Spegillinn - 01.03.1949, Qupperneq 11
SPEGILLINN
41
Einn gaman-
saraur náungi sagði á dögunum, þeg-
ar rætt var um Kaldaðamesmálið
fræga, að Jörundur ætti að gefa rík--
inu aftur Nesið undir dvalarheimili
fyrir óhæfa þingmenn. „Þá verður
þar fullt a. m. k. fyrst um sinn,“
bætti hann við.
isti. Nú hefur einkum borið á beru fólki inn í Hlíðum, án þess
að lögreglunni hafi þótt nægilegar hreinlætisástæður fyrir
hendi, en eins og kunnugt er, getur fólk verið bert eða nakið
af ýmsum ástæðum. Hins vegar neitar maður þessi að hafa
fækkað fötum í þessu tiltekna hverfi, þó að honum hafi orðið
á að létta ögn klæðum miðsvæðis í bænum í mesta febrúar-
hitanum. Ennþá hefur því lögreglu vorri ekki tekizt að kom-
ast að, hvaða og af hvaða ástæðum fólk sé helzt bert inni í
Hlíðum né á hvaða tímum sóiarhringsins, en hins vegar þyk-
ir fengin örugg vissa fyrir því, að fólk hafi farið þar úr föt-
um og heldur fleiri en færri, nema sami maðurinn hafi far-
ið úr oftar en einu sinni.
Nú þykir vísindalega sannað samkvæmt fréttastofu Tím-
ans, að fiskarnir syngi. Hafa menn tekið upp á plötur bæði
kórsöng og einsöng ýmissa fiskategunda. Hafa sumir fiskar
— eins og þorskurinn — tenórrödd, sem þykir ekki gefa Stef-
anó Islandi eftir, en blágóman kvað hafa altrödd eins og
Guðmundur Jónsson. Hákarlinn minnir nokkuð á Eggert
Stefánsson, hefur hann sungið inn á plötu „ísland ögrum
skorið“. Hér er sennilega nýtt og merkilegt verkefni fyrir
Tónlistarskólann og þyrfti sem fyrst að æfa hljómsveit og
landskór til að senda á síldveiðar á næstu vertíð, ef tónlistar-
menn vorir geta komið sér saman um hljómsveitarstjórann.
I Guðs friði.
Álfur úr Hól.
HJÁ LÖGREGLUNNI
í Frankfurt hefur verið stofnuð. sérstök vasaþjófadeild, til að berj-
ast gegn vasaþjófum, sem hafa hlotið þjálfun sína í skólum austan
járntjalds. Tilgangi sínum hyggst deildin að ná með því að verða á
undan vasaþjófunum og láta þá grípa í tómt.
um veSurfai ifi.
Eilífir umhleypingar
upp á hvern lífsins dag,
annað livort austan stórhríð
eða þá vestan slag,
allt eins og umræðufundur
um Atlanzhafsbandalag.
SVB.
DANASTJÓRN
hefur nú leyft þegnum sínum að fá ferðapeninga til nokkurra landa,
þar á meðal Islands, og færir sem rök, að á Islandi sé svo ódýrt að bein-
brjóta sig. Ef þetta þýðir það, að við eig-um að fá hingað nýjan vað
af frændum vorum í þessum tilgangi, væri reynandi að kalsa það við
verðlagsstjóra, að hækka eitthvað beinbrotataxtana. Hinsvegar getur
verðið verið eitthvað mismunandi eftir því, hvort um innlenda eða er-
lenda framleiðslu er að. ræða.
DANIR
hafa fundið heljarmiklar blýnámur í grænlandi, en til þess að geta
nbtað þær til fulls þurfa þeir að fá upþlagsréttindi á Vestfjörðum, en
þángað er ekki nema 30 stunda sigling frá námusvæðinu. Ekki vitum
vér, hvernig landssalar vorir snúast vjð því að taka upp ICeflavíkur-
samninga við dani, þar .sem þeir eru orðnir stóru vanir í þeirri grein,
i seinni tíð. Þó vonum vér, að Stefán Jóhann verði að minnsta kosti
ekki afundinn, enda nýkominn úr danmerkurför.