Spegillinn - 01.03.1949, Qupperneq 13

Spegillinn - 01.03.1949, Qupperneq 13
SPEGI LLI N N 43 Konan og aldingarður. Utvarpsþáttur Gott kvöld! Nú hefur útvarpsráð nýverið haldið sinn 1000. fund, sem ég hef alla setið og suma tvisvar. Útvarpið var stofnað af mér og prófessor Alexander Jóhannessyni árið 1930 og varð ég að sjálfsögðu fyrsti formaður útvarpsráðs. Til að láta sjálfs mín sem minnst getið í þessari skýrslu minni um starf- semi útvarpsins á liðnum árum mun ég hér eftir nefna mig í þriðju persónu, eintölu í karlkyni, sem verður þá í nefni- falli Helgi Hjörvar. — Helgi Hjörvar varð sem sagt fyrsti formaður útvarpsráðs og gegndi formannsstarfi í samfleytt 6 og hálft ár eða lengur en nokkur annar formaður ráðsins. Helgi Hjörvar stjórnaði samtals 319 fundum og komst eng- að þeir syngja hvort sem er aldrei Guðvorslands. Þeir syngja bara Ólafía hvar er Vigga og svoleiðis kvæði og svo Blessuð sértu sveitin mín þegar þeir eru kenndir. Nú man ég ekki eftir meiru og vertu nú sæl og blessuð. Þín Stefanía. P.S. Mér þykir verst ef þetta bréf lendir hjá Morgun- blaðinu eins og bréfið kommúnistakrakkanna því þeir birta aldrei nema það bezta úr svoleiðis bréfum og láta hitt eiga sig. Sama. Utanbæj arpósturinn. inn formaður fyrr né síðar í hálfkvisti við hann um fundar- boðun til ráðsins. Að þessum 6 og hálfu ári liðnum veik Helgi Hjörvar úr formannsstól, mest af sjálfsdáðum. Hann hélt þó áfram að sækja fundi ráðsins og hefur verið æ síðan þaul- sætnasti maðurinn í ráðinu. Að formannsstörfum loknum tók hann við skrifstofustjórastarfi í útvarpinu og situr þar nú beint undir ráðherra og hefur alla yfirumsjón með út- varpinu, daglegri starfsemi þess, útvarpsdagskrá, sem hann hefur samið sjálfur að mestu og flutt nálega einn. Útvarps- stjóri mun hafa eitthvert eftirlit með hreingerningum í salar- kynnum útvarpsins. Menn hafa verið að gera fyrirspurnir í blöðum, hvaða tíma Helgi Hjörvar hefði til að anna samn- ing og flutning útvarpsdagskrár í hjáverkum við skrifstofu- stjórastarfið. Ég, fyrirgefið, Helgi Hjörvar hefur þó ekki séð ástæðu til andmæla, þar eð hann hefur aldrei haldið því fram opinberlega, að dagskráin og undirbúningur flutnings á henni væri aukastarf. Nú í tilefni af 1000. fundinum lét útvarpsráð taka mynd af sér til að birta í blöðum bæjarins með núverandi formanni fyrir borðsenda og sitja þar allir nema Helgi Hjörvar, sem stóð vegna eindreginna áskorana meiri hluta ráðsins um, að hann ætti að sjást á myndinni líka. Eins og myndin ber með sér, stendur Hjörvar sem fjærst Jónasi Þorbergssyni og sem næst formanni, og lætur hann sér í léttu rúmi liggja, hver álitinn verður formaðurinn af myndinni einni saman. Þessi skýrsla útvarpsráðs í tilefni af 1000. fundinum er um margt firna fróðleg og er þó margt ótalið enn, en hér skal þó staðar numið að sinni. Yerið þið sæl. Aðalhjörvar.

x

Spegillinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.