Spegillinn - 15.12.1971, Blaðsíða 3
LelÓavi
Bœrilega gengur það hjá okkur þessa dagana. Við
Ugluspeglar megum vart vatni halda af hrifningu á
stjórninni okkar. Þarna tvöfaldaði Halldóre skattana
með einu pennastriki, sagði ríkisstarfsmönnum að éta
það sem úti frýs og náði allri launahœkkuninni af pakk-
inu í Alþýðusambandinu. Geri aðrir betur í svartasta
skammdeginu. Vel lagað til myrkraverka skammdegið,
það má nú segja. Og ekki lœtur hann Einar okkar að
sér hœða. Ekki hafði hann mikið fyrir því að sannfœra
Maó um nauðsyn þess að taka upp stjórnmálasamband
við okkur Frónbúa. Skárra vœri það nú. Vorum það
kannske ekki við sem áttum heiðurinn af því að koma
karlinum í Sameinuðu þjóðirnar. Og svo er rifist um
varnarmálin. Það er rétt, að það komi fram af-
dráttarlaust, að við erum alveg sammála Einari
Ágústssyni um, að framfylgja skuli ákvœðum stjórnar-
sátimálans um brottflutning varnarliðsins í áföngum á.
kjörtímabilinu. Og auðvitað erum við líka innilega
sammála honum um, að endurskoða skuli varnarsamn-
inginn og gera athuganir á því nú á næstunni, hvort
herinn skuli látinn fara. Því það hefur komið skýrt
fram, að þá fyrst mun utanríkisráðherrann okkar taka
ákvörðun um brottflutning varnarliðsins, þegar hann
hefur kynnt sér varnarmálin af eigin raun, sem verður
nú á nœstu mánuðum. Við viljum líka taka skýrt fram,
að við erum alveg sammála Einari Ágústssyni um það,
að engin ákvörðun skuli tekin um brottvísun varnar-
liðsins fyrr en alþingi hefur fjallað um málið, enda taki
alþingi ákvörðun um brottflutning varnarliðsins. Svo
leyfir Geir einhver almáttugur að segja, að fyrri reisn
í meðferð utanríkismála sé ekki haldið. Við leyfum
okkur að spyrja. Hefur nokkurntíma áður setið Her-
foringjaráð hér í Utanríkisráðuneytinu? Hvað vilja
menn hafa það meira? Er ekki rétt, að við friðlýsum
utanríkisráðherra um leið og við förum að tillögu
Jónasar hundadagaskálds og friðlýsum Norður-Atl-
antshafið ?
Spegillinri
SAMVIZKA ÞJÓÐARINNAR
Spegillinn kemur út 10 sinnum á
árinu 1971. Áskriftargjaldið. 420
krónur, greiðist í febrúar. I lausa-
sölu kostar blaðið 60 krónur með
söluskatti.
RITSTJÓRI: Jón Hjartarson.
Sími 20865 kl. 17-19
AÐALTEIKNARI: Ragnar Lár.
Sími 83065. pósthólf 594,
Filmusett og prentað í Lithoprenti.
EFNISYFIRLIT:
4 Er gátan um uppruna
íslendinga leyst ?
6 Vor (ljóð)
7 Smáauglýsingar
8 Pétursskip í Selskeri
9 Dulræn reynsla mín
10 Dagur í lífi heiðursmanns
15 Mestur allra þjóðarsómi
(Ijóð)
16 Leikfang mánaðarins
18 Bréf frá Ali-Tollo
19 Sjónvarp Spegilsins
22 Ólíó íslendinga
25 Saga Þjóðleikhússins
26 Tvennir tímar (ljóð)
Með þessu síðasta blaði 41. árgangs
fylgir stórt plakat af súpergrúppu
Spegilsins, en hún er eins og allir
vita: „Útlát og Óli“. Menn eru
varaðir við að glata þessum kaup-
bæti, því annars verða þeir að kaupa
hann i búð fyrir heilar 200 krónur.
I sumar mun stjórnin setja bráða-
birgðalög um, að hver einasti stuðn-
ingsmaður hennar, sem ekki hefur
þetta plakat uppi á vegg hjá sér og
staðinn er að verki, fái enga stöðu,
ekki einu sinni skipun í nefnd.
3