Spegillinn - 31.12.1970, Blaðsíða 9
SMÁAUGLÝSINGAR
Tilboð óskast í smíði fanga-
búða fyrir strokuþingmenn.
Tilhögun búðanna verður með
svipuðu sniði og hinna vin-
sælu vinnubúða í Síberíu.
Teikningar og verklýsing fást
hjá MÍR.
Austri.
Af gefnu tilefni skal það tekið
fram, að ég er mesti fjölmiðill
landsins.
Hafsteinn.
Tökum vel á móti flóttafólki
frá vinstri. Reynum ætíð að
laga okkur að allra aðstæðum.
Gylfi.
Hef opnað kvöldskóla fyrir
væntanlega tryggingafræðinga.
Guðjón Hansen er velkominn.
Aðeins vélstjórar og ekki skip-
stjórar fá aðgang.
Sigurður Ingimundarson.
Sími ÁTVR utan skrifstofu-
tíma verður hér eftir sem hing-
að til 22440. Munið- okkar
góðu þjónustu og fáið áfengið
sent heim gegn vægu gjaldi.
ÁTVR.
Sjö hlekkir óskast til að halda
saman þingmannahóp. Þurfa
að vera mjög rammgerir. Skil-
yrði er, að aðeins gangi einn
lykill að þeim öllum.
Lúðvík & Magnús.
Að kröfu landsbankans, Iðn-
aðarbankans, Útvegsbankans,
Búnaðarbankans og Seðla-
bankans verður haldið nauð-
ungaruppboð á lánstrausti
Ólafs R. Grímssonar, hvar sem
það kann að finnast, ásamt
ógjaldföllnum skuldum hans.
Dr. Gengis Kahn.
Tek að mér að friða óspekta-
menn hvar sem er og hvenær
sem er.
Ragnar jarðskjálfti.
Hér með tilkynnist, að dr
Gengis Kahn hefur enn einu
sinni verið kjörinn aðalbanka-
stjóri vor.
Seðlabankinn.
Afkynjanir kl. 14-15 í félags-
málaráðuneytingu.
dr. juris
Gunnlaugur Þórðarson.
Draumaprinsinn, nuddtæki fyr-
ir konur. öðlist lífshamingju.
Aðeins auglýst hjá okkur.
Morgunblaðið.
Á flokksráðsfundi vorum var
einróma samþykkt að vinna
áfram að leið íslands til sósíal-
isma á grundvelli viðreisnar-
innar.
Sjálfstæðisflokkurinn.
Gamla kompaníið óskar eftir
styrk til að kynna sér mengun
kynlífs í öðrum löndum.
Dagrún, Meyfróður
& Allsbersson.
Guð má ráða, hvar ég dansa
önnur jól.
Ekkert G. Þorsteinsson.
Að gefnu tilefni viljum við enn
undirstrika, að það er alrangt,
að við séum á móti MAÓla Jó
formanni. Það er enginn á móti
honum nema fólkið.
Tima Tóti & Tommi.
Tek að mér skattaframtöl.
Munið, að engum öðrum hefur
tekizt það afrek að sanna á
skattaframtali tap á rekstri
tannlæknastofu. Reynið við-
skiptin.
Bergur Bjarnason lögvitringur.
Hagur minn er hagur allrar
þjóðarinnar.
Óttar í Eimskip.
Ferðaskrifstofan Sunna óskar
eftir sjálfboðaliðum í ókeypis
Mallorcaferðir. Blaðamenn,
forstjórar og alþingismenn eru
orðnir gegnsteiktir og útkeyrð-
ir, svo að pláss eru fyrir aðra.
Sækjum heim, sendum heim.
Guðni á grensunni.
Það var ekki Ólafur R. Gríms-
son, sem samdi svörin fyrir
MAÓla Jó formann í sjón-
varpinu. Hinn óviðjafnanlegi
var heldur ekki undir áhrifum
annarlegra lyfja. Af gefnu til-
efni.
Tíma Tóti & Tommi.
Tek á móti dauðu grasi úr
Hafnarfjarðarhrauni.
Ingólfur Davíðsson.
Tek ekki mark á annáluðum
ofstopamönnum eins og Ingólfi
Davíðssyni.
Ragnar álskalli.
Félag ofskattaðra íbúa í Arnar-
nesi verður stofnað eftir út-
komu næstu skattskrár. Ólafur
Einarsson fær ekki að mæta á
fundinum.
Denni dæmalausi
Hermannsson.
Notið okkar ágæta flúor til að
örva hárvöxt yðar og annan
viðkvæman gróður.
Ragnar og Vilhjálmur
álkóngar.
Gjaldþrota kaupfélög. Munið
hin hagkvæmu gjaldþrotakjör
okkar. Vil láta aðra skuldar-
eigendur tapa og hirðum eignir
yðar á spottprís. Mottó okkar
er „Skipuleg gjaldþrot".
Samband íslenzkra
gjaldþrotafélaga.
Næsta lag eftir mig mun heita
„Táknmál ástarinnar“.
12. september.
Meyfróður & Allsbersson hafa
verið ráðnir áróðursmeistarar
vorir. Þeir munu sjá um að
dreifa auglýsingum um vafa-
samar kvikmyndir vorar til
dagblaðanna. Hins vegar sér
Dagrún um hljóðvarpið.
Hafnarbíó.
„Skattsvik á skattstofunni",
doktorsrit Jóns Sigurðssonar
ráðuneytisstjóra er komið út.
Magnús í Sana.
Seyðfirðingar eru beðnir um að
athuga að fremja ekki innbrot,
nema togaralýðurinn sé í landi.
Hann er yfirleitt svo fullur, að
engu skiptir, hvort hann játar
á sig tíu innbrotum fleira eða
færra.
Erlendur fágæti.
Lögreglan biður ákeyrendur að
taka upp hafnfirzkar venjur og
gera út um mál sín á staðnum
með hnefunum, í stað þess að
vera að ónáða lögregluna, svo
að Lögreglukórinn fái rýmri
tíma til æfinga.
Sigurjón Schutzstaffeln.
Þeir, sem kynnu að hafa haldið,
að það væri ég, sem var ráðinn
til vinnu hjá Sjónvarpinu, eru
af gefnu tilefni beðnir að gefa
sig fram við geðlæknafélagið.
Guðjón Einarsson
blaðaljósmyndari.
Alþýðusamband íslands—það
er ég.
Hannibal.
Ef lýðurinn fær ekki brauð að
borða, getur hann étið kökur.
Ríkissjóður.
Eru ekki einhverjar góðviljað-
ar manneskjur til, sem nenna
að tala um klám við útgenginn
templara og dægurlagahöfund.
Stúdentafélagið.
9