Fréttablaðið - 17.09.2009, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 17.09.2009, Blaðsíða 34
Aðalverðlaun hátíðarinnar, Uppgötvun ársins, verða veitt við hátíðlega athöfn í lok hátíðarinnar. Fjórtán myndir keppa um hinn eftirsótta verðlaunagrip, Gyllta lundann. Myndirnar eiga það allar sameiginlegt að vera fyrsta eða annað verk leikstjóra. Allar eru myndirnar glænýjar og áhugavert verður að fylgjast með framgangi þeirra í kvikmyndaheiminum næstu mánuði. Gyllti lundinn Eamon Eamon Eamon litli vill enn sofa upp í hjá mömmu sinni, Grace. Fósturfaðir hans, Daniel, er ekki hrifinn. Hann er pirraður yfir áhugaleysi Grace og finnst hann afskiptur. Eamon baðar sig í umhyggju móður sinnar en þessi sæla fær skjótan endi þegar fjölskyldan þarf að verja skólafríi drengsins á stormasamri strönd Írlands. Þar baðar Grace sig í sólinni með brúnan, stæltan brimbrettastrák fyrir augunum. Smátt og smátt fara hennar eigin strákar að flækjast fyrir. Sögu þessarra þriggja ólíku einstaklinga vindur hægt fram. Leikstjórinn færir athyglina átakalaust frá einni persónu til annarrar en myndinni lýkur á því að Eamon tekur til sinna ráða með óvæntum afleiðingum. Suma foreldra dreymir um að ala börnin sín upp í sápukúlu, fjarri ógnum heimsins. En foreldrarnir í Dogtooth ganga alla leið og tryggja að börnin þeirra þrjú fari ekki út fyrir háa girðingu sem umkringir hús þeirra. Þau hafa sannfært börnin um að veröldin fyrir utan sé grimm og andstyggileg. Foreldrarnir hafa skipulagt menntun þeirra og leik þannig að þau komist aldrei í snertingu við annað fólk. Eina manneskjan utan fjölskyldunnar sem kemur heim til þeirra er Christina sem pabbinn fær til þess að fullnægja kynferðislegum þörfum sonarins. En dæturnar eru líka forvitnar um Christinu. Hundstönn Dogtooth Francesca er ungur leikskóla- kennari í Búkarest sem dreymir um að flytja til Ítalíu. Til þess að uppfylla drauminn um betra líf í nýju landi er hún tilbúin til að horfast í augu við efasemdir og áhyggjur sem vakna. Mita, kærastinn hennar, ætlar að hitta hana á Ítalíu um leið og hann hefur lokið skyldum sínum heima fyrir. En þegar ógæfa dynur yfir koma ýmsir sársaukafullir hlutir upp á yfirborðið og forgangsröðin breytist. Það er Monica Birladeanu sem leikur Fransescu, en gestir RIFF gætu kannast við hana sem hjúkrunarkonuna í Dauða Hr. Lazaraescu, fyrstu sigurmyndar keppnisflokks hátíðar-innar, Uppgötvunar ársins, árið 2005. Francesca Francesca Hér er sögu innflytjandans snúið við ef svo má segja. Aðalsöguhetjan Petra er Þjóðverji sem flyst til Istanbul og tekst þar á við sitt eigið líf og hvunndaginn í borginni, í senn flókinn og mótsagnakenndan. Smám saman vitrast okkur líf hennar og við drögum þræðina saman: Istanbul, Þýskaland, fjölskyldan, vinirnir, dópið og dauðinn. Myndin er merkileg blanda heimildamyndar og leikinnar sem teflir fram raunverulegu fólki í stað leikara. Ismail Necmi ferðast með kvikmyndavélina á mörkum veruleika og skáldskapar og fléttar saman margslungnar myndir úr draumum, raunveruleika og síbreytileika lífsins á súrrealískan hátt. Ætti ég virkilega? Should I Really Do It? Lu Wan fimleikaskólinn í Sjanghæ. Héðan verður ekki aftur snúið. Hér æfa börn sem stökkva, rúlla sér og standa á höndum enda-laust á meðan þjálfarar öskra á þau. Þau koma úr fá-tækum fjölskyldum og foreldrar þeirra ætlast aðeins til eins af þeim, að þau verði frægir fimleikamenn. En þótt þau séu sterkari og þroskaðri en önnur börn á sama aldri er ekki víst að þau þoli álagið sem fylgir því að búa sig undir að keppa um gullið. Líkamlegur sársauki er mikill en einsemdin er jafnvel verri. Myndin leitar svara við því hvernig hlúð er að börnum hjá kínversku íþróttahreyfingunni? Hvernig lifa þau af erfiðar æfingar og harða samkeppni? Rauða keppnin The Red Race Fikret (17 selur rósir í umferðar- teppunni sem myndast á Bos- forusbrúnni í Istanbúl. Það er ólöglegt. Umut (28 keyrir leigubíl yfir Bosforusbrúnna á hverjum degi. Hann er nýkvæntur Cemile sem er hugfanginn af lífsstíl sápuóperanna. Umut vill að hún sé hamingjusöm og þau leita sér að nýju og betra húsnæði. Umferðarlögregluþjónninn Murat (24 , sem er frá litlu þorpi, hefur nýlega verið falið að stjórna umferð á Bosforusbrúnni. Fikret, Umut og Murat eiga heima í úthverfum Istanbúl en starfa í miðborginni. Þeir þekkjast ekki en draumar þeirra tengja þá saman þar sem þeir mætast daglega í umferðaröngþveitinu á Bosforusbrúnni – á landamærum Asíu og Evrópu. Mennirnir á brúnni Men on the Bridge Saman Together Þetta er saga um ferðalag föður og sonar um lendur sorgarinnar eftir að þeir missa manneskjuna sem þeir báðir elskuðu, hvernig þeir takast á við hversdagsleikann sem er þó allur annar en hann var. Þeir átta sig á því að þeir hafa ekki eytt miklum tíma saman og eiga erfitt með samskipti. Á endanum er það föðurnum ofraun að takast á við fráfall eiginkonu sinnar og hann fer með son sinn til félagsmálayfirvalda. Drengurinn er settur á munaðarleysingjahæli. Faðirinn einangrast en drengurinn gefst ekki upp og reynir allt til þess að þeir geti sameinast aftur. Xavier Dolan leikstýrir, framleiðir, skrifar handritið og leikur aðalhlutverkið í þessari mynd. Hann er aðeins tvítugur og þykir óvenjulega hæfileikaríkur. Myndin er byggð á hans eigin ævi og fjallar um samband samkynhneigðs unglings, Huberts, við móður sína, Chantale. Á sama tíma og gjáin á milli þeirra stækkar taka þau að átta sig á því að þótt þau séu sennilega ófær um að búa saman geti þau að öllum líkindum ekki verið án hvors annars. Ég drap mömmu I Killed My Mother Galopin augu Eyes Wide Open Í heimi strangtrúaðra gyðinga í Jerúsalem stundar slátrarinn Aaron iðju sína, trú og fjölskyldulíf af óbilandi staðfestu. En dag einn drepur öngþveitið á dyr, hann kynnist hinum unga og myndarlega Ezri og ástríðan tekur völdin. Aaron vanrækir fjölskyldu sína og samfélag uns það tekur til sinna ráða og honum virðast öll sund lokuð. Aaron grípur þá til aðgerða sem ekki verða aftur teknar. Áhrifamikil lýsing á flóknum lögmálum heittrúaðs samfélags og óbilgjörnum hefðum þess.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.