Spegillinn - 01.07.1958, Blaðsíða 15

Spegillinn - 01.07.1958, Blaðsíða 15
BPEBILLINN 159 þú kemur með þín efnahagsmál. En það kann vel að vera afsökun, að hver og einn vilji helzt gjamma um það, sem hann þykist hafa vit á. En þessi hátíð var ekki svoleiðis hátíð, þó að hann Guðmundur hafi þurft að snara út fáeinum útsvör- um fyrir einhverja reikninga næstu daga, hverjum þó var vel varið, þar sem svo mikill menningarvott- ur kom á móti. Eg sé það bezt núna, að frændur okkar sáu þetta með þjálfuðum blaðamannaaugum betur en mörg okkar. Hátíðin var furðulegt ævintýri, þar sem margt fólk gladdist sameiginlega og sýndi umheiminum okkar þjóðlegu sam- heldni. Og stúlkurnar okkar eru þær fegurstu á Norðurlöndum sagði hún Eira að maðurinn sinn segði og það kom líka átakanlega í ljós á keppninni í Tívolí. — Kannske að það hafi verið hann sem dansaði við mig kring- um Lækjartorg og var svo aga- lega hrifinn, sagði Díalín og það glaðnaði yfir henni. — O, þeir segja nú allir sitt af hverju, jafnvel þó ekki sé um Langasandsdísir að ræða. En feg- urð er ekki fyrir mestu, heldur þau sterku bönd, sem binda ungu kyn- slóðina við frelsishugsjónir þjóð- arinnar. — Það er naumast að þessir ágætu blaðamenn hafa komið þér á hreyfingu, þú ættir nú samt að vera farin að þekkja þá og allt þeirra háttalag, sagði Hálfdán og hnussaði í þriðja sinn. — En ég sný ekki aftur með það, að allt þetta kóragaul finnst mér lítill menningarvottur, ef þessi menning á að vera svo góð, sem af er látið. Eða útvarpið. Þvílík dagskrá. Og nýbúið að innheimta með 10 pró? sent álagi, sem reyndar sýnir virð- ingarvert fjármálavit, en hvar væri menningin á vegi stödd ef hún væri alveg blönk. — Þið skuluð nú bara sjá á næstu þjóðhátíð, gall í tólftóna- stráknum. — Þá verður útvarps- stöðin hans Jóns Leifs og okkar í Tónlistafélaginu komin í gang og þá skal verða músik sem -hátíða- og menningarbragur er á. Það er ekki hægt að meina okkur að kynna okkar eigin ágætu músik, en til þess þurfum við okkar eigin stöð, þar sem sú gamla velur alltaf af verri endanum. Það þarf líka að ganga eitt og hið sama yfir alla listamenn. Við tónskáldin getum ekki látið Ragnar selja okkar verk með afborgunum. Okkar list er erfiðast að selja og því er útvarps- stöðin okkur lífsspursmál, enda mega allir hlusta ókeypis. — Ætli það beri ekki allt að sama brunni, að þessi menning ykkar þurfi á peningum og fjár- málaviti að halda. Þegar þið Jón Leifs farið að útvarpa þessu vesæla spangóli ykkar, sem enginn vill hlusta á, ekki einu sinni hann Örn, þá byrjið þið að kveina yfir peningaleysi og heimtið náttúrlega styrki eða einkaleyfi á að auglýsa hrossaket og silkibuxur, eins og Ólafur litli hann Hjörvar okkar segir að and- skotalaust myndi verða. Það var kominn móður í Hálfdán, rétt eins og að hann væri að svara spurn- ingu dagsins í Mogganum. — Ég efast nú ekki um að hann Jón græi þá hliðina ■ alveg eins og þá lónlistarrænu. Hann er nú sem óðast að stefna þeim þarna á Vell- inum, sem alltaf eru að misnota hugverkin okkar, og ef hann vinn- ur öll þau mál þá ætti okkur að vera borgið, sagði tólftónastrákur- inn og virtist alveg vera búinn að gleyma Díalín en ég ekki. Bara að hann héldi sig við stöðina ein- göngu. Ég reyndi því að hjálpa honum og sagði að tónlistarkynn- ing útvarpsins hefði oftast verið með endemum, fáum til skemmt- unar og engum til fróðleiks, þar vantar alltaf sannleikann um eðli verkanna. Og þannig héldum við áfram góða stund. Bob á beygjunni. og Ólafur mikli í fíestum oörum skrlfum þess, er Ólafur ekki neit.t smámenni, heldur hinn mestt kraftakarl

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.