Spegillinn - 01.07.1958, Síða 10
154
.5 P EBILLINN
aða aðdráttarafl, ekki sízt á unga
fólkið:
Móderníseruð KIRKJUIÖIVLI8T
Góðir hlustendur! (Þátturinn er
sem sé hugsaður sem útvarpsþátt-
ur.) Þessum nýja þætti er ætlað
það göfuga hlutverk að kynna
hlustendum moderniseraða kirkju-
tónlist, í því augnamiði að örva
kirkjusókn á íslandi, sem orðin er
svo dræm, að til óheilla horfir um
eilífðarvelferð þjóðarinnar. Eins og
kunnugt er, hefur kirkjutónlist
ekki orðið fyrir teljandi áhrifum
frá léttri dægurtónlist, svo sem
danslagakeppnum S. K. T. og
Félags íslenzkra dægurlagahöfunda,
og uppfyllir þannig tæplega þær
kröfur, sem nútíma fólk, einkum
yngri kynslóðin, gerir til tónlistar.
Ætti fólkið kost á kirkjutónlist,
sem meira væri í samræmi við tón-
listarmenningu nútímans, mundu
kirkjurnar fyllast af fólki hvern
sunnudag ársins, og unga fólkið
mundi fara að tala um kirkjuferðir
með viðlíka áhuga og um Syngj-
andi páska eða jasstónleika Orion-
kvintetta. (Eða eru það máske
kvartettar ?). Vinaþjóð okkar allra
Bretar, hefur um þessar mundir
mikinn áhuga á moderniseringu á
kirkjutónlist, a. m. k. brezkir
kennimenn. Er oss sem vér heyr-
um, þegar Fisher biskup og undir-
sátar hans fara að raula óratóríur
Bachs, móderniseraðar til sam-
ræmis við jass- og dægurlög, og
verður prófessor Sigurbjörn trú-
lega fljótur að tileinka sér þær
nýjungar, með þeim fyrirvara þó,
að áskilja sér rétt til að snúast
gegn þeim í miðju lagi, ef henta
þykir. Moderniseringunni hlyti ó-
hjákvæmilega að fylgja aukinn
hljóðfærakostur, þar eð ekki er
hægt að ætlast til þess, að dóm-
kirkjuorgelið og Páll Isólfsson full-
nægi kröfum nútímans um flutn-
ing hinnar moderniseruðu kirkju-
tónlistar. Þetta mundi þannig
verða til að efla atvinnulífið hjá
hljóðfæraleikurum, jafnframt því
að auka ánægju kirkjugesta og
helzt fjölga þeim líka til muna.
Vér sjáum ekki annað en auglýs-
ingar eins og sú sem fer hér á
eftir mundu hafa býsna segulmagn-
— f kvöld verður flutt jazzkirkju-
tónlist í Hallgrímskirkju, hljóm-
sveit Svavars Gests (svavar gests
= sá ég spóa) leikur, einsöngvarar
Helena Eyjólfsdóttir og Sigurður
Johnny. Allir velkomnir meðan
húsrúmið leyfir. Safnaðarstjóri. —
Vitanlega gæti auglýsingin eins
átt við dómkirkjuna, nema hvað
þar mundi Páll ísólfsson náttúr-
lega vera sjálfsagður einleikari með
hljómsveit Jónatans Ólafssonar,
(einsöngvari: Sigurður Ólafsson.
Syngur nokkra hestasálma). Er
oss sem vér sjáum svipinn á vini
vorum Páli, þegar hann fer að
spila: f dag er glatt . . . , moderni-
serað sem tilþrifamikinn og fjörug-
TT'kki bci merin það sem eg
bei " sagði karlinn. sem
balt bageann a bakið a sjálf-
um ser, aður en hann settist
a leiðskjotann Hann hélt,
rið bag^i sem bundmn var á
hann ^ialfan, þreytti ekk)
hi ossiö