Spegillinn - 01.07.1958, Page 12

Spegillinn - 01.07.1958, Page 12
156 3PEBILLINN — Ert þú ekki alveg með því, að lánin til Gnoðarvogshúsanna verði aukin að verulegum mun? — Ég veit ekki, svaraði ég. Und- anfarið hef ég verið að leggja mig eftir stjörnuspeki og tilheyrandi spádómum og þar er alstaðar verið að tala um einhver hús, en ekki man ég eftir, að Gnoðarvogshús væru þar á meðal. — Ég skal nefnilega segja þér, sagði rakarinn minn og herti yfir- breiðsluna að hálsinum á mér, svo að ég blánaði allur x framan, eins og abstraktmálverk, — að hann Ingi R. var hérna rétt áðan, og sagðist hafa borið fram tillögu um þetta í bæjarstjórninni. — Þeir væru orðnir vesælir, kommarnir, ef þeir hættu að bera upp slíkar tillögur, sagði ég og vildi eyða þessu tali. — En úr því að þú ert að minnast á lán, þá er ég kominn að þeirri niðurstöðu, að við íslendingar séum mestu lánsmenn í heimi, hvort sem mið- að er við fólksfjölda eða fjármála- ráðherra. — Satt segir þú, og ég er alveg á sama máli síðan ég heyrði það utan að mér um daginn, að þeir væru farnir að kalsa lán við Norð- menn. En þá finnst mér það líka móðgun við Færeyinga að láta þá óslegna eina frænda vorra. — O, vertu aldeilis rólegur, þeir koma næst, enda engin ástæða til að setja þá hjá, þó að þeir séu færri og smærri en við. — Það er annars undarlegt með þessi fjármálavísindi, sagði rakar- inn minn og kafrak klippurnar í höfuðleðrið á mér. — Það er alltaf verið að tala um, að við séum svo fátækir, að við getum varla leyst út familíusjúrnalinn, en svo sam- tímis flýtur allt í seðlum og þeim meira að segja fallegum og nýjum. — Jæja, stundum sér maður þá nú skítuga, stundi ég. — Ekki voru þeir það í norður- ferðinni hjá mér um daginn. — Ert þú nú farinn að fara norð- ur ? — Hefurðu ekki frétt það? Ónei, ég gleymdist víst í Mánudagsblað- inu þegar það var með ferðasöguna seðlabankastjórans um daginn. Ég er víst eitthvað ómerkilegri en þjónarnir á Hótel Borg, sem upp- örtuðu fyrst gestina þar, en voru svo allt í einu komnir upp í Bifröst, þegar leiðangurinn kom þangað. — En hvað varst þú að gera þang- að með þeim? — O, þeim vex nú hár, þrátt fyrir fjármálaáhyggjurnar, og einn þeirra hafði sagt við hann Villa minn, að það hefði alltaf verið sinn draumur að láta raka sig norður á heimskautsbaug, og Villi þá ekki lengi að bæta úr því og heldur ekki að velja manninn til fararinnar, enda hafði ég einhvern- tíma trúað honum fyrir því, að ég hefði engin efni á miðnætur- sólarflugi. Og minn maður hefur nú svo mikinn praktiskan sans, að hann gat látið tvo drauma rætast samtímis. Svo að ég var valinn til fararinnar og lifði þar í dýrðleg- um fagnaði, og eins og ég sagði í upphafi þessa máls, þá var ekki borgað með öðru en nýjum seðl- um. — Ég hef nú látið mér fortelja, Kippir hann í skottið á brezka

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.