Fréttablaðið - 17.09.2009, Side 24

Fréttablaðið - 17.09.2009, Side 24
Stundum getur lýti verið það sem gerir fyrirsætu eftirsókn- arverða. Bil á milli framtanna þykir ekki alltaf til prýði. Það virðist þó vera það sem setur punktinn yfir i-ið hjá nokkrum heimsfrægum fyrirsætum. Tannréttingar koma þannig líklega ekki til greina hjá fyrirsætum á borð við Georgiu May Jagger, dóttur Micks Jagg- er, sem er að hefja fyrirsætufer- il sinn og hefur þegar náð vin- sældum, og Löru Stone sem er á hápunkti feril síns og gríðar- lega vinsæl hjá tískuhönnuðum þótt hún þyki heldur stórbeinótt og noti stærð númer tíu í bransa þar sem stærð núll þykir eftir- sóknarverð. Aðrar íðilfagrar konur sem hafa skartað bilinu góða eru þær Brigitte Bardot og Vanessa Paradis. Bil sem skiptir máli Bardot er með einkennandi bil á milli tannanna. Fyrirsætan Lara Stone á forsíðu i-D. VINTAGE-VEFSÍÐUR, sem selja kjóla og hátískuföt frá fyrri áratugum hafa notið mikilla vinsælda. Elle hefur sagt síðuna www.poshgirlvintage. com í hópi þeirra bestu en þar má til dæmis finna mikið úrval brúðarkjóla. Einungis tvær fylgihlutalínur voru valdar til að taka þátt í tískuvik- unni sem haldin verður í Las Vegas í febrúar komandi. Önnur þeirra er íslenska línan Gyðja Collection. „Ég er bara virkilega stolt af því að verða fyrir valinu. Þetta var nokkuð langur ferill, ég sýndi þessu áhuga og síðan liðu tveir mánuðir þar sem matsnefnd kallaði eftir alls konar gögnum og loks var tekin ákvörð- un og mér boðið að vera með,“ segir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir sem stendur á bak við Gyðju Collection. Hún sérhæfir sig í að hanna skó, töskur og belti í stíl úr framandi hráefnum á borð við snákaskinn og geitaleðri. Í Las Vegas verður sýnd nýjasta lína Gyðju Collection. „Línan er glamúrkennd en samt sem áður eru allir hlutirnir úr mjög vönduðu efni. Ég leik mér sérstaklega við hælana á skónum og reyni að gera þá svolít- ið öðruvísi,“ segir Sigrún Lilja sem vill að konur veki athygli þegar þær skarti skóm eða töskum hennar. Á sýningu á borð við tískuvikuna í Las Vegas sækir stjörnufans enda fylgjast stjörnurnar vel með nýj- ustu straumum og stefnum í tísku- heiminum. Að auki er gert ráð fyrir að stjörnur leynist inn á milli í hópi fyrirsætnanna. Til dæmis þykir líklegt að vinningshafinn úr fjórðu seríu hinna vinsælu þátta America ś Next Top Model, Naima Mora, verði ein af fyrirsætunum. Sigrún Lilja verður með eigin tísku- sýningu á línu s i n n i . Hú n hefur hug á að tengja sýningu sína við Ísland á einhvern hátt. „Kannski verð ég með ein- hverja íslenska fyrirsætu og svo er ég með fleiri hugmyndir sem ég á eftir að móta að fullu,“ segir hún. Tískuvikan fer fram á hótelinu Green Valley Ranch sem er eitt af glæsilegri hótelum í þessari ein- stöku borg. Gyðja Collection er væntanleg í verslanir hérlendis í haust og verður línan meðal ann- ars fáanleg í verslun- um Stein- ars Waage. Þeir sem vilja kynna sér línu Sig- rúnar Lilju nánar er bent á vefsíðuna www.gydja.is solveig@ frettabladid.is Tekur þátt í tísku- viku í Las Vegas Fylgihlutalínunni Gyðju Collection hefur verið boðið að taka þátt í tískuvik- unni í Las Vegas sem haldin verður í febrúar 2010. Skvísuleg snáka- og krókódíla- stígvél. Sigrún Lilja Guðjónsdóttir stofnaði Gyðju Collection árið 2007. Stígvél úr leðri og snákaskinni, með áföstu ökklabandi og skreyttum hæl. Túrkísblátt kokkteilveski úr snáka- skinni með úlnliðsól og fínlegir skór í sama lit. Sigrún Lilja hannar veski og skó í sama stíl. Karen Millen Elegantly Wrapped sparilínan er hönnuð með innblæstri frá hinum glæsilegu konum sem myndaðar voru af ljósmyndaranum kunna Guy Boudin sem myndaði fyrir helstu tískublöð heims á 9. áratugnum. Þessi fatnaður er glæsilegur, áberandi og einstakur. Sem dæmi er blómum, fellingum og umvöfðum efnum blandað saman til að mynda kvenlega kjóla, toppa og pils sem henta konum á öllum aldri. Hið þekkta Karen Millen satínefni með teygju gerir þennan fatnað enn klæðilegri. Áhrif frá 9. áratugnum eru greinileg í litavali; skærbleikur, fjólublár og appelsínugulur. Við bjóðum nú 30% afslátt af þessari línu. Léttar veitingar í boði frá kl. 17.00. kynnir 30% afslátt af kjólum einnig til í svörtu einnig til í fjólubláu einnig til í fjólubláu einnig til í fjólubláu einnig til í dökk bleiku og bláu einnig til í bleiku Kringlunni og Smáralind

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.