Spegillinn - 01.03.1949, Síða 9

Spegillinn - 01.03.1949, Síða 9
SPEGILLINN 39 uðs friði fréttayfirlit Nú eru víða blikur á lofti á himni stjórnmálanna og miklar viðsjár með mönnum, sem er ekki nema mannlegt, þegar á allt er litið, því að það er manninum í blóð borið að berjast á vettvangi mannlegs lífs. Mest hefur verið rætt og ritað um svonefndan herverndarsamning, sem er í raun og veru eng- inn samningur, þar sem ekkert liggur enn fyrir um neinn slíkan samning. Eigi að síður hafa verið gerðar samþykktir af stjórnmálaflokkum og einstökum félögum með og móti þessum samning, sem ekki er neinn samningur, og hafa nið- urstöðurnar verið birtar í Ríkisútvarpinu, sem er í sjálfu sér hlutlaust um málið, en lýsti yfir í upphafi umræðnanna, að það sæi sér ekki fært að birta neitt um málið að svo komnu máli. Eins og að líkum lætur er smáþjóð eins og fslendingum það lífsnauðsyn að leita samstarfs og jafnvel hernaðar- bandalags við eitthvert stórveldið og þá auðvitað það, sem næst oss er og skyldast að menningu, ef vér eigum að geta verndað nýfengið sjálfstæði vort. Að hinu leytinu myndi slíkur herverndarsamningur bjóða hættunni heim og leiða yfir oss tortímingu í nýrri styrjöld. Frá kirkjunnar sjónar- miði mælir margt með slíkum samningi, og eins og kirkjunn- ar menn réttilega hafa bent á, þá er þess hvergi getið í biblí- unni, að Jesús Kristur hafi verið á móti Atlantshafsbanda- lagi. Eins hafa biblíuskýrendur réttilega bent á, að Jesús hafi verið smiður að iðn og mætti því álykta, að hann hafi að einhverju leyti lifað af vopriaframleiðslu, enda brá Pétur sverði undan skykkju sinni á sínum tíma og hjó eyrað af Malkusi, sem frægt er orðið. Hins vegar hefur sagnfræðing- urinn Sverrir Kristjánsson haldið fram, að Jesús hafi verið á móti Atlantshafsbándalagi og háfi hann sótt um að fá að tala í útvarpið í Jerúsalem, en Farísear neitað og borið við hlutleysi útvarpsins. Nú hefur staðið yfir togaraverkfall um tima, og á þetta verkfall skylt við önnur verkföll af svipuðu tagi að því leyti, að togararnir sigla til hafnar og sjómennirnir leggja niður vinnu. Að hinu leytinu er hér í vissum skilningi aíls ekki um

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.