Spegillinn - 01.07.1958, Blaðsíða 14

Spegillinn - 01.07.1958, Blaðsíða 14
15B 5PEGILLINN Það var fremur dauflegt yfir júlí- samkomunni hjá Hallbjörgu að þessu sinni, einhver sumarfrís- stemning yfir hópnum og Gröndal talaði í útvarpið um heppni okkar að vera smáþjóð. — Flest fer nú að verða okkur til framdráttar, sagði Hálfdán og hnussaði í hon- um. — Þú kannt bara aldrei að meta okkar menningarlegu reisn, anzaði Hallbjörg stuttaralega. — Þótt oft sé vel unnið á nóttunni þá yrði lítið úr henni, ef dagarnir væru ekki vel notaðir til þess að efla hana og styrkja með þeim sem upp vaxa. Þetta er nú mín heim- speki og hefur borið ríkulega á- vexti. Hálfdán þagnaði að sinni. Við vorum samt öll treg til að hefja umræður um slíkt stórmál á mildu júlíkveldi, enda þótt ýmis- legt væri þarna til að örva sálar- ylinn og engu síður en hjá íélaga Peive, er manna höfðinglegast tek- ur á móti vinveittum gestum. Voru máske einhverjir á meðal okkar að hugleiða, hversu ánægjulegt gæti verið að geta orðið fulltrúar lítillar þjóðar með stóra menningu. Aðrir voru ánægðir með þær nýju fréttir, hve fyrirhafnarlítið væri nú orðið að fara alla vegi megin- því annars muni Makk fá hann til að setja það sem skilyrði, að við látum landhelgina af hendi við þá. — 0, ætli Hans G. geti ekki kippt því í lag? Rakarinn minn hnippti í mig. Þei, þei, hann Agnar Kl. er að koma. Tutugu og tvær sjötíu og fimm, takk! HEIMA ER BEZT landsins á eigin bíl, bara að koma sér og bílnum út yfir pollinn við fyrsta fáanlegt tækifæri. Einhverj- ir voru þó blessunarlega lausir við heilabrot um allt svona lagað ó- framkvæmanlegt umstang, því að hjá Hallbjörgu eru menn ekki valdir eftir því hvað þeir geta út- ausið mörgum peningum, heldur hvað þeir eru, menningarlega séð. Sjálfsagt hefur Hallbjörg fundið á sér um hvað við vorum að hugsa, þar sem hún benti okkur hógvær- lega á, að heima væri margt bezt og ágætast. — Ég vona að þjóðhátíðin okkar nýafstaðna sé okkur öllum jafn minnisstæð. Heppin vorum við að hafa ágæta og áhrifaríka blaða- menn frændþjóða vorra meðal vor þá. Án þess að hafa lesið í Al- þýðublaðinu hvað þeim fannst um hátíðina væri ég sennilega búin að steingleyma henni. En svona er það oft, við sjáum okkur ekki allt- af í réttu ljósi og hættir því við að vanmeta framlag okkar til að skapa fyrirmyndir, skiljum tæp- lega okkar sterku smáþjóðarað- stöðu, þar sem allt er í rauninni betra en það sýnist. — Skárri eru það nú hátíðleg- heitin, sagði Hálfdán og hnussaði í honum öðru sinni. — Var þetta kannske ekki sama kóragaulið og alltaf áður, nema hvað salan í sjopputjöldunum gaf lakari raun að þessu sinni en oft áður, sem kann að vera efnahagslífinu að kenna, en nú eru þar sker og boð- ar á báðar hendur og illfært óvön- um. — Þegiðu Hálfdán. Það er aldrei-- hægt að komast í stemningu þegar Búnaðarfélag íslands efnir til rúnings

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.