Spegillinn - 31.12.1970, Blaðsíða 3

Spegillinn - 31.12.1970, Blaðsíða 3
LeiÓari Þeir skýjabólstrar, sem lengi hafa legið yfir þessum af- kima menningarinnar norður á hjara veraldar, hafa nú skvett úr sér eitruðum vessum. Þeim fylgja daunillir misvindar, sem hríslast um þjóðarsálina líkt og hrá- slagi um liljublóm. Nú á að fara að kenna börnum að gera hitt inni í skólastofunum. Það syrtir yfir okkur af hinni skandinavisku klám- mengun. Hafi nokkurn tíma verið ástœða til að grípa til vopna og verja landið erlendri ásœlni, þá er það núna. Hver sannur íslendingur œtti að ryðjast fram á ritvöll- inn í fylkingu með þeim Freymóði, Kristjáni og fleiri góðum konum, vopnaður œttjarðarást og skírlífi. Það œtti að höggva þetta ofvaxna afsprengi skandinav- ismans og lima sundur með vígðum brandi. Látum hann ekki nauðga fósturlandsins freyju með sínum saurugu tólum, þennan plebba. Ögn hefur fólkið vaknað til meðvitundar um þá geig- vœnlegu hœttu, sem okkur stafar af þessari geigvœn- legu mengun andans og veiklun holdsins. Svo er þessu bíói fyrir að þakka. ÖIl Reykjavík hefur séð þessa við- vörun í bragganum við Skúlagötu, enda hefur skír- lífisforusta þjóðarinnar ákaft spanað fólk upp í að sjá þetta. Því eins og þar stendur: ,,Flestum reynist erfitt að forðast hœttuna, fyrr en þeir hafa komizt í kynni við hana“ (sbr. hinar síhœkkandi barneignir í synd). Við íslendingar erum með þeim ósköpum gerðir, að við eigum erfitt með að gœta okkar fyrir freistingum, sem við höfum ekki fallið fyrir. En hitt er áreiðanlega satt, að ekki þarf að troða kyn- frœðslu upp á ungt fólk á íslandi. Hvar œtli það mundi enda ? Það er víst nóg um slíkt hér á landi, bœði í tíma og ótíma, ungt og gamalt, gift og ógift. Og svo á að fara að örva þennan ósóma með ,frœðslu“, eins konar út- listun á syndinni. Það yrði yndislegt ástandið! Eg held íslendingar viti allt of vel, hvað þeir eru með á milli fótanna, þótt ekki sé sífellt verið að kenna þeim að nýta það meira. Spegillinii Samvizka þjóðarinnar Spegillinn kemur út 10 sinnum á árinu 1970. Áskriftargjald féll í gjalddaga í júlí sl. í lausasölu kostar blaðið 50 krónur með söluskatti. Ritstjóri: Jón Hjartarson Aðalteiknari: Ragnar Lár. Filmusetning og prentun: Lithoprent Afgreiðsla, áskrift: Sími 20865, kl. 13-15 Pósthólf 594, sími 83065 1 Dagur í lífi heiðurs- manns 9 Smáauglýsingar 11 Verjum ísland, Ijóð 13 Noregur verst, verjum ísland 15 Tíu litlir komma- strákar, Ijóð 20 Úr gömlum spegli: Þáttur Jóns ok Óláfs 24 Sál felldi sína þúsund, Hafsteinn felldi sína tíuþúsund 26 Vessar: Buxnastríðið í bankanum 27 Stjörnuspá og póst- hólf 594 30 Úr vettlingi vísind- anna: Fæðingadeild fátækrar þjóðar.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.