Spegillinn - 15.12.1971, Blaðsíða 22

Spegillinn - 15.12.1971, Blaðsíða 22
 Ólíó íslendinga ’ ^ ^ \ fí ^ \ ff ^ \ lí ^ \ fí ^ ^ Dr. Kortér, sálfræðigeðlæknir Speg- ilsins, hefur að undanförnu verið önnum kafinn við greindarmælingar. Stafa annirnar aðallega af tilkomu nýju ríkisstjórnarinnar og Hinnar nýju stéttar, sem tekin er við völd- um hér á landi. Eins og nærri má geta er ekki um auðugan garð að gresja í því liði, en þó hefur Kortér ekki reynzt nauðsynlegt að fram- lengja skalann niður á við. Birtast hér nú samkvæmt venju nokkrar mikilvægustu ólíó-mælinga- niðurstöðurnar frá yngstu athugun- um dr. Kortérs. Eins og menn muna spannar ólíó-skalinn frá +4 upp í 9. Núllpunktur kerfisins er miðaður við Ekkert Nei múrarameistara, sem hefur 0 ólíó, og hin minnsta pósitíva eining er miðuð við Ólíó forsætis- ráðhéra, sem mælingakerfið í heild er kennt við, og hefur 1 ólíó. Enginn hinna nýmældu slær við höfuðsmanni mælinganna, Birni á Löngumýri, sem hefur 5 ólíó og hefur tryggt sig þar í sessi með því að láta ekki hafa sig í að undirrita stjórnarsáttmálann. En hann hefur fengið harðari samkeppni en áður, því nú hafa í fyrsta sinn mælst tveir menn með 4\ ólíó. Annar er auðvitað enginn annar en Siggi Óla lögfræðingur, sem er helzta gáfnastjarna sjónvarpsins. Þótt hann hafi að vísu verið mátaður af kell- ingu undir lokin, tökum við ekkert sérstakt mark á því, af því að Kortér hefur af feimnisástæðum ekki enn viljað ólíómæla konur. Þessari tröppu greindarstigans deilir Siggi með Af- réttaranum, sem hefur sýnt feikilega snilli við að halda sér á floti og auka viðskiptahróður sinn, þrátt fyrir allt. Gáfaðasti ráðherrann, Lúðvík Jó- sepsson, náði fjórum stigum og er í sama báti og Haralz og Njarðvík, þótt hann beri ekki ættarnafn. Þessi mæling er mikill sigur fyrir ríkis- stjórnina, því að Lúðvík bætir einn það upp í plús, sem framsóknar- ráðherrarnir samtals setja stjórnina í mínus. Jón Þórarinsson, yfirtrúður sjón- varpsins og Bach-sérfræðingur, náði 3\ stigi, einkum fyrir að sjá í gegnum Flosa og hans billegu gamantrikk og leyfa þjóðinni fremur að sjá eitthvað klassiskt og merkilegt, eins og dag- skrá sjónvarpsins ber með sér frá degi til dags. Hattímas ritstjóri, sem áður var með 2\ stig, er nú kominn upp í 3 stig við hlið Óla Jóns krítikers, einkavinar síns. Þessi frami Hattí- masar stafar af frábærri frammistöðu hans í sambandi við fyrirlestra Haga- líns í Háskólanum. Ellert Schram fótboltaþingmaður er einnig með 3 stig, enda er hann fyrsti þingmað- urinn í sögunni, sem nær því afreki að flytja frumvarp utan dagskrár í alþingi. Eins og menn muna hefur fram til þessa ekki verið hægt að gefa upp ólíó Jóhanns fyrrverandi, þar sem það varði öryggi ríkisins á sínum tíma. Nú er allt í lagi að segja frá því, að það var \ stig. Eftir stjórnar- skiptin hefur Jói hins vegar hoppað upp í stig, bæði fyrir að hafa losað sig við forsætisráðherrastólinn og fyrir að benda þjóðinni á, að Rússinn væri að koma. Á plani Jóhanns er sjimpansinn og Broddi yfírrektor, sem getur nú ekki hækkað meira, því að nú er Gylfi ekki lengur til að semja og láta samþykkja frumvörp um Kenn- araskólann. Þetta lið er allt neðan við heimsmennina Þvermóð Otter- sted, Glókoll á Tímanum og Magnús Austra, þann sem uppgötvaði raf- magnið. Jón Skaftason hefur hækkað úr í -hl fyrir stuðning sinn við her í landi og fyrir að láta ekki hippana í flokknum segja sér fyrir verkum. Flokksbróðir hans, Þórarinn á Tím- anum, fær heldur hærra eða O, sem raunar er lægri tala en flestir bjugg- ust við. En staðreyndin er sú, að Þórarinn varð ekki utanríkis og verður að líða fyrir þann skort á framgangi. Sjálfur utanrík-iss, Einar Ágústsson, hefur -=-2, ef mark er á slíkri tölu takandi, því að ólíó hans virðist vera á hraðri niðurleið. Upphaf- lega var Einar með -U, þegar hann lét hafa sig í að verða utanrík-iss. Síðan hefur hann lækkað um einn tíunda úr ólíói í hvert sinn, sem hann hefur opnað munninn. Með honum í -f2 er Flosi, sem ekki hafði vit á að koma þætti sínum í gegnum yfirtrúð sjónvarpsins og missa af hálfu milljóninni, sem hann ætlaði sér að ná út úr honum. Ef svo fer, sem horfir, að Flosi verði utanríkisráðherraefni núllista, verð- ur þó að hækka hann lítillega, svo hann verði ekki á sama plani og Einar. Þröstur hornhrútur hefur nú fengið 22

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.