Fréttablaðið - 17.09.2009, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 17.09.2009, Blaðsíða 35
Þetta er dæmisaga um Forn-Tyrki sem lutu guði háloftanna og trúðu að þeir væru börn bláa úlfsins. Þetta var á þriðju og fjórðu öld og Tyrkir töluðu forn-tyrknesku. Þeir skildu jafnvel tungumál dýra. Þeir voru í sambandi við anda fyrri alda og gátu ferðast til annarra heima með hjálp seiðmanna. Þetta var fyrir tíma Íslam. Tyrkir jörðuðu ekki dáið fólk heldur gáfu það íbúum himnanna, Griffinnunum. Karlmenn voru sterkir og ástríðufullir. Konur báru hins vegar í sér hið eina sanna lífsgildi því að þær viðhéldu mannkyninu. Kelin Kelin Beto er fyrrum þjónn og nú gæslumaður glæsivillu í Mexíkóborg sem hefur staðið auð um árabil. Einveran tryggir honum öruggt umhverfi þar sem ekkert kemur á óvart, ólíkt ógnandi veröldinni sem bíður utan veggja hússins. Þannig elur Beto með sér sjúklegan ótta við umheiminn sem á endanum verður til þess að samskipti hans takmarkast við tvær manneskjur, konuna sem á húsið sem hann er afskaplega þakklátur, og Lupe, sem er í senn trúnaðarvinur og ástkona. En þegar húsið er selt þarf Beto annað hvort að safna kjarki til þess að takast á við veröldina handan veggjanna eða finna einhverja leið til þess að halda í horfinu. Garðastræti Parque Vía Patti starfar í sirkus og býr með eiginmanni sínum, Walter, í húsbíl í San Basilio í útjaðri Rómar. Dag einn finnur hún tveggja ára stúlku, Asíu, sem hefur verið yfirgefin af foreldrum sínum. Með hjálp Tairo, unglingsstráks sem býr með ömmu sinni í flutningagámi við hliðina á húsbílnum, reynir Patti að hafa uppi á móður Asíu. La Pivellina er mynd um heim útlaga í ítölsku samfélagi nú á dögum. Hún fjallar um hugrekki og misrétti, um missi og samveru. La Pivellina La Pivellina Hans býr í litlum bæ nálægt Vín í Austurríki. Hann er leigubílstjóri, kvæntur og á einn son. Hann á líka eitt leyndarmál. Og það mun leggja fjölskylduna í rúst. Hann getur aðeins leitað til einnar manneskju, konu úr fortíðinni. Dauðadá byrjar á því að veita áhorfendum innsýn í venjulegt, borgaralegt líf. Það er uppistand hjá fjölskyldunni við að undirbúa afmæli. Gestirnir koma of snemma. Veislan hefst. Allir koma, nema fimmtugt afmælisbarnið. Dauðadá Coma Hér er skyggnst inn í líf Antoines sem er fimm ára strákur sem stýrir útvarpsþætti, sinnir leyni- lögreglustörfum og keyrir bíl. Hann aðstoðaði við að búa til hljóðrás myndarinnar með því að taka upp hljóð í kringum sig í tvö ár. Antoine er af víetnömskum uppruna og fæddist hundrað dögum fyrir tímann. Hann stundar nám með jafnöldrum sínum í hinu almenna skólakerfi í Montreal. Hann er blindur. Antoine Antoine
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.