Spegillinn - 15.12.1971, Blaðsíða 9

Spegillinn - 15.12.1971, Blaðsíða 9
lítillæti þeirra væri svo mikið, sem á daginn kom: Hreyfðu þeir sig ekki af skerinu í tvo daga, og hrifust allir hér af slíkum vináttuvotti. Fjörulalli. MOTTÓ: Ytar sigla austur um sjó, öldujónum káta. Skipió er nýtt en skerið hró, skal því undan láta. Staðarhóls-Páll. Dulræn reynsla mín (Eftir Gabríel Garibaldason, varðskipinu ÆGI) Þegar skip okkar strandaði, henti mig fyrirburður sá, sem nú skal greina: Ég var nýfarinn til kojs, þegar draum- konur okkar varðskipsmanna birt- ust mér, allar þrjár, en þær höfum við erft frá Eiríki Kristóferssyni, til þess að þær vari okkur við, áður en stórslys og sjóskaðar eiga sér stað. Hefur Eiríkur minnzt á í einhverri af sjálfsævisögum sínum, hve gagn- legar slíkar draumkonur eru. Ekki höfðu þær fyrr vitrast mér í draumnum en ég hrökk fram úr kojunni við ógurlegan hristing og skarkala, — og þegar ég kom upp á dekk, — var skipið strandað! Þetta er eins satt og skipið stendur hér á skerinu. Vottar: Pétur Sigurðsson, aðmíráll Hafsteinn Björnsson, miðill. 9

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.