Spegillinn - 15.12.1971, Qupperneq 6
Úr gömlum Spegli:
VOR
Nú finn ég vorsins yl í anda.
Ennþá mjólkar gamla Branda.
- Brandur sér um sína menn. -
Vetrar hverfa vondar skemmdir.
- Verðlags- mjólkur- sátta- nefndir -
hanga sízt til sóma - enn.
Bjart svo langt sem augað eygir.
Alt er rétt sem Vísir segir
- um eitrað mjöl við Eyjafjörð. -
Skafnings lýkur skœðri sennu.
Af skíðum dettur Helgi í Brennu.
- íllt er að fást við auða jörð. -
Sólin himinhvolfin gyllir.
Hambro vora sjóði fyllir.
- Eysteinn, skyldi' hann þekkjaþig ?
Svanir hátt með fjöllum fara.
Jeg fœ hjá Zimsen korktrekkjara,
- töppunum þykir þröngt um sig. -
Sœr og jörðin sofna í kossi.
Sigurjön á Alafossi
selur mönnum sól og bað. -
Fram til dala daggir glitra.
Hjá Daníeli hrossin titra
- af því þau vilja ólm af stað. -
Vekjaraklukkur vorsins hringja.
Vilmundur kann ekki að syngja,
- yfir því grcetur engin sál. -
Kvakar fugl við kyrrlátt sefið.
Kristín Hagbarð, gefðu í nefið,
- cetli það sje ekki oröið mál ?
Grcenkar hlíð og gil og hjallinn.
Góðtemplarar stinga út hnallinn.
- Hjá Ham esi er alltaf ös -
Við fiskinn vinnur fólk á mölum,
en flestir vinna í einkasölum.
- Siggi er enn þá seriös. -
Börð og hagar baða' í rósum.
Beljum hleypt úr öllum fjósum.
- Rauðka er úti, minnir mig. -
Þúsund skepnur þúfur kroppa.
Þinggemsarnir kátir hoppa,
- nagar hver fyrir sjálfan sig. -
Far vel þú gamli grái vetur.
Hvor Gunnan skyldi reynast betur
- Norðan-Gunna ‘ eða Gunnan hér ?
Afbragðs konsúll er Þormóður,
Ástvaldur er líka góður.
- Síld og trúboð, - sama er mjer!
Þá ncetur dvína' og daga lengir,
daprast vilja sumir strengir,
- syndin spilar öllum í. -
Með nautnir hverfur nóttin svarta,
en Nína, þú átt viðkvœmt hjarta,
- ogfinnur mig jafnt fyrir því. -
(Apríl 1935)