Fréttablaðið - 17.09.2009, Side 62
42 17. september 2009 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT 2. fangi, 6. samþykki, 8. hlóðir,
9. þrá, 11. til, 12. gervitennur, 14.
bragðbætir, 16. nafnorð, 17. frjó, 18.
umhyggja, 20. skammstöfun, 21. þungi.
LÓÐRÉTT 1. útihús, 3. klaki, 4. doka, 5.
sakka, 7. frilla, 10. ílát, 13. meðal, 15.
laut, 16. bjargbrún, 19. númer.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gísl, 6. já, 8. stó, 9. ósk,
11. að, 12. stell, 14. krydd, 16. no, 17.
fræ, 18. önn, 20. al, 21. farg.
LÓÐRÉTT: 1. fjós, 3. ís, 4. staldra, 5.
lóð, 7. ástkona, 10. ker, 13. lyf, 15.
dæld, 16. nöf, 19. nr.
„Almennt er það torkennilegt
hvítt duft með íslenskum berg-
vatnsklaka og fjörkálfamjólk. Á
sunnudögum gufusoðinn smá-
apaheili með rifsberjamauki.“
Bragi Valdimar Skúlason, Baggalútur.
„Ég er svolítið spennt fyrir þessu,
smá hrædd líka en aðallega spennt,“
segir Alexandra Helga Ívarsdóttir,
ungfrú Ísland árið 2008. Hún verð-
ur meðal þátttakenda í sérstakri
„celebrity“-útgáfu af Wipeout
sem Stöð 2 hyggst sýna frá í vetur.
Mikill áhugi virðist vera á þessum
Þrautakóngi því rúmlega þrjú þús-
und Íslendingar sóttu um að kom-
ast í þáttinn í skráningu á vísir.is.
„Ég þurfti ekkert sérstaklega lang-
an umhugsunarfrest þegar haft var
samband við mig, ég sló bara til
strax,“ segir Alexandra sem hefur
aldrei komið til Argentínu áður og
það skipti miklu máli við ákvörð-
unartökuna. „Og svo horfði ég tölu-
vert á þættina í vetur. Ég kvíði eig-
inlega mest fyrir rauðu boltunum,
þeir líta svakalega út, allavega
miðað við það sem maður hefur
séð í sjónvarpinu.“
Alexandra fær harða samkeppni
í þessum sérstaka celebrity-þætti
því fitness-kóngarnir Ívar Guð-
mundsson og Egill „Gillz“ Einars-
son verða meðal þátttakenda. „Ívar
er náttúrlega í frábæru formi en
líkamlegt ástand á þeim þykka
er rosalegt um þessar mundir, ég
er í raun þrautþjálfaður íþrótta-
maður. Ívar verður klárlega einn
af mínum helstu keppinautum en
hann á ekki eftir að hafa roð við
mér,“ segir Egill, sjálfsöruggur
að venju. „Ég held reyndar að það
hafi verið mistök að velja mig í
þennan þátt, því aðrir munu bara
líta út eins og kjánar við hliðina á
mér.“
En Egill fær væntanlega harða
samkeppni frá manni sem þekkir
lítið annað en sigur eftir árangur
sumarsins. Því Ingólfur Þórarins-
son, hjartað í miðju Selfoss-liðs-
ins sem vann 1. deildina í knatt-
spyrnu og Veðurguð með meiru,
verður einnig meðal keppenda.
„Mér líst bar ágætlega á þetta, ég
veit reyndar ekkert hvað ég er að
fara út í, er þetta eitthvað hættu-
legt?“ spyr Ingó sem vill að sjálf-
EGILL EINARSSON: ÆTLAR AÐ RÚSTA ÍVARI GUÐMUNDS Í WIPEOUT
Ingó Veðurguð í Wipeout
KEPPINAUTAR Í WIPEOUT
Ingó Veðurguð og Alexandra Helga
Ívarsdóttir fá verðuga keppinauta í
Wipeout því meðal þátttakenda verða
þeir Ívar Guðmundsson og
Egill „Gillz“ Einarsson,
landsþekktir fyrir sitt
líkamlega atgervi. Ingó
segist ekki nenna í
neina hetjukeppni, hann
ætli þó að halda uppi heiðri
hinna tágrönnu einstaklinga.
Wipeout á ættir sínar að rekja til japanskra leikjaþátta. Höfundurinn að Wip-
e out-þáttunum heitir Matt Kunitz en hann kom einnig að gerð Fear Factor. Hann
sagði í samtali við Los Angeles Times að draumurinn hefði verið að búa til þátt
sem væri samblanda af Fear Factor og Fyndnum fjölskyldumyndböndum.
Wipeout er skipt í fjögur þrautaborð. Hið fyrsta er þrautabraut þar sem hinir
víðfrægu og risastóru rauðu boltar leika lykilhlutverk. Þeir tólf fljótustu sem
komast upp úr þeim riðli fara í braut tvö þar sem „Sópurinn“ sópar fjórum úr
leik. Þriðja borðið getur síðan verið breytilegt en að endingu keppa fjórir í fjórðu
og síðustu brautinni, hinni svokölluðu Wipeout-braut. Sá sem er fljótastur í
gegnum þá þraut sigrar. 27 lönd hafa nú þegar gert eða eru að fara að gera
Wipeout-þætti. Má þar nefna Norðurlöndin öll nema Finnland og Ísland bætist
nú í hópinn.
HVAÐ ER WIPEOUT?
sögðu komast hjá því að meiðast
alvarlega enda úrvalsdeildarbar-
átta fram undan næsta sumar og
því um að gera að halda sér heil-
um. „Ég nenni ekki að fara í ein-
hverju hetjukeppni en maður verð-
ur auðvitað halda uppi heiðri hinna
tágrönnu einstaklinga,“ segir Ingó
og bætir því við að það sé ekki nóg
að vera bara sterkur í svona keppni,
úthaldið leiki ekkert síður stórt
hlutverk. freyrgigja@frettabladid.is
„Já, þeir vilja fá hana til að syngja í sérstökum jóla-
þætti. Við erum bara að skoða dagskrána hjá okkur
og sjá hvernig þetta lítur út allt saman,“ segir María
Björk Sverrisdóttir, umboðsmaður Jóhönnu Guðrún-
ar. Danska ríkissjónvarpið, DR, hefur óskað eftir því
að íslenska Eurovision-stjarnan komi fram á sérstök-
um jólatónleikum sjónvarpsstöðvarinnar sem njóta
mikilla vinsælda ár hvert. Fremstu tónlistarmenn
Danmerkur taka yfirleitt þátt og í fyrra tróð meðal
annars kertaljósadrottningin Katie Melua upp á tón-
leikum sjónvarpsins í Álaborg.
María segir annars viðbúið að Jóhanna muni búa
næstu vikur og mánuði í ferðatösku. „Hún verður
meira og minna á ferð og flugi í október, nóvember og
desember,“ segir María. Meðal annars eru fyrirhugað-
ir tónleikar í Danmörku og Svíþjóð en þar nýtur Is it
True? enn mikilla vinsælda og er ofarlega á sænskum
vinsældalistum. Plata Jóhönnu, Elvis & Butterflies,
kemur síðan út í Póllandi og Rússlandi í næsta mánuði
og reiknaði María fastlega með því að Jóhanna myndi
fylgja útgáfunni eftir með tónleikahaldi. - fgg
DR vill Jóhönnu í jólaþátt
„Þetta kom okkur skemmtilega
á óvart,“ segir Guðrún Vilmund-
ardóttir hjá bókaforlaginu
Bjarti.
Um eitt þúsund
manns hafa skráð sig
á biðlista hjá forlaginu
eftir annarri bók Sti-
egs Larsson, Stúlkan
sem lék sér að eldinum.
Bókin verður gefin út á
morgun en æstir aðdá-
endur geta fengið hana í
hendurnar seinni part-
inn í dag áður en hún verður sett
í plast.
„Það var meira til gamans gert
að búa til biðlistann. Við áttum
svo óþolinmóða vinkonu sem
átti afmæli og óskaði eftir
bókinni í afmælisgjöf. Við
ætluðum að setja hana á bið-
lista. Síðan fór að rigna inn
tölvupósti,“ segir Guðrún.
Kvikmyndin sem var
gerð eftir bókinni
verður frum-
sýnd 2. okt-
óber og vilja
margir lesa
bókina áður
en þeir fara
í bíó. „Það
eru marg-
ir sem segja að þeir megi engan
tíma missa því þeir ætli að vera
búnir að lesa bókina,“ segir Guð-
rún. „Þótt myndirnar séu góðar
þá kemur maður ekki sex hundr-
uð síðna bók fyrir í tveggja tíma
mynd.“
Hún hefur sjálf lesið Stúlkuna
sem lék sér að eldinum og heillað-
ist af henni, rétt eins og fyrri bók-
inni, Karlar sem hata konur. „Mér
finnst hún æðisleg. Hún Lisbeth
er þungamiðjan í bókinni. Hún er
í miklu uppáhaldi hjá mér og ég
naut þess út í ystu æsar að lesa
bókina.“
Karlar sem hata konur hefur
selst í um fimmtán þúsund eintök-
um hér á landi, sem er meira en
nokkur þorði að vona. Til að anna
eftirspurn verður Stúlkan sem lék
sér að eldinum fyrst prentuð í sjö
þúsund eintökum, sem er töluvert
meira en síðast. Þriðja og síðasta
bókin í Millennium-trílógíunni er
svo væntanleg í nóvember. - fb
Þúsund manns á biðlista eftir Stieg Larsson
GUÐRÚN
VILMUNDARDÓTTIR
Guðrún segir að
viðbrögðin við biðlist-
anum hafi komið sér
skemmtilega á óvart.
LISBETH OG MIKAEL Lisbeth Salander og
Mikael Blomkvist í myndinni Karlar sem
hata konur.
EFTIRSÓTT Eurovision-stjarnan Jóhanna Guðrún er eftirsótt og
hefur DR, danska ríkissjónvarpið, meðal annars óskað eftir
nærveru hennar á jólatónleikum sínum.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1. Kópavogsfangelsi.
2. Ottó Tynes og Karl Ægir Karlsson.
3. The Lost Symbol.
Forvitnileg umræða er sprottin
upp á Facebook-síðu Arnar Úlfars
Sævarssonar, nýskipaðs dómara
í Gettu betur. Örn minnti vini sína
á að gefa í söfnun fyrir kaupum á
nýju fiskabúri í Vesturbæjarlaugina
en fékk fljótt svar frá sjónvarps-
manninum Agli Helgasyni sem gaf
ekki mikið fyrir tiltækið, sagði það
lágkúrulegt og spurði hvort Örn
og félagar vildu ekki frekar gefa til
„almennilegs“ málefnis á borð við
Unicef. Örn beið ekki lengi með
að svara og sendi sjónvarps-
stjörnunni tóninn: „Ég þakka
miðbæjar-móðurteresu
kærlega fyrir að leggja frá
sér friðarverðlauna-
peninginn og taka
sér örlitla pásu frá
sínum umfangs-
miklu mannúð-
arstörfum …“
Félögunum Valla Sport og Birni
Jörundi er augljóslega umhugað
um strandaglópa í Vestmanna-
eyjum. Þeir ætla að troða upp á
Volcano Café á laugardag-
inn og hafa sagt þeim sem
vilja hlusta að þeir ætli að
mæta á svæðið á einka-
þyrlu – hvorki meira né
minna. Þeir ætla svo
að síga úr þyrlunni
á fast land og rjúfa
þannig einangrun
eyjaskeggja frá
menningunni.
Benedikt Erlingsson leikstýrir
sem kunnugt er afmælissýningu
Þjóðleikhússins, Íslandsklukkunni,
sem frumsýnd verður í apríl á
næsta ári. Leikhús allra lands-
manna hefur verið töluvert á milli
tannanna að undanförnu en mörg-
um hefur þótt nóg um þau ættar-
tengsl sem stundum virðast einum
of áberandi í leiksýning-
unum. Benedikt leikstjóri
hyggst halda uppteknum
hætti í Íslandsklukkunni
því faðir hans, Erling-
ur Gíslason, verður
í litlu hlutverki í
Íslandsklukkunni.
- hdm, afb, fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Allt sem þú þarftfylgir Fréttablaðinu á morgun