Spegillinn - 01.07.1958, Qupperneq 21

Spegillinn - 01.07.1958, Qupperneq 21
gjPEGILLINN T65 KERBERT HARRI8: Herbragðið mikla Þegar Pési kom heim í litlu íbúðina, sem hann leigði í félagi við Kalla vin sinn, var Kalli inni í baðherberginu að raka sig. Pési snuggaði út í loftið og gretti sig. Andrúmsloftið var mettað af einhverju ilmefni, sem gat að minnsta kosti ekki staf- að frá venjulegri raksápu. — Hæ, Kalli! kallaði hann til félaga síns. — Hvaða dj.... gums er þetta, sem þú ert farinn að nota? Það lyktar eins og heilt kvennahúr. Kalli kom hlæjandi út úr baðherberg- inu og þurrkaði sér um hökuna. — Því miður er ég alveg saklaus í þetta sinn, sagði hann. — Sápan mín er alveg Ivktarlaus. Pési hélt áfram að snugga. — Þetta er greinilega af ilinvatni, sagði hann. — Já, það var dania, sem skildi það eftir, sagði Kalli. — Og mér óviðkomandi í þokkabót. Hún kom hingað til að spyrja um Jng. Lúlla Marteins hét liún .... eða sagðist heita. — Æ, æ, er hún nú komin aftur? and- varpaði Pési og skelfingarsvipur færðist yfir andlitið. — Ég bauð henui ekki að bíða, sagði Kalli afsakandi. — Sagði henni einmitt, að það gæti orðið bið á því að þú kæmir heim. En hún sagðist ætla að bíða. — Það var henni líkt, stundi Pési. — En svo gafst hún upp á því eftir nokkra stund. Varð að þjóta, sagði hún, af því að hún átti að koma fram á síðdeg- issýningu. Pési leit á úrið sitt. — Það stendur víst heima, að í þessu sé hún að jarma ein- hvem af þessum sýrópssöngvum sínum. En HAMAR H.F. JÁONSTEYPA VÉliAVEBKSTÆÐI KETtLSMIÐJA BAMARSHÚ SINtJ TBTGGVAGÖTU BEYKJAVÍK FBAMKViEHDABTJÓBI BBttEDIKT GRÖNDAIj SÍMI 2-Z1-23 SÍMNEFNI: HAMAB StytfjiS innlendan iSnaö. tslmzkt fyrirtseki. ■—— ------- - . —■— --------i-. i- i svo liringir hún í mig, þegar það er búið. Vertu vænn og taktu símann. Segðu að ég sé ekki heima. Kalli lyfti augnabrúnum. — Er þetta ein af þeim, sem þú ert að reyna að bíta af þér? — Stendur lieinia. Og að því leyti verri, að hún er ágengari en flestar aðrar. Það er einhver hjúskaparglampi í augunum á henni, auk alls annars. Æ, fjandinn taki það; stundum óska ég þess, að ég hefði aldrei farið í þessar ráðningar fyrir sjón- varpið. — O, þú mátt sjálfum þér um kenna, sagði Kalli. — Ekki einasta ertu hátt settur í ])essu sjónvarpsveseni, heldur ertu líka það kvennagull, sem þú ert, og það má fara nærri um útkomuna, þegar þetta tvennt fer saman. Þessvegna hanga rauð- hærðar pjásur, eins og Lúlla, á þér seint og snemma. — Ég hefði aldrei átt áð bjóða henni að éta, þama um daginn, stundi Pési. — En ég vorkenndi stelpugreyinu. Hún liafði ekkert haft að gera í lieilan mánuð, og mér sýndist hún svo horuð......... — Já, þar varð þér á í messunni, sam- þvkkti Kalli. — Hún heldur, að þú sért heldur betur snortinn af sér. —- Já, það var greinilegt. Ég slapp ekki við hana. Hún var eiginlega helzt alstaðar þar sem ég var staddur. Og svo fór að koma þessi brúðkaupsglampi í augun í henni, eins og svo mörgum öðrum. Nei, ég verð að grípa til „herbragðsins míkla“. — Herbragðið mikla? Kalli varð allur að einu spurningarmerki. Pési glotti. Hann gekk að skrifborðinu og settist. Tók sér pappírsörk og penna í hönd. Fór síðan að skrifa eitthvað, ein- beittur á svip. „Elsku lijartans Sússa mín ....“. Kalli Ias _úr pennanum rjá honum, for- vitinn á svipinn. — Hver er nú þessi Sússa? spurði hann. — 0, ég er víst álíka fróður um það og þú, svaraði Pési. — Ég er ekki að skrifa henni, sagði Pési og tuggði pennaskaftið, hugsandi á svip- inn. -— Ég er að skrifa henni Lúllu. — Já, en þú kallar hana Sússu, tautaði Kalli. — Eftirtekt þín er þér til sóma. En hérna sérðu herbragðið mikla, sem ég minntist á áðan .... En haltu þér saman andartak, meðan ég hugsa upp eitthvað verulega kjarnyrt. Og Pési hélt áfrain að skrifa og Kalli horfði á. „Allan daginn hefur hugur minn verið fullur af þessum ógleymanlegu augnablik- um, sem við áttum saman í gærkvöldi. Eft- ir að hafa haldið þér í örmum mér, veit ég, að fyrir mér er engin önnur kona leng- ur til í heiminum ....“. Pési léit upp. — Finnst þér þetta ekki nokkuð gott? — Ég veit ekki hvemig þú ferð að þessú. — O, það er æfingin, kall minn, svaraði, Pési og brosti drýgindalega. — Ég héf skrifað þetta bréf þrisvar áður. En aðal- púðrið kemur undir lokin. Hann hallaði sér aftur og fitlaði við pennaskaftið. — Einu sinni var ein ljós- hærð, sem hét Elsa. Hún var annars að vissu leyti dálítið lík henni Lúllu — gráð- ug og afbrýðissöm. Henni sendi ég bréf, sem bvrjaði svona: „Mín eina og' sanna og elskaða Kata“. Var það ekki sniðugt? — Ja, hérna! tautaði Kalli. —- Svo var ein svarthærð táta, sem var nú bara rétt búin að ánetja mig fyrir fullt og allt. Það var rétt svo, að ég slapp. Hún fékk eitt svona bréf með nafnbreytingu. ■— Ég skil bara ekki, livemig þér fer að detta þetta í liug, sagði Kalli. — Jæja, seinni hlutinn af bréfinu er nú POLAR h.f. Einholti 6 — Borgartúni 1 — Sími 1-84-01 i———----------— -------------j

x

Spegillinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.