Fréttablaðið - 17.09.2009, Page 39
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2009
Sjónvarpsáhorf er ómissandi
hluti af lífsstíl Íslendinga. Það
gildir jafnt í velmegun og
kreppu – jafnvel enn frekar í
kreppu, eftir því sem Árni Frið-
berg Helgason, verslunarstjóri
í Hátækni, lýsir.
Hátækni í Ármúla 26 er rótgróin
verslun sem hefur verið á sama
stað í yfir tuttugu ár. Í fyrrahaust
var hún stækkuð og opnuð stór og
glæsileg sýningaraðstaða baka til.
„Við köllum þetta rými Hljómskál-
ann. Þar sýnum við stærstu og
flottustu módelin af sjónvörpum
og erum með glæsileg heimabíó
í öllum verðflokkum,“ segir Árni
sem á fjögur ár að baki í vinnu hjá
Hátækni, síðustu tvö í starfi versl-
unarstjóra.
Hátækni selur sjónvörp af teg-
undunum LG, Palladine, Hitachi
og Panasonic. „Við erum með ís-
lenska valmynd á mörgum Palla-
dine-sjónvörpunum, byrjuðum á
því fyrir tæpum tveimur árum,“
segir Árni. „Það hefur ekki verið
gert áður á Íslandi.“ Hann segir
mikla sölu hafa verið í sjónvörp-
um að undanförnu þrátt fyrir erf-
itt árferði. „Sjónvörp eru kreppu-
vara og alltaf vinsæl. Eftir að
tækin urðu svona þunn bjóða þau
upp á meiri möguleika en áður.
Fólk notar þau sem tölvuskjái og
við mismunandi aðstæður, hvort
sem er í herbergi, uppi í sumarbú-
stað, í eldhúsinu eða hvar sem er.
Þau eru komin alls staðar og taka
lítið pláss.“
Stærðirnar sem Hátækni selur
eru frá 19 tommu upp í 60 tommu.
„Ég held að söluhæstu tækin séu
42 tommur,“ segir Árni. „Annars
er góð sala í öllum stærðum. Nítj-
án til 26 tommu tækin eru tekin
í herbergi, sumarbústaði og hjól-
hýsi en heima í stofu eru 37 til 50
tommurnar algengari.“
Einnig seljast stóru tækin vel,
að sögn Árna enda henta þau í
fundarsali fyrirtækja og hótela.
„Fólk sem er með stórar stofur og
situr langt frá tækjunum þarf líka
stóra skjái. Þegar þeir eru komn-
ir upp á vegg í stóru rými eru þeir
ekki eins miklir risar og þeir virð-
ast vera þegar þeir eru á fæti. Til-
hneigingin er sú að taka æ stærri
tæki og því hafa stóru skjáirnir
aukið vinsældir sínar.“
En hefur verðið ekki farið upp
úr öllu valdi á þessum síðustu og
verstu tímum? „Sjónvörp hafa
vissulega hækkað í verði en við
höfum verið með góða samninga
við okkar birgja og því hafa hækk-
anirnar ekki verið eins stórkost-
legar og ætla mætti,“ segir Árni
og bætir við að lokum: „Við kaup-
um mikið inn í einu og það hjálp-
ar okkur.“
Alltaf jafn vinsæl vara bæði
í velmegun og kreppu
„Fólk notar sjónvörp sem tölvuskjái og við mismunandi aðstæður, hvort sem er í herbergi, uppi í sumarbústað, í eldhúsinu eða
hvar sem er,“ segir Árni sem hér er staddur í hljómskálanum í Hátækni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Kanasjónvarpið, eins og sjónvarps-
stöðin Armed Forces Radio and
Television Service Keflavik var
jafnan nefnd, starfaði frá árinu
1951 til 2006. Þessar fyrstu sjón-
varpsútsendingar á Íslandi ollu
fljótlega usla því í ljós kom að
sjónvarpsmerkið frá stöð-
inni náðist á Suðurnesjum,
Hafnarfirði og Reykjavík.
Til þess varð fólk þó að eiga
sjónvarpsviðtæki og -loft-
net sem var dýr tækja-
kostur og fá heimili
gátu orðið sér úti um
slíkt. Þau heimili voru
hins vegar þéttsetin
á kvöldin og gesta-
gangur mikill enda
vildu allir líta þessa
dýrð augum.
Árið 1964 sendu
sextíu þjóðþekktir
Íslendingar áskorin
til ríkisstjórnarinn-
ar þess efnis að takmarka útsend-
ingar stöðvarinnar. Var áhyggju-
efnið meðal annars þau áhrif sem
Kanamenningin hefði á íslenskan
æskulýð. Yfir 14.000 manns skrif-
uðu hins vegar undir undir-
skriftalista þar sem þess var
óskað að Íslendingar fengju
áfram aðgang að stöðinni.
Átök um Kanasjónvarp-
ið voru nokkur næstu árin
en útsendingar voru þó
ekki takmarkaðar við
Keflavík fyrr en árið
1974 og var þá þver-
pólitísk samstaða
um lokun stöðvar-
innar. - jma
Kanasjónvarpið veldur
deilum í samfélaginu
Birna Þórðardóttir
barðist gegn Kana-
sjónvarpinu og réðst
ásamt fleirum inn í
upptökusal stöðvar-
innar 1968 og málaði
„Viva Cuba“ á veggi.
Margir velta því fyrir sér hvort
langvarandi sjónvarpsáhorf hafi
skaðleg áhrif á sjónina. Staðreynd-
in er sú að ekki hefur tekist að
færa sönnur fyrir því. Þó er vitað
að þegar horft er á sjónvarps- eða
tölvuskjá í lengri tíma minnkar
blikktíðni augnanna úr 12 blikk-
um í 6 á mínútu, sem getur aftur
valdið augnþurrki. Besta ráðið við
honum er einfaldlega að loka aug-
unum til að hvíla þau, nú eða verða
sér úti um gervitár sem hægt er
nálgast í apótekum án lyfseðils.
Sjá www.visindavefur.is.
Langvarandi
áhorf óhollt
Sjónvarpsáhorf í lengri tíma getur vald-
ið augnþurrki.