Spegillinn - 01.07.1958, Blaðsíða 16

Spegillinn - 01.07.1958, Blaðsíða 16
16D 8PEGILLINN Almælt Enn einu sinni allt í háalofti. Sem betur fer. Nú ætlar Jón Leifs að fara að höfða mál, „svo að segja daglega“, en það mun merkja, að hann er ekki enn búinn að ráða það við sig, hvort hann undan- skilur sunnudaga oð aðra helgi- daga kristinnar kirkju. Vonandi notar hann þá líka, það er ekki verra en þegar sveitamenn fara í hey á helgum, eins og nú er tíðara en ekki. Krúséff vill koma á eftir- liti, er geti komið í veg fyrir skyndiárásir; er líklega smeykur síðan íhaldið neitaði að fara í kurt- eisisheimsókn, og vill því vera bog- var. Samtímis eru fundnar upp nýjar og líklega endurbættar veir- ur, af hverjum hálfur líter mundi nægja til að koma öllu mannkyni fyrir kattarnef, eins og blöðin orða það, en gleyma að segja oss, hvern- ig kötturinn sjálfur fer út úr þessu öllu saman. En hvað sem því líður, ætti Mjólkursamsalan að kynna sér veirur þessar, sem virðast slá allt út, að minnsta kosti mannfólkið, sem áður er sagt. Heill stjórnmála- flokkur úti í Danmörku vill leiða í lög, að Margrét prinsessa þeirra Dana megi giftast hversu borgara- legum manni sem vera skal. Er sýnilegt, að flokkurinn vill forða henni frá öllu stappinu, sem nafna hennar í Bretlandi hefur átt um Tánsendann sinn, með tilheyrandi blaðaslúðri og kellingarkjaftæði. Ekki mun þetta þó af neinni jafn- aðarmennsku né mannkærleika gert af hendi flokks þessa, heldur blátt áfram vegna þess að prinsar mega nú heita uppgengnir á heims- markaðnum, að minnsta kosti þeir, sem nokkurt gagn er í til þess brúks, sem hér er um að ræða, og er þá vitanlega ekki annað að gera en lúta að borgurunum, þótt hálfskítt sé. Rétt sem stendur heyrist lítið tí ðin di talað um íslenzka Davíð og Atlanz- Golíat og væntanlegan atgang þeirra, en ef einhver skyldi ekki skilja sprokið, er hér átt við land- helgismálið. Þó erum vér hvergi varbúnir, er Pétur okkar Nelson hefur þegar skellt kíkinum á blinda augað, eins og nafni hans, og sagzt — eins og hann — ekkert signal sjá. Verst er, að sjóorustan skuli ekki geta hafizt fyrr en 1. septem- ber, en þá eru allir búnir með sumarfríin sín, svo að erfiðara verður aðstöðu fyrir ferðaskrifstof- ur vorar að efna til sumarleyfis- ferða vestur á Svið eða suður á Selvogsbanka, og jafnvel vestur á Hala. Hefði þó slíkt verið hin á- kjósanlegasta tilbreyting í ferða- málum vorum. En þangað til verð- ur að láta sér nægja skottúr suður í Fríhöfnina á Vellinum, þar sem sprúttið er svo billegt, að fjölmarg- ir sprúttsalar vorir eru sagðir orðn- ir sköllóttir af eintómum atvinnu- áhyggjum. Ein hin mesta ákoma, sem þjóð- in hefur orðið fyrir lengi, er fregn- in um umframafköst Sements- verksmiðjunnar. Reyndar eru þau sem betur fer, enn ekki komin í gagnið, en tilhugsunin er kvíðvæn- leg, engu að síður. Ekki svo að skilja, að þetta sé í fyrsta sinn sem áætlanir hjá okkur eru vitlausar, en hitt er sjaldgæfara, að vitleysan sé okkur í hag — í fljótu bragði séð. Nánar athugað er hún það ekki í þetta sinn, þar sem skipa þarf heila nefnd til þess að koma sementinu í lóg, svo verðum við auk þess að borga rándýra fragt undir það, þegar við förum að gefa það til útlanda. Eina huggunin í öllum vandræðunum er sú, að til þess að nefndin starfi fljótt og vel, verður hún að vera ólaunuð og sjá valdamenn fram á mikið annríki hjá þjóðinni, daginn sem nefndin verður skipuð. Eftir langvarandi þurrka, sem enn geta haft sínar afleiðingar langt fram í tímann, hefur nú Pétur „Nelson“ ætlar að stríða við Breta

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.