓN SIGURÐSSON ANDVARI verðbólgu. Auk þess er þessi þróun skað- leg stöðu landsins út á við bæði beint og óbeint. Atvinnuástand hefur til þessa haldizt gott, eða að minnsta kosti viðunandi, en sífellt erfiðara verður að halda at- vinnurekstri gangandi. Þó virðist enn á skorta, að menn geri sér almennt fylli- lega ljóst, hversu mikill dragbítur verð- bólgan er á hagsæld og framfarir í land- inu. Verðbólgan torveldar heimilum, fyrirtækjum og opinberum aðilum að meta rétt verðhlutföli og breytingar á þeim og kemur þannig í veg fyrir hag- ‘kvæma nýtingu gagna og gæða. Verð- bólgan gerir einnig erfitt um vik að meta réttilega raunverulega arðsemi mismunandi fjárfestingar og verkefna og dregur þar með úr hagvexti. Verð- bólgan færir til tekjur og eignir og skatt- leggur peningaeign. Öll þessi áhrif verð- bólgunnar valda félagslegri spennu og togstreitu og kalla á margháttaða opin- bera íhlutun og afskipti, sem annars væri ekki þörf. Allt er þetta til þess fallið að veikja hagkerfið og stjórn- kerfið og grafa undan góðum stjómar- háttum. Úr ýmsum þeim kostnaði, sem af verðbólgu leiðir, dregur, éf við henni er búizt. En hins vegar er örðugt að sjá verðbóigustigið nákvæmlega fyrir, sér- staklega þegar hún hefur komizt á flug- stig, en þá hættir henni til að ganga með rykkjum og skrykkjum. Allt er þetta gamalkunn gagnrýni á verðbólgu- ástand, og mætti ugglaust taka miklu dýpra í árinni um það tjá og tundur, sem henni fylgir, að minnsta kosti um þessar mundir, þegar útlit er fyrir, að verðbólgan stefni í þriggja stafa tölur miðað við heilt ár, verði ekki snúizt til varnar með ákveðnum hætti. Það er því ekki að ástæðulausu, að menn setja á langar ræður gegn verðbólgu. Víst er um það, að á undanförnum árum hefur hjöðnun verðbólgu í orði kveðnu verið margyfirlýst markmið í efnahagsmálum. Hvað eftir annað hefur því verið lýst yf- ir, að úr verðbólgu verði að draga. En því miður er meira djúp staðfest á milli viljayfirlýsinga og verka, að ekki sé minnzt á árangur, í þessu efni en í nokkrum öðrum málaflokki í íslenzk- um stjórnmálum. Nú virðist hins vegar stéfna í slíkt óefni, að ekki verði kom- izt hjá róttækri stefnubreytingu, er taki til allra þátta efnahagskerfisins. Þörf er fyrir samstillta efnahagsstefnu, sem í senn nýtur þingfylgis og viðurkenningar og skilnings alls almennings og hags- munasamtaka. Markmiðið er að draga úr verðbólgu og viðskiptahalla, en tryggja jafnframt viðunandi atvinnuástand og treysta grundvöll atvinnulífsins. Þetta verkefni er tvíþætt. Fyrst er þörf fyrir viðnáms- og jafnvægisráðstafanir, varnaráætlun, sem feli í sér brýnustu ráðstafanir gegn verðbólgu og viðskiptahalla og komið gæti í veg fyrir atvinnuleysi á næstunni. Jafnframt þarf að vinna að ráðstöfun- um til að efla varanlegar framfarir í at- vinnumálum og treysta undirstöður hag- vaxtar. Þessir tveir þættir fléttast saman á marga vegu, en fyrst nokkur orð um fyrri þáttinn, sem ég nefndi. Viðnáms- og jafnvægisráðstafanir Spáð er um eða yfir 20% hækkun næðisliðar vísitölunnar, sem veldur nú framfærsluvísitölu á tímabilinu frá óvenjumikilli hækkun. Þótt tillit sé tekið febrúar til maí. Að hluta stafar þessi til þessa, er engu síður ljóst, að verð- geysimikla hækkun af ársuppgjöri hús- bólguhraðinn sem undir býr er mun
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.