Spegillinn - 15.12.1971, Síða 7
SMÁAUGLÝSINGAR
Munið víxladag Bústaðakirkju.
Sr. Ólafur Skúlason.
Þetta er ljóta puðið, maður.
Ólíó forsætiss.
-Við skákum Strandhóteli, þegar
við opnum Grandhótel í Laugar-
ásnum.
Kleppur.
Morgunblaðið vill ráða aðstoð-
armann við bókmenntakennslu
í Háskólanum. Þarf að geta af-
greitt í fatahengi.
Árvakur.
Þeir þekkjast, sem drekka kræki-
berjalíkjörinn.
Jón í Ríkinu.
Ráðgert er, að Félag íslenzkra
bifreiðaeigenda verði nú senn
raunverulegt félag bifreiðaeig-
enda.
Ný stjórn FÍB.
Takið mátulega mikið mark á
ofangreindu.
Hagtryggingarfeðgar.
Framsóknarmenn yfir þrítugt eru
verstu bolar og illmenni, sem við
þekkjum.
Fráfarandi fuffarar.
Lúsin hefur haldið innreið sína
í æðri skóla. Lýkur brátt magi-
stersprófi.
Borgarlæknir.
Áfram íslendingar gegn kyn-
þáttamisrétti. Burt með svert-
ingja af Vellinum.
Segi drykkjusögur af Agli sterka
og Hattímasi í næsta fyrirlestri
mínum.
Hagalín.
Munið, að víxlar yðar falla á
vígsludaginn.
Sr. Ólafur Skúlason.
Höfundur hægri-umferðar frí-
merkisins er beðinn að hafa sam-
band við ÁTVR vegna fyrir-
hugaðra miða á krækiberjalíkjör.
Jón í Rikinu.
Kennslubók í lestri óskast handa
Birni Jónssyni.
Ólíó forsætiss.
Rússar nir eru að koma.
Jóhann.
Það er alrangt, að við séum að
stofna tryggingafélag til að ná
aurum okkar af Sunnlendingum.
Við ætlum að setja félagið á
hausinn og reka það síðan fyrir
sunnlenzkt ríkisfé.
Akureyringar.
Leitum Hannibals. Lág fundar-
laun í boði.
Ríkisstjórnin.
Benzinn minn er fallegri en benz-
inn þinn, Magnús minn.
Magnús.
Húsfélagið fellst á að sleppa
fjármálaráðherra við að sjá um
öskutunnurnar í næstu viku.
Húsfélagið Safamýri 46.
Ég hef aldrei sagt það, sem ég
hef sagt.
Einar Ágústsson,
Ég meinti að minnsta kosti það,
sem ég meinti ekki.
Sami.
Enginn maður frýr þér einfeldni
né ólæsi, Einar minn.
Lúðvík.
Alþýða manna er beðin um að
hafa samúð með okkur.
T ry ggingafélögin.
Smáfiskar eru beðnir að hafa
samúð með okkur.
Hákarlarnir.
Mikil lifandis ósköp er mikið til
af vondum mönnum í Fram-
sóknarflokknum.
Jónatan Þórmundsson.
Ríkisstjórninni er vinsamlega
bent á, að þeir sletta skyrinu,
sem eiga það. Látið okkar skyr
í friði.
Seðlabankinn.
Jæja eða neia, sagði Ólíó, þegar
hann vaknaði.
Jón i Brokey.
Enginn leggur sig niður við að
henda steinum í þá, sem í gler-
húsum búa. Höfum við ákveðið
væntanlegar byggingafram-
kvæmdir í trausti þess.
S.V.R. og bræðurnir.
Hver er sinnar gæfu smiður, því
miður.
Afréttarinn.
Kennslubók í Iestri óskast handa
Einari Ágústssyni.
Lúðvík.
Safnritið: „Hinar ýmsu túlkan-
ir á stjórnarsáttmálanum“, kem-
ur senn út í 12 bindum.
Ríkisstjórnin.
Það tilkynnist hér með, að verð-
bólgan hefur verið stöðvuð, og
verður hér eftir ekki tekið mark
á öðru.
Ólíó.
Jólavíxlabeiðendum er bent á að
tala við ríkisstjómina, spariskír-
teinadeild.
Bankarnir.
Den tid, den sorg.
Útlát og Óli.
Hæ, tröllum á meðan við tórum.
Sömu.
Lifi rikisstjómin.
Spegillinn.
Tíminn.