Spegillinn - 15.12.1971, Qupperneq 8
Pétursskip í Selskeri
Þau tíðindi urðu hér á dögunum, að
skip, mikið og frítt, sást við sjón-
deildarhring héðan úr skerinu. Varð
brátt ljóst, að hér var herskip á ferð,
og væntum vér alls hins versta, þar
til séð varð, að þetta var snekkja
sjálfs aðmírálsins, Péturs Sigurðss,
(Fréttapistill frá fréttaritara Spegils-
ins í Selskeri)
varðskipið, eða öllu heldur Péturs-
skipið, Ægir. Þar sem vér Selsker-
ingar höfum ekki átt því að venjast,
að þessa tegund Pétursskipa reki á
fjörur vorar, urðum vér allshugar
fegnir, þegar augljóst varð að skip
þetta ætlaði að sýna oss þann sóma
að koma hér við.
Óneitanlega urðu sumir íbúanna
felmtri slegnir, þegar skipið færðist
nær, enda siglingin mikil og göfug-
mannleg. Þótt hér væri kunnugt, að
Pétur er höfðingi mikill og menn
hans allir, datt oss ekki í hug, að
8